Vikan - 01.02.1999, Side 36
Prjónað úr
SMMT
100% ull
Peysa með sjalkraga
Upplýsingar um hvar Tinnugarnið fæst í
síma: 565-4610
STÆRÐIR Á FLÍKINNI SJÁLFRI:
2-4 6 8-10 12 ára
Yfirvídd: 80 87 94 lOlsm
Sídd: 43 48 53 58 sm
Ermalengd: 29 33 37 43 sm
Handvegur: 18 20 22 24 sm
SMART: Fjöldi af dokkum
Fjólublátt nr. 857/5173 ' 5 5 6 6
Appelsínuyrjótt nr. 835/4036 2 3 3 3
Gulyrjótt nr. 818/2526 3 3 3 4
Blátt nr. 869/6444 1 2 2 2
Einnig er hægt að nota PEER GYNT
ADDI PRJÓNAR FRÁ TINNU:
60 eða 80 sm hringprjónn nr. 2.5 (stroff)
Mælum með BAMBUS
60 eða 80 sm hringprjónn nr. 3.5 (bolur)
60 sm hringprjónn nr. 3 (sjalkragi)
40 sm hringprjónn nr. 3.5 (ermar)
Sokkaprjónar nr. 2.5 og 3.5 (ermar)
Trétala: 1 stk.
Góðir fylgihlutir:
Merkihringir, prjónanælur,
þvottamerki fyrir garnið.
PRJÓNFESTA Á SMART:
22 lykkjur í sléttu prjóni á prjóna nr. 3.5
= 10 sm.
Ef of laust er prjónað þarf fínni prjóna.
Ef of fast er prjónað þarf grófari prjóna.
BOLUR:
Fitjið upp með fjólubláu á hringprjón nr.
2.5, 156-172-188-200 lykkjur. Prjónið
stroff 2 sl. 2 br. í hring 5-5-6-6 sm. Prjón-
ið þá 1 prjón sléttan og aukið í 20-20-20-
24 lykkjum með jöfnu millibili = 176-192-
208-224 lykkjur. Setjið merki í báðar
hliðar með 89-97-105-113 lykkjur á fram-
stykki og 87-95-103-111 lykkjur á bak-
stykki. Skiptið yfir á hringprjón nr. 3.5.
Prjónið munstur eftir teikningu, byrjið að
prjóna við örina sem sýnir rétta stærð.
Þegar allur bolurinn mælist 26-30-34-38
sm eru felldar af 9-11-11-13 lykkjur í
miðju að framan, ljúkið við prjóninn og
slítið síðan frá í hliðinni. Byrjið nú að
prjóna við lykkjurnar sem felldar voru af,
fitjið upp 4 lykkjur yfir lykkjunum sem
felldar voru af (lykkjur sem alltaf eru
prjónaðar brugðnar og klippt er upp í
síðar). Prjónið munstur í hring eins og
áður en nú er tekin úr 1 lykkja báðum
megin við brugðnu lykkjurnar í miðju að
framan á fjórða hverjum prjóni 9-9-10-10
sinnum. Þegar mælast 43-48-53-58 sm er
fellt af.
ERMAR:
Fitjið upp með bláu á sokkaprjóna nr.
2.5,40-44-44-48 lykkjur. Prjónið stroff 2
sl. 2 br. 2 hringi. Skiptið þá yfir í fjólu-
blátt og prjónið stroffið áfram þar til það
mælist allt 5-5-6-6 sm. Prjónið 1 hring
sléttan og aukið út í 56-60-64-68 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna nr. 3.5. Prjón-
ið munstur eftir teikningu, teljið út frá
miðju á erminni hvernig á að byrja á
munstrinu. ATHUGIÐ: Síðasta lykkjan
á hringnum er alltaf prjónuð brugðin =
merkilykkja. Aukið í 1 lykkju báðum
megin við merkilykkjuna með 2 sm milli-
bili þar til 80-88-96-104 lykkjur eru á
erminni. Þegar öll ermin mælist 29-33-
37-43 sm er prjónaður 1 hringur sléttur
með fjólubláu. Snúið erminni við og
prjónið 5 hringi slétta (kantur). Fellið af.
FRÁGANGUR:
Mælið breidd ermarinnar við handveginn
= 18-20-22-24 sm og merkið. Saumið í
saumavél 2 beina sauma með smáu spori
báðum megin við handveginn og einnig í
brugðnu lykkjurnar að framan. Klippið á
milli saumanna og sikk-sakkið þétt yfir
sárkantinn. Saumið axlir saman. Saumið
ermarnar í innan við kantinn efst á
erminni og notið hann til að hylja saum-
inn.
SJALKRAGI:
Byrjið í hægra horninu á framstykkinu og
prjónið upp með fjólubláu á hringprjón
nr. 3, 6 lykkjur á hverja 2.5 sm meðfram
hægra framstykkinu, hálsmálinu að aftan
og meðfram vinstra framstykkinu.
Lykkjufjöldinn verður að vera deilanleg-
ur með 4 + 2. Slítið frá. Setjið merki í
miðju að aftan. Byrjið að prjóna 6 lykkj-
um fyrir framan merki, prjónið 2 sl. 2 br.
yfir 12 lykkjur, snúið við og prjónið 6
lykkjum meira í hvert skipti sem snúið er
við þar til allar lykkjurnar hafa verið
prjónaðar. ATHUGIÐ: Þegar kraginn
mælist 5 sm í miðju að aftan er aukið í 4
lykkjum 4 sinnum með jöfnu millibili frá
axlarsaumi að axlarsaumi (á sama
prjóni). Þegar snúningunum er lokið er
prjónað áfram 2 sl. 2 br. en eftir 2-2.5-2.5-
3 sm er gert hnappagat yfir 4 lykkjur
hægra megin 4-4-5-5 sm frá brún. Þegar
kraginn mælist 3-4-4-5 sm í miðju að
framan er skipt yfir í blátt og prjónaður 1
sm í viðbót. Fellið hæfilega fast af með
sléttum og brugðnum lykkjum. Leggið
hægri brún kragans yfir þá vinstri og
saumið brúnirnar við lykkjurnar, sem
felldar voru af, bæði á réttu og röngu.
Festið trétöluna á. Saumið þvottamerki
innan í peysuna.