Vikan - 01.05.1996, Blaðsíða 53
María Helga Gunnarsdótt-
ir er fædd og uppalin í Vestur-
bænum í Reykjavík en býr
núna á Seltjarnarnesi. Hún er
21 árs að aldri, fædd 7. ágúst
1975, og er í Ljónsmerkinu.
Hún útskrifaðist sem stúd-
ent frá Kvennaskólanum fyrir
tveim árum og stundar núna
sálarfræðinám við Háskólann.
Hún hyggst sækja um inn-
göngu í Kennaraháskólann
því hún segist vel geta hugs-
að sér að starfa í framtíðinni
sem grunnskólakennari.
Undanfarin þrjú sumur var
Hótel Saga hennar vinnu-
staður. Eitt sumar vann hún
við afgreiðslustörf í verslun
Hagkaups á Eiðistorgi.
Skíðaiðkun og önnur líkams-
rækt eru á meðal helstu
áhugamála. Og svo segist
hún líka ferðast eins og kost-
ur sé og hafa komið til Spán-
ar, Austurríkis, Þýskalands,
Danmerkur og Bandaríkj-
anna, en þangað hefur hún
þrívegis farið.
Foreldrar hennar eru
Berglind Hrönn Hallgríms-
dóttir og Gunnar Valur Gunn-
arsson. Hún á einn bróður.
María Helga er 176 sm á
hæð.
Harpa Lind Hilmarsdóttir
er fædd og uppalin í Hafnar-
firði. Hún er 19 ára, fædd
annan dag jóla 1976, og er í
Steingeitarmerkinu.
Hún lýkur stúdentsprófi frá
Flensborgarskóla í Hafnar-
firði um næstu jól. Hún er
staðráðin í að fara út í frek-
ara nám en hefur ekki gert
upp við sig enn hvar bera
skuli niður.
Hún hóf snemma píanó-
nám en hætti því 15 ára
gömul. Hefur hún nú tekið
upp þráðinn að nýju og
stundar píanónámið við Tón-
listarskólann í Hafnarfirði.
Hún segist vera Hauka-
manneskja og af íþróttum
sem hún hefur helst komiö
nálægt nefnir hún sund og
handbolta.
Hún byrjaði fjórtán ára
gömul að vinna með skólan-
um á kjúklingastaðnum
Kentucky Fried Chicken og
um tíma vann hún hjá gull-
smiðunum Siggu og Timo.
Foreldrar hennar eru Ingi-
björg Kristjánsdóttir og Hilm-
ar Friðriksson.
Harpa Lind er 171 sm á
hæð.
2. TBL. 1996 VIKAN 53