Vikan - 07.05.1998, Síða 24
Umsjón: Sigríður Arnardóttir
Texti: Anna Kristine Magnúsdóttir
Myndir: Gísli Egill Hrafnsson
H-J
Kristbjörg Ásta
mætti ómáluð og
ógreidd á snyrti-
stofuna Salon Ritz
að morgni þriðju-
dags, nýkomin af
sjúkrahúsi.
Og svona leit hún
út eftir meðhöndl-
un hjá hárgreiðslu-
og snyrtifræðingi.
Upplífgandi fyrir
sálarlífið eftir erf-
iða dvöl á sjúkra-
húsi!
Fyrirsœtan , okkar heitir
Kristbjörg Asta Ingvars-
dóttir og er 51 árs að aldri.
Hún var í stórri aðgerð
hálfum mánuði áður en
myndirnar voru teknar, en
segir fyrirsœtuhlutverkið
bara hafa hresst sig heil-
mikið.
Kristbjörg Ásta segist
gjarnan klæðast mjög
sterkum litum: “Ég er
litafrík og vil hafa upp-
lífgandi liti í kringum
mig. Appelsínugulur og
skærir litir eru mínir litir,
ekki síst skærbláir. Ann-
ars get ég borið flesta liti
nema jarðarliti.”
Kristbjörg Ásta segist
hafa verið frekar íhalds-
söm varðandi hárið á sér
og til dæmis haft þver-
topp frá eins árs aldri -
þar til fyrir einu ári:
“Þess vegna vildi Auður
hárgreiðslukona ekki
klippa á mig topp aftur!
Það hefur tekið mig
Brúðkaupsdagurinn 4. apríl 1998. Það er aldrei of seint að finna hamingjuna!
þennan tíma að ná hár-
inu jafn síðu. Ég varð
gráhærð á einum degi
þegar ég var 38 ára og
hef litað hárið síðan með
dökkum lit. Eftir því sem
aldurinn færist yfir mig
hef ég þó farið að lýsa
hárið.”
Kristbjörg segist nota
andlitsfarða dagsdaglega
og segist hafa verið mjög
ánægð með útkomuna
eftir að Guðrún snyrti-
fræðingur málaði hana
með nýju litunum. Krist-
björg hefur verið kennari
við Selásskóla frá því
hún lauk kennaraprófi
árið 1991. Þar áður starf-
aði hún sem leikskóla-
kennari og ætlar einmitt
núna, 22. maí, að halda
upp á 25 ára útskriftaraf-
mæli frá Fóstruskóla
Sumargjafar.
Og Kristbjörg Ásta er
lifandi dæmi þess að
rómantíkin blómstrar,
sama á hvaða aldri fólk
er. Hún hafði verið ein-
stæð móðir þriggja
drengja í ellefu ár þegar
hún kynntist Per
Ekström frá Álandseyj-
um í janúar 1996. Ástin
24