Vikan - 24.05.1999, Síða 8
Hrefna Böðvarsdóttir dreif systur sína með sér
8 Vikan
í Sidney
Sidney er falleg borg, Op-
eruhúsið þar er einhver falleg-
asta bygging sem ég hef séð og
höfnin með hinni stórfenglegu
brú er fögur. Við fórum í
kvöldsiglingu um höfnina á
stjörnubjörtu kvöldi og það er
nokkuð sem seint gleymist.
Verðlagið í borginni er mjög
lágt, en menningin er mjög
svipuð og á Vesturlöndum svo
okkur fannst við alls ekki vera
svona langt í burtu þegar við
vorum komnar „down under1'.
Ástralarnir eru stoltir af landi
sínu og þjóð og þeim finnst
Evrópa vera óskaplega langt í
burtu. Þeim finnst þetta allt
vera það sama og finnst alger
óþarfi að tilgreina í hvaða
landi hutirnir gerast í fréttum
frá Evrópu. Við vorum því al-
veg hissa á því að fólk virtist
vita hvar ísland var og því
fannst mjög merkilegt að við
skyldum vera komnar alla leið
þaðan bara til að sjá Bee
Gees.
Það er mikið um fram-
kvæmdir í borginni núna því
það er verið að undirbúa
Ólympíuleikana árið 2000.
Ástralir búast við um 2 millj-
ónum gesta þangað og
Ólympíuþorpið stendur
tilbúið, en framkvæmd-
ir á gatnakerfinu skapa
mikið umferðaröng-
þveiti í borginni.
Tónleikarnir voru
haldnir á Ólympíuleik-
vanginum sem tekur
110 þúsund manns og
það var uppselt í öll 65
þúsund sætin á þessum
tónleikum.
koma til Narida sem er lítil
borg um 70 km frá Tokyo.
Borgin er mjög sérkennileg
því þar aka mjög flottir bflar
um þröngar göturnar innan
um gömul, niðurnídd hús.
Dyrakarmarnir voru stundum
ekki nema 1.70 og víða á
kvennaklósettunum voru að-
eins holur í gólfunum.
Þegar við vorum þarna var
bæði kalt og rigning og það
voru allir með regnhlífar,
meira að segja
börnin. Fólkið skildi
regnhlífarnar eftir í
sérstökum regn-
hlífastöndum fyrir
utan búðirnar og
við systurnar föttuð-
um þetta ekki alveg
strax og ætluðum að
velja okkur regnhlíf
úr einum standinum
en hættum við af því
að okkur fannst
ekki taka því fyrir einn dag.
En Japanir eru yndislegt fólk,
ein japönsk kona sem var
stödd þarna var á þeirri skoð-
um að við þyrftum á regnhlíf
að halda, hún gaf okkur sína
og fór sjálf undir regnhlíf eig-
inmannsins.
g er búin að halda
upp á Bee Gees síðan
ég var barn, svo frétti
ég af tónleikum sem átti að
halda í Ástralíu í vor og mig
langaði auðvitað rosalega en
hugsaði með mér að þetta
væri alltof fjarstæðukennt.
Löngunin varð samt alltaf
sterkari og sterkari eftir því
sem ég hugsaði meira um það.
Oft líða 10 ár á milli tónleika
hjá þeim og þetta voru síðustu
Ella systir
1C‘ ' ''
SlSÍB , ö
tónleikarnir í þessari tónleika-
~ ferð „One night only" svo ég
o ákvað að skella mér og skoða
íj aðeins heiniinn í leiðinni. Það
kórónaði svo allt þegar mín
1 frábæra systir, Ella, ákvað að
koma með mér.
n !E Þetta er ekkert smá ferðalag
£ u
■o c því það tekur 22 tíma að fljúga
o, q til Sidney og við urðum að
Z í millilenda bæði í Kaupmanna-
S ‘® höfn og Narida í Japan á leið-
■o S2 inni. Við vorum svolítið
(/> fQ
(5 .2 kvíðnar fyrir flugið og það
■o j® kom okkur satt að segja á
m n óvart hvað þetta gekk vel og
2 “i; var auðvelt þrátt fyrir allt.
s.
Sz
x i; Var gefin regnhlif í
|| Narida
12 2 Það var mjög gaman að
«1
Astralíu
Við systurnar fórum á
blaðamannafund sem Gibb
bræður héldu fyrir tónleikana.
Við vorum svo heppnar að fá
sæti næstum alveg fremst í
salnum og beint fyrir framan
þá og það var mjög skemmti-
legt að fá að vera í þessu ná-
vígi við þá því þeir eru svo al-
þýðlegir og skemmtilegir.
Jú, og svo var komið að tón-
leikunum sjálfum.
Það er erfitt að lýsa svona
upplifun. Við vorum mættar
þremur tímum áður en þeir
hófust, en samt vorum við svo
heppnar að geta gengið inn á
sama tíma og Gibb bræðurnir
sjálfir. Tónleikarnir byrjuðu
með miklum látum, trommu-
leik og flugeldasýningu og það
var rosalega tilkomumikið að
ganga inn á þennan stórfeng-
lega leikvang þar sem öll þessi
mannmergð var saman komin
til að njóta tónleikanna.
Það var búið að koma fyrir
fimm feikilegum risaskjám við
senuna til að auðvelda fólki
að fylgjast með og hátalararn-
ir sitt hvorum megin við hana
voru eins og fimm hæða
blokkir! Það var rafmögnuð
orka í loftinu og svo gífurleg
stemmning að maður var eins
og í leiðslu. Þarna var fólk á
öllum aldri allt frá börnum og
uppí gamalmenni og meðal
áhorfendnanna var vinkona
þeirra bræðranna, Olivia
Newton-John.
Bee Gees byrjuðu strax á að
syngja „You should be
dancing" og síðan í framhaldi
af því „Alone" og síðan hvert
lagið á fætur öðru. Þegar þeir
byrjuðu að syngja „Spicks &