Vikan - 18.01.1999, Síða 50
Mafía / mat
og kaffí
Viðtal: Halla Bára Gestsdóttir. Myndir: Gunnar Sverrisson.
Að eiga sér vini er mikiivægt.
Vini sem maður hittir reglu-
lega, spjallar við, skemmtir sér
með. Það veit „Mafían“, vin-
kvennahópur á Akureyri, sem
samanstendur ekki eingöngu af
tveimur eða þremur vinkonum,
heldur allt upp í sextán vinkon-
um, sem hittast við hvert tæki-
færi sem gefst. Vikan sat einn
„Mafíufund“ og fékk að skjóta
inn nokkrum spurningum.
Þær eru vinkonur úr ýmsum áttum,
þarna eru þrjár systur, frænkur og
æskuvinkonur. -Litlir hópar sem
tengjast saman í einn stóran hóp sem
myndar „Mafíuna“. Nafnið á hópinn
kom nokkurn veginn af sjálfu sér. Ital-
íuskotið enda hefur meirihluti hópsins
dvalið á Ítalíu til lengri tíma. Þaðan
kemur einnig áhuginn á því að hittast
yfir girnilegum mat og góðu kaffi.
Ef vinkonurnar ná að hittast allar þá
eru þær sextán en það er ekki oft sem
það gerist því hópurinn er dreifður.
Nær allt frá Akureyri og Reykjavík til
Ítalíu, Englands og Chíle og þær sem
ekki ná að vera með sökum fjarveru,
hafa þá skyldu að skrifa bréf til hópsins
sem lesin eru upp við hátíðlega athöfn
fyrsta föstudag í hverjum mánuði, eða
aðra daga þegar hópurinn hittist.
Æi, pessi mafíuhópur
Þegar Vikan fór til að hitta vinkon-
urnar voru tíu þeirra saman komnar
heima hjá henni Astrid. Þetta voru
Oddrún, Bryndís, Laufey, Vala, Begga,
María, Helga Gunnur, Inga Þöll og
50