Vikan - 01.05.1996, Blaðsíða 81
TEXTI: ELIN ALBERTSDOTTIR
ELISABET DAVIÐSDOTTIR, FORDSTULKAN 1994:
Elísabet Davíðsdóttir
var kosin Fordstúlkan
árið 1994 en við það
breyttist líf hennar töluvert.
Hún hafði aldrei tekið þátt í
slíkri keppni áður né heldur
starfað við fyrirsætustörf.
Vinir hennar hvöttu hana til
að taka þátt í Fordkeppninni
og hún sendi því mynd í
keppnina. Elísabet var ein af
sex stúlkum sem valdar voru
í úrslit en yfir eitt hundrað
stúlkur sendu inn myndir af
sér. Eftir sigurinn var henni
boðinn samningur við Ford
Models umboðsskrifstofuna í
París. Það er ákaflega erfitt
að komast að á þeirri stofu
og má því segja að lífið hafi
leikið við hana.
Elísabet, sem var nem-
andi í Menntaskólanum við
Hamrahlíð, hélt til Parísar að
loknum skóla og starfaði i
París um sumarið. Hún fékk
mörg skemmtileg verkefni
þar og ferðaðist töluvert.
Segja má að Elísabet hafi
verið sérlega heppin því
henni bauðst síðan að starfa
í Mílanó og í London. Frá
Mílanó ferðaðist hún um all-
an heim, meðal annars til
Bali og fleiri framandi staða.
Hún tók þátt í tískusýningum
hjá frægum tískuhönnuðum
m.a. Yves Saint Laurent og
einnig lék hún smáhlutverk í
myndbandi hjá Elton John.
Elísabet tók sér frí frá
námi heilan vetur þar sem
verkefnin hlóðust að henni í
fyrirsætuheiminum. Hún
kom heim um síðustu ára-
mót og settist aftur á skóla-
bekk í MH enda er stefna
hennar að Ijúka stúdents-
prófi um næstu jól.
Elísabet verður tvítug
í sumar en hún er nú á
leið til Parísar ásamt
Þórunni Þorleifsdóttur,
Fordstúlkunni 1995, en
þær munu starfa fyrir
Ford Models. „Það er
búið að vera mjög skemmti-
legt hjá mér enda hef ég ver-
ið heppin. Ég hef ferðast
mikið um heiminn og þetta
hefur gefið mér mikla lífs-
reynslu. Ég er ánægð með
að hafa tekið þátt í keppninni
hér heima á sínum tíma,“
segir Elísabet. „Það er mikils
virði að hafa samning við
maður verður að treysta al-
gjörlega á sjálfan sig. Ég var
átján ára þegar ég fór út og
fannst það heppilegur aldur til
að byrja,“ segir Elísabet enn-
fremur. „Að minnsta kosti ættu
stelpur ekki að fara út í fyrir-
sætustörf yngri en sautján
ára."
Hún er ákveðin í að halda
umboðsskrifstofu
því þá er séð um
mann. Ég hef
fengið tækifæri til
að kynnast mörgu
áhugaverðu fólki
og það skilur eftir
sig minningar. Það
er talsverð heppni
sem fylgir fyrir-
sætuheiminum og
áfram á
þessari
braut í eitt
eða tvö ár eftir stúdents-
próf áður en stefnan verður
tekin á Háskóla íslands en
Elísabet hefur fyrir alllöngu
ákveðið að leggja fyrir sig
læknisfræði. „Það getur auð-
vitað allt breyst en mér finnst
ágætt að stefna að einhverju.“
2. TBL 1996 VIKAN 81