Vikan - 01.05.1996, Page 77

Vikan - 01.05.1996, Page 77
Stúlkan á myndinni á við algengt vandamál að stríða en það er að húðin undir augabrúnum er mikil þannig að þegar hún er með augun opin þá hverfa augnlokin svo til alveg. Til að gera minna úr pokunum sem virðast hanga yfir augunum er sett mikið af nokkuð dökkum skugga á þetta svæði, dreift vel úr hon- um upp og út, næstum að augabrúnunum. Skugginn er dýpkaður þegar nær dregur ytri brúnum og er látinn vísa á ská upp á við. Þá er örmjó lína dregin meðfram augn- hárunum á efri augnlokum og einnig undir þau neðri. Þetta gerir augnlögunina ákveðnari og mikið af maskara var sett á augnhárin sem voru nærri ósýnileg áður. Stutt bil á milli augnanna: Þegar bilið er stutt á milli augnanna er best að setja Ijósan augnskugga við augn- krókana og þá virðist bilið vera meira. Síðan er dökkur skuggi settur við ytri brúnir. Á myndinni sést að dökki FYRIR EFTIR augnskugginn nær langt í áttina að gagnaugunum. Fyrir ofan efri augnhár var máluð örfín lína og mjúk lína undir þau neðri, frá miðju og út - þannig virkar bilið milli augnanna meira. Maskara varð auðvitað að nota og síðan var augnabrúnalínan skerpt með blýanti. Mikiö opin augu: Áberandi augnlok og langt bil á milli augna og augnabrúna gerir það að verkum að viðkom- FYRIR EFTIR andi virðist alltaf hálf hissa. Á móti þessu er unnið með því að bursta Ijósum augn- skugga yfir augnabeinið, nokkuð dökkum, en óræðum lit á augnlokin og enn dekkri lit eftir brún augnbeinsins og tii að forma augað - liturinn nær akkúrat hálfa vegu upp að augnabrúnunum frá augn- loksboganum. Þar sem augnlokið er sér- lega breitt þá er þar mikið pláss fyrir augnmálningu og hægt er að hafa breitt strik fyrir ofan augnhárin. Lína er sett fyrir ofan neðri augnhár. Djúpt liggjandi augu: Jafn- vel stór augu sem eru djúp- liggjandi geta virkað lítil. Hér var hvítur augnskuggi settur á augnlokin til að ná þeim fram. Einnig var settur Ijós litur í augnkrókinn af því bilið á milli augnanna er líka nokkuð stutt. Djúpliggjandi augu mynda í raun sinn eig- in skugga, þannig að skugg- inn sem settur var á augn- beinsbrún, miðja vegu upp að augabrúnum, var ekki mikill eða sterkur. Augnlína var dregin fyrir ofan efri augnhár. FYRIR EFTIR Byrjað á mjög fínni línu f augnkrókunum sem fór breikkandi. Þetta, ásamt maskara gerir mikið til að ná augunum úr felum. Stúlkan á myndinni er auk þess með fremur hátt enni og til að draga úr því eru augnabrún- irnar burstaðar upp. Þreytuleg augu: Þegar augu vísa niður á við þá virð- ist viðkomandi alltaf vera þreyttur. Þessu var breytt með því að setja skugga undir augnbeinsbrúnina sem endaði í línu sem vísar upp á við. Augnlokin voru höfð Ijós en augnlína dregin frá augn- krók út á enda augnloks þar sem línan breikkaði aðeins. Smávegis af augnskugga var sett undir neðri augnhár- in ásamt afar fínni línu, beint undir augnhárunum. FYRIR EFTIR Stór, þung augnlok: Það getur verið gott að vera með stór augnlok, af því þau er hægt að mála mikið. Aftur á móti geta þau virkað þung, þannig að augnsvipurinn FYRIR EFTIR virkar syfjulegur. Til þess að vega á móti þessum syfju- lega svip var settur Ijós augnskuggi á augnlokin, augnumgjörðin formuð með dekkri lit sem settur var á augnloksbrún og hálfa leið upp að augnabrúnum - síð- an breið, mjúk lína fyrir ofan efri augnhárin. Þegar augnhárin eru löng en bein, þá verður syfjulegi svipurinn enn meiri. Breyt- ingin sem verður við það að bretta augnhárin upp með augnhárabrettara og mála þau siðan strax á eftir með maskara, er hreint ótrúleg - eins og myndirnar sýna og sanna. FYRIR EFTIR Lítil augu: Jafnvel lítil augu geta virkað stór þegar búið er að mála þau á réttan hátt. Lítið fyrst á „fyrir“ myndina og síðan á muninn sem varð við það að Ijós augnskuggi var settur yfir allt augnlokið og síðan mynduð umgjörð með því að setja mikið af dökkum skugga - en mjúk- lega - frá augnloksbrún hálfa leið upp að augabrún- um. Einnig var sett örlítið af skugga undir neðri augnhár og að lokum Ijós litur undir augnbrúnirnar. Skoðið vand- lega myndina sem tekin var „á eftir“ og þá sést að þessi litur undir augnabrúnum ger- ir beinabygginguna umhverf- is augun ákveðnari. Maskari á augnhárin opnar augun enn betur og lætur þau virka stærri. Krumpuð augnlok: Forðist að nota sanseraða augn- skugga, þeir endurkasta birt- unni og augnlokin virðast enn hrukkóttari. Augnskugg- ar sem eru ekki sanseraðir gefa mýkra útlit og endur- varpa ekki birtunni á sama hátt, þannig að áherslan verður minni á augnlokin. Djúpir, reyklitaðir tónar eru bestir - en ekki setja of mik- inn lit. Notið maskara og eyeliner til að beina athygl- inni að augnhárunum og frá augnlokunum. Augnmálning fyrir þær sem nota gleraugu Það sem fyrst og fremst verður að hafa í huga til að vinna á móti glampanum í glerjunum er að nota nóg af augnmáiningu. Það þýðir alls ekki að nota þurfi mjög mikið og mjög sterka liti, en það þýðir heldur ekki að setja á sig mjög föla og gegnsæja eða sanseraða liti og ætlast til að þeir sjá- ist. Notið þess í stað djúpa og náttúrulega tóna - Ijósbrúna, drapplita, gráa - og Ijós- bleika eða Ijósdrapplita fyrir neðan augnabrúnir. Leggið áherslu á beinabyggingu með því að forma hana meö dekkri skuggum þannig að þrívídd myndist sem sést vel f gegnum gleraugun. Þegar gleraugnaumgjörð er valin er betra að velja hana ekki mjög litla þannig að hún virðist þrengja að augunum. Þvf meira af augnsvæðinu sem sést í gegnum gleraugun því svip- meiri verður augnmálningin. Gler, sem eru aðeins lituð, hylja aðeins hrukkótt augn- lok og bauga undir augun- um, en mjög ákveðnir litir, eins og fjólublár og bleikur, gera augnmálninguna svip- litla. □ 2. TBL. 1996 VIKAN 77

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.