Vikan - 24.05.1999, Blaðsíða 23
A vcrkstæfti: Verkstæði l»ór-
eyjiir cr í þvottaliiisiim cn |iar
licfur Iiiiii koinið scr npp að-
stiiðu ineð þcim tækjuin og
tólnin seni til þarf.
r'J f - -"T.i
þykir skemmtilegra að vinna
í íslensku hornin og hún
nefnir að hornin séu mjög
misjöfn eftir dýrum,
hornamassi þeirra sé ólíkur.
Pórey notar litinn í hornun-
um til að ná fram andstæð-
um og sérstöku munstri, og
þegar hún vinnur með bein
gerir hún aðeins af því að
lita þau á náttúrulegan hátt,
þá t.d. með tei, lauk og
papriku.
"Með því að vinna í bein
og horn þá get ég gert allt
mögulegt. Ég er mikið i því
að gera bréfahnífa, bréfa-
klemmur, skeiðar, skartgripi
og tölur svo eitthvað sé
nefnt. Ég geri mynstrin al-
farið sjálf og hef ekki fengið
mig til að vinna með gömlu
íslensku mynstrin eins og
þau voru. Ég er meira fyrir
að nota mynstur sem aðal-
lega hafa verið skorin út í
tré og ég skoða mikið bæk-
ur, danskar og norskar, til að
fá hugmyndir. Síðan sker ég
einnig út eitthvað sem ein-
kennir Skagafjörð eins og
Drangey."
Þórey á sér eitt dekur-
verkefni. "Þaðergulla-
skjóðan mín. Mig hefur
langað til að gera hana árum
saman. I henni er ekkert
heilagt og gullin reyna á
hugmyndaflug barnanna. Ég
gerði útskýringar með
skjóðunni á mörgum tungu-
málum sem segja frá gullun-
um og hvernig þau voru not-
uð. Ég er einna ánægðust
með þetta verk mitt ásamt
völuspilinu. Gullin set ég
síðan í leðurpoka sem ég bý
til en um aðra muni sníð ég
sérstakar pappaöskjur."
Handverkið getur verið
búbót að sögn Þóreyjar, sér-
staklega ef hún gæti gert
meira og látið annað sitja á
hakanum. "Það er samt
erfitt að ná launum í þessu
og við handverkskonur sem
skráðar erum fyrir búi njót-
um ekki þeirrar undanþágu
sem annað handverksfólk
nýtur varðandi virðisauka-
skattinn. Salan hefur annars
alltaf komið á óvart en ég
fór fljóllega að selja það
sem ég bjó til. Ég hef mest
selt í Skagafirði, í hand-
verkshúsinu okkar í Varma-
hlíð, og munirnir eru alveg
jafn vinsælir af útlendingum
sem Islendingum," segir
Þórey að lokum.
Skartgripir:
Hluti af þeim
skartgripuin
seni Þórey
hefur gert úr
beinuni. Bcin
in litar hún á
náttúrulegan
hátt.
Vikan 23