Vikan - 07.05.1998, Síða 15
manninum mínum þótt ég
elskaði hann og hann væri mér
ákaflega góður. Einhverju
sinni fór ég ein í partý og þá
var mér nauðgað í annað sinn.
Ennþá fannst mér ég eiga það
skilið, að ég hefði á einhvern
hátt hagað mér syndsamlega
og stuðlað að því sjálf. Synd-
in loddi alltaf við mig. Ég sagði
manninum mínum ekki frá
nauðguninni sem var auðvit-
að rangt.Hann var afskaplega
vel gefinn og góður maður og
hefði hjálpað mér að taka á
því. Þess í stað bjó ég til svart
skúmaskot í sálu minni og þar
geymdi ég minningar um mis-
notkun og nauðganir.
Ég var sautján ára þegar ég
fyrst sagði frá misnotkuninni.
Eg var á leið út á land ásamt
vinkonu minni, við ætluðum
meðal annars að koma við í
kauptúninu hj á frænku minni.
Á leiðinni þyrmdi allt í einu
yfir mig, minningjarnar
streymdu fram. Ég stöðvaði
bflinn, fannst veröldin hrynja
yfirmig. Égvarsvomiðurmín
að vinkona mín, sem skildi
hvorki upp né niður, varð
dauðhrædd um mig. Að lok-
um sagði ég henni allt af létta.
En ég sagði það engum öðr-
um og alls ekki foreldrum mín-
um. Ég óttaðist viðbrögð
þeirra.
Það var ekki fyrr en tuttugu
árum seinna sem ég hafði
kj ark til þess að rifja uppþæssa
atburði í annað sinn. I fjöl-
skyldu minni eru margir alkó-
hólistar, ég hef alla tíð verið
mjög meðvirk og fór á nám-
skeið fyrir aðstandendur. Það
varð til þess að ég fór að rifa
upp æsku mína og skoða líf
mitt og að lokum trúði ég góðri
vinkonu minni fyrir leyndar-
málum mínum. Misnotkun-
inni, nauðgununum og erfið-
leikum mínum með að lifa
eðlilegu lífi með karlmanni.
Þegar þarna var komið sögu
átti ég hjónaband og margar
sambúðir að baki. Vinkona
Vilt þú deila sögu þinni með
okkur? Er eitthvað sem hefur
haft mikil áhrif á þig. jafnvel
breytt lífi þínu? Þér er vel-
komið að skrifa eða hringja til
okkar. Við gæturn fyllstu nafn-
levndar.
Heimilisfangið er: Vikan -
„Lífsreynslusaga", Seljavegur
2,101 Reykjavík,
síinsvari: 515 5690
r Lífsreynslusaga
mín sagði mér frá Stígamót-
um og ráðlagði mér að leita
þangað. Það tók mig langan
tíma að safna kjarki til að fara
áfyrsta fundinn. En eitt kvöld-
ið sat ég ein heima og fór í
gegnum erfiðar minningar.
Það kvöld tók ég ákvörðun,
ég leitaði til Stígamóta og var
í meðferð þar í tvö ár. Þang-
aðvargottaðkoma.Þarstarfa
yndislegar konur sem gefa sér
tíma til að hlusta. Ég fékk
einkaviðtöl og var í hópmeð-
ferð. Það var oft sársaukafullt
og erfitt, sérstaklega var erfitt
að hlusta á hinar konurnar í
hópnum segja sögu sína. Mér
fannst saga mín mjög saklaus
miðað við margt það sem ég
heyrði á hópfundunum. En
mér var sýnt fram á að þannig
mætti ég ekki hugsa, í þessum
efnum er ekkert sem heitir
meira eða minna, öll misnotk-
un er jafn skaðleg.
Meðferðin hjá Stígamótum
breytti lífi mínu. Það var ótrú-
legur léttir að geta sagt sögu
mína og horfast í augu við
raunveruleikann. í dag líður
mér vel. Áður kveið ég hverj-
um nýjum degi. Það er stór-
kostleg tilfinning að vera laus
við gamla morgunkvíðann, að
kvíða því ekki að vakna og
mæta til starfa. Ég gæti þess
að lifa heilbrigðu lífi, fer
snemma að sofa og stunda
heilsurækt. Ég á yndislegt
barn og er í góðu sambandi
við það.
Ég hef smátt og smátt hætt
að sjá sjálfa mig sem synduga
manneskju sem átti skilið að
veranauðgaðogmisnotuð.En
ég er ennþá rugluð í sambandi
við kynlíf, einhvers staðar eru
hömlur. Mér finnst gott að
vera með karlmanni, en hef
aðeins einu sinni, einhvern
tímann fyrir langalöngu, feng-
ið kynferðislega fullnægingu.
Eiginmaður frænku minnar
er dáinn. Ef ég í dag fengi að
mæta honum augliti til auglit-
is veit ég að hann viðurkenndi
ekki að hafa gert rangt. Ég er
viss um að hann segði mig hafa
misskiliðhegðunsína.aðþetta
hafi aðeins verið leikur. Ég
veit líka að ég mun aldrei geta
fyrirgefið honum. Menn, sem
misnota lítil börn, eru glæpa-
menn. Enn þann dag í dag get
ég ekki hlustað á fréttir af mis-
notkun án þess að finna til í
sál og líkama. Misnotkun á
börnum hefur alltaf viðgeng-
ist. Um allt land eru konur sem
lifa með hræðilegar og sárar
minningar. Ég vona að þær
beri gæfu til að stíga skrefið,
sem ég tók, geri sér grein fyr-
ir mikilvægi þess að leita sér
hjálpar. Án hjálpar verðum
við fórnarlömb ævilangt. ■
Lesandi segir l’oruiini
Stefánsdóltiir siign sína