Vikan - 24.05.1999, Blaðsíða 52
Dramadrottningar
. -ési,
Líf hennar er ein allsherjar sápuópera og hún er langþjáða stjarnan
Ertu orðin leið á að vera í hlut-
verki bestu aukaleikkonunnar í
sápuóperulifi vinkonu þinnar ?
Ertu orðin þreytt á að hlusta á
endalausar krísusögur úr lífi
hennar? Hér koma ráð um
hvernig þú getur hjálpað henni
að komast frá enda-
lausum kveinstöfum.
"Mágkona mín heldur aö maö-
urinn minn sé þunglyndur og ég
er hrædd um að hún hafi rétt fyrir
sér. Ég veit hreinlega ekki hvað
ég á til bragðs að taka," segir vin-
konan skjálfandi röddu. Þetta er
dæmigert símtal frá konu sem við
skulum kalla Láru og þjáist af
þeim hvimleiða kvilla að vera
dramadrottning. I klukkustundar
löngu símtali hvetur þú hana til
að örvænta ekki og sannfærir
hana um að til séu ýmis ráð gegn
þunglyndi. Það líða tveir dagar
og Lára hringir aftur. Nú fer annar
klukkutími í að greina þunglyndi
manns hennar og kryfja málið til
mergjar. Viku síðar hringir þú í
Láru til að heyra hvernig henni
gangi að fást við þunglyndi eigin-
mannsins. En eins og alltaf er
það orðið úrelt umræðuefni. Nýtt
vandamál hefurtekið við í lífi
Láru. "Ég er svo hryllilega slæm
í bakinu. Annað hvort er þetta
svona svakalegt þursabit eða
brjósklos og ég ligg bara fyrir. Ég
efast um að ég komist á fætur
næstu vikur."
Aumingja Lára. Óheppnin virð-
ist elta hana á röndum. Hún er
stöðugt að kljást við vandamál og
segir sjálf að hún sé fædd undir
óheillastjörnu. Vissulega er hún
stundum óheppin, en oftast er þó
um að ræða stórlegar ýkjur með
dramatískum lýsingum. Um dag-
inn fór kötturinn hennar t.d. í
hungurverkfall því það var komið
annað gæludýr á heimil-
ið. Ekki merkilegt, hugs-
ar þú en reyndu að
segja Láru það! í hennar
huga eru minnstu krísur
daglegs lífs hreinustu
hörmungar. En það er
einmitt eitt helsta ein-
kenni þess að vera
dramadrottning að þríf-
ast á vandamálum eða
jafnvel búa þau til.
Dramadrottningar eru
krísufíklar.
Þær eru krísu-
fíklar
Flestallir eiga vin-
konu, ættingja eða ná-
granna sem er drama-
drottning og þrífst á
stöðugu drama. Ef
dramadrottningin er ekki að
barma sér yfir eiginmanninum, þá
er hún upp á kant við vinnuveit-
anda sinn. Einn daginn er eld-
húsvaskurinn stíflaður, þann
næsta eru börnin svo erfið og
ef hún hefur ekki meiriháttar
krísu á takteinum, þá einfald-
lega býr hún hana til. Tannvið-
gerðirnar eru að fara með fjár-
haginn, þakið lekur og hún þjáist
af síþreytu. Dramadrottningar
eru snillingar í að gera allt að
vandamáli.
Tökum annað dæmi. Solla er
tæknifræðingur og þriggja barna
móðir. Hún hringir þrisvartil fjór-
um sinnum í viku f vinkonu sína
sem er heimavinnandi og liggur
því vel við höggi. "Hún er móður-
sjúk þegar hún hringir eða kemur
í kaffi og eitt sinn hringdi hún al-
veg niðurbrotin þvf að fjórtán ára
dóttur hennar hafði verið sagt
upp af kærastanum! Hún var svo
miður sín að maður hefði getað
haldið að eiginmaðurinn hefði yf-
Ertu háð hörmungum?
Stundum er gaman aö vera miöpunktur athygli. En
hvernig veistu hvort þú hefur farið yfir strikiö og sért
orðin háö vandamálunum? Ef þú svarar þremur eða
fleiri af eftirfarandi spurningum játandi, þá eru líkur á
aö þú sért krísufíkill og þurfir aö skoöa betur hvernig þú
bregst viö sveiflum í lífinu:
1. Ertu oft hættulega nærri því að missa af stefnumótum
eða fundum?
2. Notar fólk lýsingarorð um þig á borð við dramatísk eða
upptrekkt?
3. Bregstu sterkt við aðstæðum - sérðu nýja graftarbólu í and-
litinu á þér og ert viss um að hún sé illkynja æxli, eða telur
að smávægileg mistök í vinnunni bindi enda á starfsframa
þinn?
4. Þegar þér líður mjög vel, áttu samt von á að eitthvað hræðilegt
komi fyrir þig eða þá sem þér þykir vænt um?
5. Ef samband er rólegt og afslappað, finnst þér það vera leiðinlegt?
6. Finnst þér að frábærir hlutir gerist hjá öðrum en slæmir aðeins
hjá þér?
7. Segja vinir og vandamenn þér oft að hafa ekki áhyggju
og gera ekki of mikið úr hlutunum?
52 Vikan