Vikan


Vikan - 01.02.1999, Qupperneq 4

Vikan - 01.02.1999, Qupperneq 4
Kæri lesandi... egar ég byrjaði að búa, var ástatt hjá mér eins ogflestum þegar þeirflytja að heiman ífyrsta skipti, lítil auraráð og námslána- skuldir á bakinu. Maður var því ekkert að fara inn ífínustu versl- anirnar til að kaupa húsgögn og „mublera" upp hjá sér. Maður eignaðist hlutina smátt og smátt; fékk húsgögn héðan og þaðan. Eitthvað í ódýrari kantinum var keypt inn, gamli ískápurinn hennar ömmu varþeginn að láni og leðursófi með langa fortíð var tekin í notkun. Eins og flestir sem standa í þessum sporum gerði maðurþað besta úr þessu. Það var svo seinna sem ég gat farið að kaupa til heimilisins og innrétta eftir mínu höfði. Og mikið varþað gaman aðfara í verslun og spá í hvað hentaði mér, hvernig vildi ég innrétta heimili mitt. En eftir hverju fer maður? Ekki eftir nýjustu straumum og stefnum, þetta má ekki vera of tískubundið því hlutirnir verða að endast og ekkifer maður eftir myndum í blöðum því heimilið á að vera persónulegur staður. Það er einhver rödd innra með manni sem veit nákvœmlega hvað hehtar. Maður gengur beint að ákveðn- um sófum en horfir ekki á aðra. Skyldu stjörnurnar vera þarna að verki? Getur verið að heimili hrútsins sé ólíkt heimili meyjunnar? Þetta er skoðað í grein á bls. 28. Eitt er víst að þótt ég sé Ijón vel ég ekki röndóttan sófa á mitt lieimili en von- andi finnið þið margt, sem á við ykkur, ígreininni. Það er líka gaman að spá í hvaða manngerð maður er, þegar kemur að því að innrétta heimilið. Flokkast maður undir það að vera tískufrömuður, könnuður eða eitthvað afhinum flokkunum sem nefndir eru á bls. 29. Vonandi hafið þið gaman afþessari grein. íblaðinu er líka margt annað efni sem viðkemur persónuleikanum. T.d. persónuleikaprófið á bls. 16 og greinin um það að kœkir komi upp um mann á bls. 18. Og eins og vera ber í Vikunni erfjölmargt efni í boði sem tengist heimilinu. T.d. heimsókn til Sigríðar Ellu Magnúsdótt- ur, óperusöngkonu í London, á bls. 8. Hún á tvö fullbúin heimili, annað í London og hitt í Reykjavík. Og Marentza Poul- sen kennir okkur að útbúa fingramat sem á örugglega eftir að gera stormandi lukku í boðum víða um land. Þessir réttir hennar eru bæði hollir og girnilegir. Aföðru efni má t.d. benda á greinina um giftar konur sem reyna við lesbíur bls. 50, viðtal við leikkonuna Elvu Ósk Ólafsdóttur sem gert hefur margt skemmtilegt um dagana t.d. lært á bassa, tekið þátt í fegurðarsamkeppni og tekist á við krefjandi hlutverk á fjölunum. Haldið endilega áfram að hafa samband ef þið viljið rœða efni blaðsins eða koma með hugmyndir eða smásögur. vikan@frodi. is Njóttu Vikunnar Sigríður Arnardóttir ritstjóri Jóhanna Harðardóttir Þórunn Stefánsdóttir ritstjórafulltrúi blaðamaður Kristín Guðmunds- dóttir auglýsinga- stjóri Guðmundur Ragnar Steingrímsson Grafískur hönnuður VSfam Útgefandi Fróöi Seljavegur 2, Sími: 515 5500 Fax: 515 5599 Stjórnarformaöur Magnús Hreggviðsson Aöalritstjóri Steinar J. Lúðvíksson Sími: 515 5515 Framkvæmdarstjóri Halldóra Viktorsdóttir Sími: 515 5512 Ritstjóri Sigríður Arnardóttir Sími: 515 5582 Vikan@frodi.is Ritstjórafulltrúi Jóhanna Harðardóttir Sími: 515 5637 Blaðamaöur Þórunn Stefánsdóttir Sími: 515 5653 Thorunn@frodi.is Auglýsingastjóri Kristin Guðmundsdóttir Sími: 515 5628 Vikanaugl@frodi.is Ljósmyndarar Bragi Þór Jósefsson Gísli Egill Hrafnsson Sigurjón Ragnar Sigurjónsson Gunnar Gunnarsson Hreinn Hreinsson Grafískur hönnuöur Guðmundur Ragnar Steingrímsson Verö i lausasölu Kr. 399,-. Verö i áskrift Kr. 329,-. Pr eintak Ef greitt er með greiöslukorti Kr. 297,-. Pr eintak Unniö í Prentsmiöjunni Odda hf. Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir Áskriftarsími: 515 5555

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.