Vikan - 01.05.1996, Síða 26
STYRKEARAIMLARNIR
Þær keppa um titilinn Fegurðardrottning íslands 1996 í lok maí og þá verður einnig
kosin Ljósmyndafyrirsæta íslands. Fegurðardrottningin fær þennan fagurrauða Peu-
geot 306 Style til afnota í heilt ár og þarf ekki aö greiða tryggingakostnað. Þessi
þriggja dyra bifreið er hlaöin aukabúnaöi og er verðmæti hennar um 1.249 þúsund
krónur. Staðalbúnaður bifreiöarinnar er m.a. öflug en sparneytin 1400cc vél, 75 hestöfl,
samlæsingar, vökva- og veltistýri, loftpúöi í stýri, hiti í framsætum, útvarp og segul-
band, álfelgur, samlitur stuöari og sitthvaö fleira.
GJAFIR TIL KEPPENDA
Fegurðardrottning íslands 1996 ekur
heim að krýningu lokinni á fagurrauðum
Peugeot 306 Style sem hlaðinn er auka-
búnaði. Séð hefur verið til þess að drottn-
ingin þurfi ekki að borga fyrir tryggingar af
bilnum það ár sem hún hefur hann til af-
nota. Það er Jöfur, helsti styrktaraðili
keppninnar í ár, sem stendur svona vel að
verki.
Heimsferðir gefa fegurðardrottníngunni
ferð fyrir tvo til Cancun í Mexíkó í hálfan
mánuð í sumar. Cancun liggur við Mexíkó-
flóa við stærsta kóralrif á vesturhveli jarðar
og hafa íslenskir ferðalangar hrifist af drif-
hvítum ströndum og tandurhreinum, heit-
um sjónum. Skemmtanalífið er þarna ekki
síður heitt. Drottningin mun búa á hinu
glæsilega Costa Real hóteli sem er aðal-
gististaður Heimsferða í Cancun. Er þetta
fjórða árið í röð sem Heimsferðir halda
uppi beinu leiguflugi frá íslandi til þessa
vinsæla áfangastaðar í Karíbahafinu.
Eggert feldskeri gefur drottningunni
fallegan pels sem sýndur verður gestum
fyrir krýninguna.
Stúlkurnar í þrem efstu sætunum fá að
gjöf frá tískuversluninni og brúðarkjólaleig-
unni Rómó í Keflavík kjólana, sem þær
koma fram í á krýningarhátíðinni, og jafn-
framt mun Rómó útvega þeim kjóla þegar
þær fara til keppni erlendis. Kjólarnir eru
frá Pronuptia í París. Þess má geta að
verslunin Conny við Laugaveg fer með
söluumboð í Reykjavík fyrir Rómó.
Sportís gefur öllum stúlkunum sundboli
frá O’Neill og velur auk þess O’Neill
stúlkuna 1996 úr hópi keppenda. Fær
stúlkan vel launuð fyrirsætustörf hjá fyrir-
tækinu næsta árið.
Þá mun íslensk Austurlenska velja
Ungfrú Oroblu úr hópi keppenda og gera
við hana fyrírsætusamning. Allir verða
keppendurnir leystir út með sokkabuxum
frá fyrirtækinu og stúlkunum í þrem efstu
sætunum gefur fyrirtækið sitthvað fleira.
World Class gefur stúlkunum í þrem
efstu sætunum árskort í líkamsræktina og
stúlkurnar í fjórða og fimmta sæti fá hálfs-
árs kort. Allar hinar stúlkurnar fá þriggja
mánaða kort. Keppendurnir eru orðnir
hagvanir í World Class eftir að hafa notið
þar þjálfunar fyrir fegurðarsamkeppnina.
World Class er afar vel búin æfingastöð en
þar er einn stærsti Cybex tækjasalur
landsins, svokölluð Pilatex tækni, squash-
salir, körfuboltasalir og gufubað og geta
viðskiptavinirnir valið á milli mismunandi
eróbikktíma. Þjálfun stúlknanna og gjafa-
kortin, sem World Class hefur lagt af
mörkum til íslandskeppninar, eru um einn-
ar milljónar króna virði.
Sólbaðsstofan í Grafarvogi litar
kroppa keppenda fram að keppni og gefur
síðan stúlkunum í þrem efstu sætunum
heilsárskort.
Face í Kringlunni gefur stúlkunum í
þremur efstu sætunum gjafakort og hefur
ennfremur skuldbundið sig til að farða
Fegurðardrottningu íslands 1996 á meðan
hún ber titilinn. Face býður upp á ótrúlegt
úrval af förðunarvörum sem höfða bæði til
almennings og fagfólks í förðun. Face er í
eigu förðunarmeistaranna Súsönnu Heið-
arsdóttur, Þórunnar Högnadóttur og Linu
Rutar og er hverri konur fengur í því að
geta notið persónulegrar ráðgjafar þeirra
við val á förðunarvörum í versluninni.
Verslunin Selena í Kringlunni gefur
stúlkunum undirfatnað frá Warner.
Allir fá keppendurnir gjafapakka frá
Snyrti- og nuddstofu Hönnu Kristínar
Didriksen og Fegurðardrottning íslands
fær að auki sérstakan fegrunarpakka eins
og Hanna Kristín kýs að kalla það.
Og loks fær drottningin Misaki perlufesti
og armband frá Eldhaka.
GESTIR FÁ GJAFIR
Það er ekki nóg með að stúlkurnar í
Fegurðarsamkeppni íslands fái góðar gjaf-
ir heldur fá gestirnir glaðning líka.
Við komuna á Hótel ísland verður tekið
á móti gestunum með Campari glóð frá
Karli Karlssyni. Þeir fá blóm frá Blómagal-
leríi, þeim hinum sömu og skreyta Hótel
ísland þetta kvöld og útbúa blómvendina
sem keppendurnir fá.
Gestirnir fá ávísun að gjöf frá Eldhaka,
en sú ávísun er upp á 25 prósenta afslátt
af öllum Misaki perluskartgripum. Og ís-
lensk Austurlenska lætur sig ekki muna
um að gefa gestum krýningarhátíðarinnar
af veikara kyninu Oroblu sokkabuxur.
ÞJÁLFUN OG SNYRTING
Hafdís Jónsdóttir, betur þekkt sem Dísa
í World Class, hefur séð um líkamsþjálfun
stúlknanna og lagt þeim lífsreglurnarnar
varðandi mataræði. Hefur æfingastúdíó
World Class nánast verið stúlkunum þeirra
annað heimili - og kannski óhætt að segja
að hitt heimilið hafi verið Hótel (sland þar
sem Alma Árnadóttir hefur annast
gönguþjálfun stúlknanna. Ölmu var falið
að stýra sviðsetningu keppninnar eftir að
hafa vakið aðdáun fyrir umsjón með Feg-
urðarsamkeppni Austurlands á dögunum.
Fyrir keppni hafa stúlkurnar heimsótt
Snyrti- og nuddstofu Hönnu Kristínar
Didriksen á þriðju hæð Kringlunnar. Þar
hafa þær, líkt og stúlkurnar í Reykjavíkur-
keppninni, fengið handsnyrtingu, plokkun
og litun. Þar er hægt að fá alla almenna
snyrti- og nuddþjónustu auk ýmissa eftir-
sóknarverðra sérmeðferða. Hægt er að
bóka sórstaka dekurdaga hjá Hönnu Krist-
ínu og njóta alls þess besta í notalegu um-
hverfi.
Hárgreiðsla stúlknanna fyrir krýningar-
kvöldið verður i höndum Hár Expó, þeirra
sömu og greiddu stúlkunum fyrir mynda-
töku Vikunnar. Fagfólk stofunnar, sem
verður í þessu hlutverki um kvöldið, heitir
Heiða, Óli Boggi, Inga Hrönn, Bára, Ingvi
og Gagga.
Um förðun stúlknanna á krýningarhátíð-
inni sér FACE í Kringlunni, þær Súsanna
og Þórunn ásamt aðstoðarstúlkum sínum
en þær heita Anja, Ásdís Birta og Guðrún
Inga. Og að sjálfsögðu nota þær snyrtivör-
urnar frá Face Stokkholm.
Og sem fyrr segir er fagur húðlitur
stúlknanna ekki síst að þakka Sólbaðs-
stofunni í Grafarvogi. □
26 VIKAN 2. TBL. 1996