Vikan - 07.05.1998, Síða 49
Hverju svarar læknirirtfi?
Spurningar má senda til
“Hverju svarar læknirinn?”
Vikan, Seljavegi 2, 101 Reykja-
vík. Farið er með öll bréf sem
trúnaðarmál. Vinsamlegast látið
nafn og heimilisfang fylgja með
en bréf eru birt undir dulnefn-
Sælgætisát á kvöldin
Ég er 37 ára og hef alltaf verið
grönn og í ágætu formi. Nú er ég
farin að þyngjast of mikið að
mínu mati og ástæður veit ég
vel. Ég gef mér ekki tíma til að
hreyfa mig nóg og svo borða ég
svo mikið á kvöldin. Þegar ég er
að ljúka kvöldmatnum fer ég að
hugsa um hvaða snarl ég geti
fengið mér með sjónvarpinu. Ég
veit að þetta er ekki rétt og ég
veit líka að ég á að hætta að
borða áður en ég verð
pakksödd. en það er eins og ég
ráði ekki við þetta. Hvað er til
ráða?
Ein með samviskubit
yéistu hvað, þú hefur allt of
mikið að gera! Á ég að
segja þér leyndarmál? Þú kemst
yfir alveg jafnmikið þótt þú ger-
ir það aðeins hægar og með
minni spennu. Líkami þinn er á
„adrenalín-trippi”. Þú stoppar
sjálfsagt ekki allan daginn og
hvernig ætlastu til að líkaminn
„viti” að nú eigi að stoppa þegar
þú kemur heim. Hugsaðu svo
um sjálfa þig, borðaðu góðan
morgunmat, hollan hádegismat
og sestu niður til þess að borða,
minnkaðu eða hættu í kaffinu
og koffeindrykkjunum, borðaðu
fyrr þegar þú kemur heim á
kvöldin, ef þú þarft snakk hafðu
það þá ekki kex og kökur, not-
aðu ávexti og grænmeti, það er
miklu skemmtilegra. Hreyfðu
þig, göngur eða sund er meira
en nóg, en gerðu það þannig að
þú hafir gaman af því þá ferðu
aftur og aftur. Lærðu slökun,
eða farðu í jóga. Stoppaðu í 2-3
mínútur á dag og slakaðu alveg
á, þú getur gert þetta í stólnum
þínum eða.inni á kaffistofu eða,
ef allt um þrýtur, inni á klósetti.
Einföld aðferð er að sitja með
beint bak og hendur í kjöltu,
loka augum og sjá fyrir sér fal-
legan eða skemmtilegan stað. Á
andartaki fellur spenna líkam-
ans. Prófaðu.
Porsteinn
Bakið að gefa sig
Vinnu minnar vegna þarf ég
að ferðast mikið, bæði innan
lands og utan. Það er margt gott
um það að segja nema það að ég
er svo slæmur í bakinu og næst-
um því alltaf þegar ég vakna á
hótelherbergjum er eins og bak-
ið á mér sé hreinlega að klofna í
tvennt, þvert yfir mjóbakið.
Þetta lagast þegar fer að líða á
daginn en er samt orðið veru-
lega þreytandi. Ég hreinlega á
stundum erfitt með að draga
djúpt andann skömmu eftir að
ég vakna. Er þetta eðlilegt?
G.G.
Tæja, nú hefur þú allt of mik-
J ið að gera. Hvenær hvíldir
þú þig síðast? Fórst í gott nudd
og sánabað á eftir? Hreyfir þú
þig reglulega eða ertu bara með
strákunum „old boys” í bolta-
leik einu sinni í viku. I langflest-
um tilvikum er þreyta í baki or-
sökuð af of miklu álagi hjá ungu
fólki, sérstaklega körlum, erfið-
ur yfirmaður, fjárhagserfiðleik-
ar og samskiptaerfiðleikar við
stórfjölskyldu. Þú verður að
hreyfa þig reglulega, þá á ég við
leikfimi, sund og göngur. „Old-
boys” boltaleikur er góður fyrir
spennu og félagsskapinn en
ekkert sérstakur fyrir líkamlega
burði. Farðu í nudd hjá góðum
nuddara en þá er hægt að finna
um allan bæ. Við þrálátum
verkjum er þó rétt að leita til
læknis til að útiloka sjaldgæfari
hluti. Sjúkraþjálfarar og
kírópraktorar skoða fólk mjög
vel og getur verið gott að leita
til þeirra um álit og meðferð.
Þorsteinn
Hvíld óskast
Nú er komið nóg - hugsa ég
stundum. Ég hef verið í erfiðis-
vinnu alla mína tíð, unnið í
þvottahúsi um árabil og á síð-
ustu misserum hef ég séð um
veikan eiginmann þegar heim er
komið. Ég er með stöðuga
vöðvabólgu og er farin að fá
hausverk í hverri viku, er með
bjúg á höndum og fótum og al-
mennt er ég of þreytt til að gera
nokkuð eftir kvöldmat. Ég hef
verið að hugsa um að fá aðstoð
inn á heimilið einhvern tíma ef
ég kæmist í frí t.d. í Hveragerði
eða á sjúkrastofnun. Er eitthvað
slíkt í boði fyrir fólk í minni
stöðu, eitthvað sem ekki kostar
mikla peninga?
Þ.B.
7sræra Þ.B. Aðstæður þínar
JLVeru því miður langt frá
því að vera einsdæmi. Nokkrar
vikur í Hveragerði hjá NLFÍ
myndu gera stórkostlega hluti
fyrir þig, bæta þig líkamlega,
andlega og sálarlega og gera þér
kleift að fást við öll þessi mis-
munandi hlutverk sem fylgja
þér í lífinu. Þú ert ein af þessum
mörgu ofurkonum þessarar
þjóðar sem halda áfram og berj-
ast hvað sem tautar og raular.
Heilsugæslustöðvar veita mikla
aðstoð og leiðbeiningar um úr-
lausnir. Gott er að virkja stór-
fjöldskylduna og fá börnin til að
hlaupa undir bagga tímabundið,
þau geta vel skipt með sér verk-
um. Reynsla mín er hins vegar
sú að konur eins og þú vilja síð-
ur vera að biðja börnin um
hjálp, þið viljið frekar bjarga
hlutunum sjálfar. Prófaðu samt
að spyrja þau. Sjúkrasjóðir
verkalýðsfélaganna, sérstaklega
verkakvennafélaganna hlaupa
mjög oft undir bagga með
greiðslur fyrir dvöl í Hveragerði
og þeir hjá NLFI veit ég að eru
mjög liðlegir. Ég hvet þig til að
fara sem fyrst. Gangi þér vel.
Þorsteinn
Rauð augu
Við erum nokkrar sem
vinnum saman og höf-
um fengið nóg af því að
vera með blóðhlaupin
augu og þurra húð í
vinnunni. Við erum á
stórum vinnustað þar
sem loftið er þurrt og
aðstaðan ekki nógu góð.
Það er eins og að berja
hausnum í stein að óska
eftir breytingum á að-
stöðunni svo við biðjum
þig að gefa okkur góð ráð.
Hausverkur, þurrkur og rauð
augu er ekki eitthvað sem við
viljum lifa með lengur. Áttu ráð
handa okkur?
Samstafskonur
T^etta er húsasótt og er al-
JT gengt vandamál. Einkenn-
in eru mörg en algengt er að
finna fyrir þreytu, pirringi eða
bólgu í augum, nefi og ennis- og
kinnholum, þurrki og kláða í
hálsi og á húð og höfuðverkjum
og þreytu. Sumir segjast verða
uppstökkir og önugir á vinnu-
stað og koma síðan heim þreytt-
ir og síkvartandi. Ekkert eitt
veldur en þetta stafar í mjög
mörgum tilvikum af slæmu lofti,
oftast í tengslum við loftræsting-
ar. Þetta er vel þekkt í flugvél-
um þar sem sama loftið er í
stöðugri hringrás í vélinni til að
spara flugfélögum súrefnisflutn-
inga og eldsneyti. Oþægindi í
vitum og höfuðverkur eru mjög
algeng vandamál í flugi. Það á
að draga úr endurhringrás lofts
og nota meira af hreinu lofti.
Rakatæki og jónunartæki reyn-
ast mjög mörgum gagnleg við
þessum einkennum ykkar en
það verður að hugsa vel um
tækin. Fleiri þættir geta komið
til eins og bón og hreinsiefni,
flúrlýsingar, suð í tækjum og út-
geislun frá tölvuskjám. Skipta
má út flúrperum og nota hlíf
fyrir tölvuskjái.
Þorsteinn