Vikan - 07.05.1998, Side 45
svart hár, glaðleg, hlær oft svo
skín í skjannahvítar tennurn-
ar. Kona sem gæti sómt sér
hvar sem væri. Hvað fær s von a
konu til að velja sér starf sem
einkennist af niðurlægingu?
Allir líta niður á vændiskon-
una; viðskiptavinirnir, mellu-
dólgarnir, lögreglan, þjóðfé-
lagið í heild. Jessica segir skýr-
inguna einfalda. „Þegar ég
kom til Spánar reyndist mér
erfitt að fá vinnu. Ég hef enga
menntun, einu störfin sem
mér stóðu til boða voru illa
launuð þjónustu -og hrein-
gerningarstörf. Launin nægðu
varla fyrir húsaleigu og dag-
legum þörfum. í Afríku bjó ég
til skartgripi og seldi, það
gekk ekki upp hér. Einn góð-
an veðurdag ákvað ég að ég
vildi ekki vera fátæk svört
kona í auðugu landi. Ég get
eignast dýr föt og fallega hluti
með því að stunda vændi. En
aðallega safna ég peningum
inn á bankareikninginn minn.
Sem vændiskona þéna ég oft
ótrúlega mikið. Kvöldin eru
misjafnlega góð, stundum fæ
ég ekkert. En í hverjum mán-
uði get ég lagt fyrir um tvö-
hundruð þúsund peseta
(u.þ.b. hundrað þúsund krón-
ur), oftast eitthvað meira.
Mínar aðstæður eru aðrar en
kvennanna sem eru hérna
með mér. Ég er ung, enginn
melludólgur stjórnar mér, ég
ræð sjálf hvernig og hversu
mikið ég vil vinna. Eftir fimm
til sex ár á ég peninga til að
kaupa mér hús. Þá ætla ég að
hætta.“
Þvottapokaforleikurinn
Það mætti álíta sem svo að
vændi sé deyjandi starfsstétt á
Spáni miðað við aldur kvenn-
anna á horninu. Jessica segir
svo ekki vera. „Venjulega
byrja vændiskonur á nætur-
klúbbunum, ekki á götunni,
og eru því minna áberandi.
Staðreyndin er sú að það er
mikið um mjög ungar vændis-
konur, alveg niður í átján ára.
Margar eru háðar eiturlyfjum
og flestar vinna undir stjórn
melludólga. Fyrsta árið, sem
ég stundaði vændi, vann ég á
klúbbunum. Þar er meiri pen-
inga að fá og einu sinni fékk
ég hundrað þúsund peseta fyr-
ir kvöldið. En ég vil frekar
þéna minna og vinna á göt-
unni. Það hljómar ef til vill
undarlega, en það er hættu-
minna. Við erum saman í hóp,
hér er mikil umferð bíla og fót-
gangandi. Þeir, sem leita til
okkar, eru yfirleitt giftir menn
á leið heim úr vinnu. í klúbb-
unum vinnum við á nóttunni,
viðskiptavinirnir eru yfirleitt
drukknir og oft hættulegir.
Þetta er ástæða þess að ég vil
frekar stunda götuvændi."
En hvernig tilfinning er það
að standa á götuhorni, fara
með ókunnugum mönnum
upp á hótelherbergi og það
fleiri en einum eða tveimur
sama kvöldið? „Ég skammast
mín ekki fyrir atvinnu mína,“
segir Jessica ákveðin. „Ég
held að allar konur séu vænd-
iskonur í eðli sínu. Hvernig
gætum við annars látið vel að
mönnum sem við ekki þekkj-
um, hittum aðeins einu sinni
og aldrei meir? Það eru engin
tilfinningaleg bönd á milli
okkar. Vændiskonan verður
að láta sem henni þyki gott að
vera með manninum meðan
hann eyðir með henni stuttri
stund. Til þess að geta það
verður hún að leika. Sá
leikur er ekki lærður í
leiklistarskólum. Þetta
er aðeins mögulegt
vegna þess að þessi hegð-
un er í blóði hverrar konu.
Jessica hefur enga fasta við-
skiptavini. „Reyndar koma
tveir eða þrír menn nokkuð
reglulega, en yfirleitt eru
þetta ekki sömu mennirnir.
Skýringin er sú að menn, sem
á annað borð leita til
vændiskvenna, eru í leit að til-
breytingu, leita því aðeins
einu sinni til sömu konunnar.“
Hún hlær við spurningunni
hvort hún hafi orðið fyrir of-
beldi. „Ég hef einu sinni lent
í slagsmálum. Einn af mínum
fyrstu viðskiptavinum neitaði
að borga. Ég varð svo reið að
ég réðist á hann. Það var ekki
fyrr en hann var farinn að ég
áttaðimigáaðégvaraðbjóða
hættunni heim. Maðurinn
varð hissa. Hann fór samt án
þess að borga. Annars er ég
ekki hrædd við þessa menn, en
dauðhrædd við sjúkdómana
sem fylgja starfinu. Mörgum
er illa við að nota smokk, en
það geri ég að algjöru skilyrði.
Menn eru ótrúlega kærulaus-
ir, segja að ég geti treyst því
að þeir séu ekki smitaðir af al-
næmi eða öðrum sjúkdómum.
Það er eins og þeir séu ekkert
hræddir um að ég geti smitað
þá. Oft finnst mér starfið
ógeðslegt. Það er ótrúlegt
hvað sumir mennirnir eru
óhreinir. Stundum geri ég það
að nokkurs konar forleik að
þvo kynfæri þeirra og enda-
þarm. Á slíkum stundum hata
ég þetta starf. Tvisvar á ári fer
ég í nákvæma læknisskoðun.
Læknirinn minn veit að ég er
vændiskona, hann gætir þess
að taka prufur og sýni til að
ganga úr skugga um að ég sé
ekki smituð.“
Draumurinn um framtíðina
Klukkan er að verða níu og
mikil umferð um götuna.
Jessica fær tvo viðskiptavini
með stuttu millibili. Virðulega
klæddan mann á miðjum aldri
og ungan, ósnyrtilegan, hálf-
gerðan ógæfumann. Ekki
ólíklegt að í hans tilfelli þurfi
Jessica að beita þvottapoka-
forleiknum. Þegar hún kemur
til baka spyr ég um skoðun
hennar á hjónabandi. Hún
segist hafa verið gift áður en
hún varð vændiskona. Vill
ekki tala um það, segist hafa
verið óhamingjusöm. „Ég á
kærasta. Fyrstu kynni mín af
honum voru þau að hann kom
á næturklúbbinn til þess að
leita sér að vændiskonu. Ég
varð fyrir valinu og síðan höf-
um við verið saman. Ég bý
ekki með honum og ætla ekki
að giftast honum. Hann er svo
sem ágætur, en hann vinnur á
pizzastað og hefur lág laun. Ég
vil hafa það gott og lifa vel í
mínu eigin húsi. Þess vegna er
ég vændiskona. Einhvern tím-
ann langar mig að eignast
kláran, gáfaðan og góðan
mann sem ég elska, en ekki
fyrr en ég er hætt í þessu starfi.
Og ég er harðákveðin í að
eignast börn, hvort sem ég
gifti mig eða ekki.“ Ég spyr
hvernig hún myndi bregðast
við ef hún eignaðist dóttur
sem færi að stunda vændi.
„Það kemur aldrei til,“ svarar
hún ákveðin. „Þegar börnin
mín hafa aldur til ætla ég að
segja þeim frá lífi mínu sem
vændiskona og draga ekkert
undan. Ég ætla að segja þeim
hvað ég þjáðist oft mikið, láta
þau skilja að ég hafi stundað
þetta starf tímabundið til að
geta veitt mér og fjölskyldu
minni góða hluti í framtíðinni.
Nei, ég get fullvissað þig um
að börnin mín munu aldrei
þurfa að vinna fyrir sér á göt-
unni.“
Tíminn sem ég hafði keypt
af Jessicu er á enda.
Vinnudeginum er
lokið, hún er
þreytt. Á dögum
Rómverja taldist
sú kona vændiskona
sem stundaði kynlíf fyrir
peninga, fyrir almenning, án
ánægju. Kynni mín af Jessicu
staðfesta að sú skilgreining á
við enn þann dag í dag. Ég
horfi á eftir henni þar sem hún
gengur burtu í myrkrinu og
vona að draumar hennar ræt-
ist; að hún eigi eftir að eignast
hús, finna manninn sem hún
elskar og eignast með honum
börn og buru. Líklega verður
að segja sem svo að hún hafi
unnið fyrir því. ■
Ég held að allar konur séu vænd-
iskonur í eðli sínu.
45