Vikan


Vikan - 24.05.1999, Blaðsíða 61

Vikan - 24.05.1999, Blaðsíða 61
 I * Nf. íslandsvinkonan Lauryn Hill var ekki há í loftinu þegar áhuginn á tónlistinni kviknaöi. Stúlkan var svo tónelsk aö hún svaf á gólfinu í nokkur ár. "Ég átti stór- an plötuspilara sem var öðrum megin í herberginu mínum og hinum megin var rúmið mitt. Ég notaði heyrnartól til að hlusta á tónlistina því foreldrum mínum var illa við hversu hátt ég stilltj alltaf græjurnar," segir Hill, sem ólst upp í New Jersey. "En snúran náði ekki að rúminu þannig að ég lá vanalega á gólfinu og hlustaði á kvöldin. Þetta var svo þægilegt að ég svaf á góifinu í nokkur ár." En hvers vegna færði hún ekki bara plötuspilarann? "Ég var bara sjö ára þegar þetta byrjaði. Græjurnar voru allt of þungar fyrir mig." Á þessum árum hlustaði hún mest á Patti LaBelle & the Bluebells. LISTRÆNT UPPELDI Joseph Fiennes vakti mikla athygli í myndinni Shakespeare In Love þar sem hann heillaði Gwyneth Paltrow upp úr skónum. Alkunna er að Jos- eph er bróðir leikarans Ralph Fiennes, sem tilnefndur var til Óskarsverð- launa fyrir frammistöðu sína í The English Patient og Schindler's List, en færri vissu að Joseph á tvíburabróðir, Jake. Fjöiskyldan var frekar rótlaus á árum áður og fluttu 14 sinnum um England og írland á meðan börnin voru að vaxa úr grasi. "Ég var mjög heppinn með uppeldi en það var óhefðbundið. Það var alltaf fróðlegt fólk í kringum okkur - leikarar, tónlistarmenn, myndhöggvarar. Þetta hafði mikil áhrif á okkur systkinin," segir Joseph. Hann og Ralph eru ekki þau einu í fjölskyldunni sem hafa lagt ieiklistina fyrir sig. Systir þeirra, Sophie, er ieikkona og Martha er leikstjóri. Bróðirinn Magnus er tónlist- armaður og tónskáld. Sá eini í systkinahópnum sem ekki er listamaður er tvíburinn Jake. Hann er veiðivörður. Nokkrir úrfjölskyldunni tóku höndum saman og gerðu myndina Onegin sem frumsýnd verður í sumar. Ralph og Sophie leika í myndinni, sem Martha leikstýrir og Magnus semur tónlistina. Joe segist vera ánægður með að hafa ekki verið með. "Ég er viss um að þau vilja ekki vinna saman aftur." Rós Vikunnar Að þessu sinni er það karlmaður sem fær Rós vi’kunn- ar. Dóróthea Einarsdóttir útnefnir Ingolf J. Peter- sen, lyfjafræðing í Lyfjabúð Hagkaups í Mosfellsbæ til Rósar Vikunnar. „Hann er alveg einstaklega hjálpsamur og ráðagóður. Hann reynir alltaf að leysa úr málunum þegar viðskiptavin- irnir lenda í vanda og það er mjög gott að hafa svona mann á stað þar sem sjúklíngar þurfa að leita aðstoðar. Ingolf átti áður Apótek Mosfellsbæjar og þegar hann flutti yfir til Lyfjabúðar Hagkaups tók hann með sér liðlegheit- in. Ég er viss um að fleiri Mosfellingar en ég hafa notið góðs af því að hafa svona elskulegan mann í aþótekinu þegar á hefur reynt." Ingolf fær sendan vegleg- an blómvönd og vonandi heldur hann áfram að vera svona Ijúfur við viðskiptavin- ina í Mosó. * * - &.pZé&SCi* 1 Rós Vikunnar Þekkir þú einhvern sem á skilið að fá rós Vikunnar? Ef svo er, hafðu þá sam- band við „Rós Vikunnar, Seljavegi 2,101 Reykjavík" og segðu okkur hvers vegna. Einhver heppinn verður fyrir valinu og fær sendan glæsilegan rósavönd frá Blómamiðstöðinni. SAMAN í VINNU * Anne Heche er þekktust fyrir að vera ást- kona gamanleikkonunnar Ellen DeGeneres en hún hefur hlotið míkla athygli síðan þær komu saman út úr skápnum. Nú ætlar Heche að reyna fyrir sér við leikstjórn og hefur fengið DeGeneres í lið með sér. Það er kapalstööin HBO sem hefur boðið þeim vinnu við sjónvarpsmyndina If These Wall Could Talk 2. Þetta er þetta er sjálfstætt framhald af sjónvarpsmynd sem gerð var fyrir þremur árum og þar voru Demi Moore, Sissy Spacek og Cher í aðalhlutverkum. í hverri mynd eru sagðar þrjár sögur með sama þema. í fyrri myndinni var fjallað um fóstureyðingar en nú er þemað samkyn- hneigð. Heche, sem lék í fyrri myndinni, mun skrifa handrit og leikstýra einum hlut- anum en DeGeneres og Sharon Stone leika lesbískt par.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.