Vikan


Vikan - 01.02.1999, Page 41

Vikan - 01.02.1999, Page 41
manni. Hann var ekkjumað- ur, átti tvö uppkomin börn og þrjú barnabörn. Og nú kom annað hljóð í strokk- inn. Hún var mjög upptekin af barnabörnunum hans og talaði mikið um hvað þau falleg og vel uppalin og hvað þau veittu henni mikla gleði. Aldrei minntist hún einu orði á dótturdóttur sína sem elsta systir mín hafði eignast árinu áður. Þau eru orðin það gömul að þau gera sér grein fyrir kuldalegu viðmóti ömmu sinnar. Aldrei hefur hún boðist til að passa þau og aldrei hefur hún boðið þeim að gista hjá sér. Þau hafa aldrei upplifað að eiga ömmu sem segir þeim sögur og kennir þeim að fara með bænirnar sínar. Aldrei hefur hún laumað að þeim pen- ingum eða sælgætismola. Hún gefur þeim afmælis- og jólagjafir en aldrei neitt þar fyrir utan. Hún móðir mín hefur ekki mildast með ár- unum. Við systkinin erum dugleg við að halda hópinn eftir að við urðum fullorðin og oft tölum við um ástleysi æsku- áranna. Við höfum mikið velt því fyrir okkur hvers vegna mamma var ófær um að elska okkur systkinin. Líklega hefur hana skort ást og umhyggju í sínu uppeldi og framkoma hennar við sína nánustu liðið fyrir það. Reiði hennar og ástleysi hafa verið hennar varnar- veggir gegn umhverfinu. Við vitum það núna að skyldfólk okkar vissi hvern- ig í pottinn var búið heima og gamlir nágrannar hafa látið í ljós hversu oft þeir hafi fundið til með okkur systkinunum. Vissulega lið- um við aldrei skort en upp- eldið olli tilfinningalegum sárum sem aldrei munu gróa að fullu. Nýlega fór ég í heimsókn til systur minnar sem býr ennþá í gamla kauptúninu. Hún systir mín er yndisleg og hefur einstakt lag á því að láta fólki líða vel og finn- ast það vera velkomið. Ég hafði verið hjá henni í tvo daga þegar mamma hringdi. Hún sagði systur minni að hún hefði frétt að ég væri með börnin mín í heimsókn og kvartaði undan því að ég hefði ekki heimsótt hana. Hvort ég ætlaði virkilega ekki að heimsækja móður mína? Hvort mér væri alveg sama þótt nágrannarnir sæju hvers konar vanrækslu ég sýndi móður minni? Hvort ég léti mér í léttu rúmi liggja að hún væri orðin gömul og veikburða? Ég ákvað að fara í heimsókn. Ekki það að mig langaði til þess að hitta hana. Ég vissi að innst inni stóð henni á sama hvort ég kæmi eða færi. Ég vissi að ég átti von á skömmum og umkvörtun- um. Og það stóð heima. Ég sat og hlustaði á hana án þess að segja eitt einasta orð mér til varnar. Líklega hefði ég átt að reiðast og slá í borðið. En ég gat ekki feng- ið mig til þess. Það er mikið rætt um að gamalt fólk sé oft einmana og sjái lítið til fullorðinna barna sinna. Stundum er það ekki að ástæðulausu. Þannig er það í mínu tilfelli. Það er mömmu sjálfri að kenna að við systkinin heimsækjum hana ekki nema við séum nauðbeygð til. Hún átti aldrei neina ást handa okkur. Þess vegna eigum við enga ást aflögu handa henni. Þess vegna einkennast samskipti okkar við hana af skyldurækni í stað væntumþykju." r lesandi segir Þórunni Stefánsdóttur sögu sína Vill þú deila sögu þinni meö okKur? Er sitthvaó sam lielur haft mikil áhrif á þig, jatnvel hreylt lifi þinu? Þór er velkom- iö aö skrifa eöa hringja til okkar. Viö gætum lyllstu nafnleyndar. I li'iiiiilisl;iiir>íO it: Vikuii -.. I ilsrci 11s111s;i^ii'•. Si'ljiivi't>iir 2, Kvvk jiivík, INvTluntr: vikllii@limli.is V

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.