Vikan


Vikan - 24.05.1999, Blaðsíða 18

Vikan - 24.05.1999, Blaðsíða 18
HVUNNDAGSHETJAIH <u c 3 -I ui </> y> ‘■5 > LU TJ C > S c c ro E £ O <u GQ W ? ‘O n x £ Elsa Einarsdóttir var í kjörbúð að kaupa í mat- inn skömmu fyrir jól árið 1996 þegar stafli af brauðrist- um féll yfir hana. Elsa hafði verið bundin við hjólastól í rúm- an áratug vegna læknamistaka þegar þetta óhapp átti sér stað. Það er Ijóst að Elsa rúllaði sér sjálf inn í verslunina og jafnljóst að síðan hefur hún ekki getað komið sér hjálparlaust á milli staða. Fjölmörg vitni voru að slysinu enda kjörbúðin full af verslandi fólki. Brauðristastafl- inn var svo hátt hlaðinn af verslunarinnar hálfu að enginn náði að taka efst úr staflanum þannig að fólk hafði tekið innan úr honum og því fór sem fór. Elsa féllst á að segja blaða- manni Vikunnar sögu sína. „Ég mun hafa henst til í stólnum þegar þetta gerðist því ég varð svört af marblettum langt niður á bak. Ég fékk höggin á höfuðið, hálsinn, öxl- ina og niður eftir baki," segir Elsa sem situr eftir án þess að geta lengur björg sér veitt og var við slysið endanlega svipt getunni til að komast ferða sinna og bjarga sér að mestu leyti sjálf. Elsa missti við þetta slys kraftinn í síðasta heila út- limnum og hefur hún, nú tveim- ur og hálfu ári eftir óhappið, enn ekki fengið slysabætur greiddar. ,,í versluninni voru staddir menn úr björgunarsveitinni Ingólfi að selja Gjöf á gjöf. Einn þeirra horfði á þegar stæðan hrundi yfir mig,11 segir Elsa sem átti sér einskis ills von og fékk heilahristing við að fá stæðuna yfir sig. „Stæðan kom öll aftan að mér og á hlið en ef ég hefði séð hana koma hefði ég reynt að forða mér. Ofan á höfðinu á mér var risakúla eftir þetta og ég var mjög vönkuð." Þótt vönkuð væri skynjaði Elsa að hún gæti ekki sett hjólastólinn sjálf inn í bílinn og bað hún um aðstoð við það. Lögreglumaður ók Elsu upp á slysadeild. Þar var hún fram yfir miðnætti og var þá send ein heim. ,,Ég lá síðan alla nóttina inni á baði og ældi," segir Elsa. ,,Ég datt í gólfið og komst ekki í stólinn og gat enga björg mér veitt. Ég gat einhvern veginn skorðað mig yfir baðkarið og haldið mér þannig og gat svo ekki hreyft mig fyrr en heimilishjálpin kom næsta morgun og bjargaði mór. Ég er með Securitas- hnapp hérna, sem ég er alltaf vön að grípa með mér inn á bað, en hafði ekki haft rænu á því þarna um nóttina. Núna er ég búin að bæta úr þessu og er komin með síma inni á baði," segir Elsa, þar sem við sitjum í vistlegri íbúð hennar að Sléttuvegi, í húsnæði sem er sérhannað fyrir fatlaða. Elsa á þrjú börn, á aldrinum 27 til 33 ára. Elst er dóttir sem er sagnfræðingur, miðbarnið er þrítugur sonur sem vinnur að mastersgráðu í málvísindum og yngst er dóttir, sem er að Ijúka BA-prófi í rússnesku með tékknesku og málvísindi sem aukafög. ,,Ég erafskaplega rík," segir Elsa, ,,bæði að barnaláni og fyrir það hvað ég á góða vini sem hafa gert mikið fyrir mig í gegnum árin." Fjölskyldan bjó á Suðurnesj- um áður en læknamistökin gerðu það að verkum að Elsa varð hreyfihömluð. Elsa stóð í málaferlum vegna mistakanna í sjö ár. Málið fór tvisvar fyrir undirrétt og tvisvar fyrir Hæsta- rétt, vegna formgalla. Að sjö árum liðnum féll sá úrskurður að þetta hefði jú gerst, en væri „engum að kenna". Var Elsu því ekki dæmd ein einasta króna í bætur að undanskildri gjafsókn. Elsa á erfitt með að tala um þetta en segir þó í sambandi við málsóknina: „Þar stendur ekki steinn yfir steini." Eftir slysið í kjörbúðinni hitti Elsa rannsóknarlögreglumann sem lagði hart að henni að fá sér lögmann vegna slyssins. Sjálf leit hún svo á að slysið væri hreint tryggingamál og með fjölda vitna að atvikinu yrði ekki erfiðleikum bundið að fá skaðann bættan, en annað kom í Ijós. Elsa hafði samband við hæstaréttarlögmann sem er enn með mál hennar og enginn botn hefur enn fengist í það. Hvað hefur tryggingafélagið greitt þér fram til þessa? Færðu mánaðarlega upphæð frá þeim þar til málið leysist? „Ertu frá þér?! Þeir borguðu flestar læknanótur og rann- sóknir fyrsta árið og ekkert fram yfir það. Hver er staða málsins núna? „Ég er búin að fara í örorku- mat hjá lækni, sem lagði ríka áherslu á í sínu mati, að það yrði að taka tillit til þess að þarna var ég að missa máttinn í síðasta heila útlimnum. Tryggingafélagið vildi ekki sætta sig við þetta mat. Því verður farið í svokallað tveggja lækna mat, þannig að trygg- ingafélagið leggurtil einn lækni og við annan." Lögmaður Elsu fékk beiðn- ina um tveggja lækna matið í hendurfrá tryggingafélaginu í febrúar 1999, rúmum tveimur árum eftir slysið. ,,Það er svo mikið að gera hjá þeim að þeir máttu ekki vera að því að út- búa þessa beiðni fyrr," segir Elsa. Skömmu áður en blaðið fór í prentun fékk Elsa niður- stöðu matsins og var þegar Ijóst að hún gæti ekki sætt sig við þann úrskurð er þar var upp kveðinn. Það virðist því nokkuð Ijóst að enn muni drag- ast að Elsa fái sitt tilfinnanlega tjón bætt. FRELSISSKERÐINGIN SÁRUST Hvað af því sem þú gast fyrir desember 1996 ertu ófær um að gera í dag? „Ég get ekki vaskað upp og ekki eldað mat og ekki strokið yfir gólfin eins og ég gerði. Svo greip ég í að spila á píanó en þeirri ánægju er ég svipt í dag. En stærsta skerðingin er frelsisskerðingin því ég get ekki vippað stólnum inn í bíl lengur og á þar að auki erfitt með að keyra bíl núna. Ef ég ætla að fara ein að versla verð ég að fara með ferðaþjónustu- bíl eða taka leigubíl, sem er rándýrt og ég hef ekki efni á. Ég er þannig svipt því ferða- frelsi sem ég þó hafði." Elsa nefnir sem dæmi að til þess að komast í afmæli móður sinnar, hafi hún þurft að taka leigubíl og borga fyrir hann síðustu aurana sína, en afmælið var 9. 18 Vikan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.