Vikan - 01.05.1996, Blaðsíða 59
ÍSLENSK SÝNINGARSAMTÖK OG HEIMSFRÆGÐIN
Henný Hermannsdóttir kemur fram á tískusýningu á Hótel
Sögu. Móóir Hennýar, Unnur Arngrímsdóttir, á heiöurinn af
því að hafa stofnað fyrstu formlegu sýningarsamtökin hér á
landi.
Frh. af bls. 43.
gengni að fagna en hafa nú
hætt starfsemi.
VINSÆLT ATRIÐI
Á SAMKOMUM
Öll þessi samtök voru iðin
við að koma sér og sínum á
framfæri og tókst með tím-
anum að gera tískusýningar
að vinsælu atriði á ólíkleg-
ustu samkomum. Um langt
skeið var það þannig að það
voru sýningarsamtökin sem
leituðust eftir því að fá að
sýna fatnað verslana og ís-
lenskra fataframleiðenda í
stað þess að fatasalarnir
væru að hóa saman fólki til
að sýna fyrir sig, eins og áð-
ur var. Lengi vel voru það
þeir sem greiddu sýningar-
fólkinu launin en þróunin
varð sú að þegar skemmti-
staðirnir voru orðnir sólgnir (
að geta boðið upp á tísku-
sýningar og eftirspurnin eftir
þeirri skemmtun var orðin
meiri en fatasalarnir gátu
staðið undir komu launa-
greiðslurnar í vaxandi mæli í
hlut samkomuhaldaranna.
Árið 1979 sáu 16 krakkar
sór leik á borði og stofnuðu
ný sýningarsamtök undir
nafninu Módel 79. Allir
höfðu stofnendurnir starfað
með öðrum sýningarsamtök-
um og öðlast þar reynslu -
og vinsældir. Ferskleiki fylgdi
Módel 79 sem buðu upp á
sýningar sem voru líflegri en
áður höfðu þekkst. Tísku-
sýningar þeirra voru svo
poppaðar að skemmtistaðir
eins og Hollywood sóttust
ákaft eftir að laða til sín gesti
með þeirra hjálp. Á þeim
nær tveim árartugum sem
Módel 79 hafa starfað hefur
hver fegurðardrottningin á
fætur annarri gengið til liðs
við samtökin og enn í dag er
mikil reisn yfir starfsemi
þjónustunnar undir vasklegri
stjórn Jónu Lárusdóttur.
Icelandic Models hófu
starfsemi í kringum 1990.
Auður Björk Guðmunds-
dóttir fer þar með stjórnina í
dag og segir að um þessar
mundir sé ekki um nein um-
boðsstörf að ræða hér inn-
anlands en hins vegar séu
nokkrar fyrirsætur starfandi
erlendis á vegum samtak-
anna.
FLEIRI EÐA FÆRRI!
Umboðsskrifstofan Ftauði
dregillinn hf tók næst til
starfa og útvegaði m.a.
aukaleikara í íslenskar kvik-
myndir auk þess að fara
með umboð fyrir sýningar-
fólk. Rauði dregillinn hefur
hætt öllu slíku umboðsstarfi
og haslað sér völl á öðru
sviði en Ingi Karlsson, sem
var meðal stofenda Dregils-
ins, hefur stofnað nýja um-
boðsskrifstofu undir nafninu
Almenna Umboðsskrif-
stofan. Segir hann mikinn
fjölda fólks á öllum aldri á
skrá umboðsskrifstofu sinnar
og vekur jafnframt athygli á
því að þar er ekki aðeins um
fyrirsætur og sýningarfólk að
ræða heldur einnig leikara,
auglýsingateiknara, þuli,
lagahöfunda, jólasveina og
tónlistarmenn. Segir Ingi
starfsemina hafa farið mjög
vel af stað og lofa góðu.
„Því fleiri því betra“ eru
einkunnarorð Almennu Um-
boðsskrifstofunnar. Hin árs-
gömlu sýningarsamtök Ástu
Kristinsdóttur, sem hún
nefnir Eskimo Models,
leggja aftur á móti áherslu á
að fara með umboð fyrir
færri en leggja þeim mun
meiri vinnu í að koma hverj-
um og einum í sem best
störf. Sjálf hafði Ásta öðlast
mikla reynslu sem sýningar-
stúlka og Ijósmyndafyrirsæta
þegar hún réðst í að opna
umboðsskrifstofu. Hafði hún
starfað víða um heim og
kynnst ölium hliðum starfs-
ins. Sambönd sín nýtir hún
út í ystu æsar og í sumar
stefnir í að flestir þeirra 26,
sem hún hefur á skrá, verði
við störf hjá umsvifamiklum
aðilum erlendis í sumar.
SÍMANÚMERIN
Þeir, sem hafa hug á að
komast á skrá hjá Eskimo
Models, geta litið við á skrif-
stofunni í Bankastræti 5 eða
haft samband í síma 552
8011. Skrifstofa Almennu
Umboðsskrifstofunnar er á
Grensásvegi 7 og síminn þar
er 553 4070. Módelsamtökin
hafa símanúmerin 564 3960
og 854 0930 og Módel 79,
sem eru til húsa við Engja-
teig, eru með skrifstofusím-
ann 588 8855.
STÖKKPALLURINN
Þátttaka í fegurðarsam-
keppni af ýmsu tagi hefur
gjarnan reynst góður stökk-
pallur inn í sýningarbrans-
ann og eins það að fara á
námskeið sýningarsamtaka.
Einna mestur áhugi er um
þessar mundir fyrir John
Casablanca skólanum sem
Kolbrún Jónsdóttir veitir
forstöðu. John Casablanca,
sem skólinn er kenndur við,
er eigandi hinnar heims-
þekktu umboðsskrifstofu Eli-
te. Það er þó tímaritið Nýtt
Líf sem hefur umboð fyrir
hina árlegu módelkeppni Eli-
te og vinnur að undirbúningi
keppninnar í samvinnu við
Koibrúnu.
Önnur heimsþekkt módel-
samtök, Ford, leita hér ár-
lega að þátttakendum í al-
þjóðlegri módelsamkeppni
sem nefnist Supermodels
of the Year. Umboðsmaður
keppninnar hér á landi er
Katrín Pálsdóttir fréttamað-
ur og hefur hún átt samstarf
við DV þar að lútandi í ára-
raðir. í ár verður þó sú breyt-
ing á að fulltrúi íslands í
keppninni verður valinn úr
hópi þátttakenda í Fegurðar-
samkeppni íslands og kemur
fulltrúi Ford hingað til lands
til að fylgjast með keppninni
í þeim tilgangi.
Ford leitaði fyrst að stúlku
hér á landi árið 1982 en Elite
1983.
Þá hafa stúlkur frá íslandi
farið undanfarin ár til þátt-
töku í keppninni um titilinn
Miss Hawaiian Tropic sem
haldin er á Flórída. Þær
Hendrika Waage og Auður
Guðmundsdóttir hafa valið
og kynnt þær stúlkur í sam-
vinnu við tímaritin Samúel
og Vikuna. Meðal annars
hefur núverandi fegurðar-
drottning íslands, Hrafnhild-
ur Hafsteinsdóttir, tekið
þátt í þeirri keppni. Loks má
svo minna á að Kolbrún
Jónsdóttir hefur farið í um-
fangsmiklar ferðir með ís-
lensk ungmenni úr skóla
Johns Casablanca til þátt-
töku í módelkeppnni
M.A.A.I. í New York undan-
farin sumur.
EKKI AUÐSÓTT. . .
Það er Ijóst að aðeins á
að giska eitt ungmenni af
hverjum fimmtíu, sem reyna
að koma sér á framfæri hér
á landi í hinum harða heimi
sýningarfólks, getur átt von á
því að ná einhverjum frama
hér á land og enn færri er-
lendis. En það er vissulega
eftir miklu að slægjast í
þessum störfum erlendis ef
athygli er vakin. En slíkt
næst ekki nema með gríðar-
legri vinnu og ósérhlífni - og
umtalsverðum hæfileikum
auk rétta útlitsins að sjálf-
sögðu.
Leiðin á toppinn er svo
sannarlega ekki greið og
gaman að Ijúka þessari grein
með að vitna í orð fulltrúa
Elite við úrslitakeppni sam-
takanna hér á landi í síðasta
mánuði en hann lét þess
getið að meðal stúlkna, sem
tekið hefðu þátt í keppni Eli-
te án þess að sigra, væru
þær Christine Turlington
og Cindy Crawford sem
báðar áttu engu að síður eft-
ir að sigra heiminn. Þær
stúlkur, sem yrðu af Elite titl-
inum, gætu því alltént hugg-
að sig við að vera í sama fé-
lagi og þessar heimsþekktu
sýningarstúlkur. . . □
2. TBL. 1996 VIKAN 59