Vikan - 24.05.1999, Page 9
Specks" ætlaði allt vitlaust að
verða!
Fólk fékk svo sannarlega
eitthvað fyrir þessar 14 þús-
und krónur sem það hafði
borgað fyrir miðana. Þetta var
engu líkt!
Það varð mikið spennufall
eftir tónleikana og maður var
með suð fyrir eyrum og lögin
glumdu enn í huganum þegar
við systurnar sofnuðum sælar
og ánægðar. Þetta var svo
sannarlega þess virði leggja á
sig allt þetta ferðalag."
BEE GEES
Nafnið á hljómsveitinni
"Bee Gees" merkir BG í fleir-
tölu, það eru upphafsstafir
Barry Gibb og móður þeirra
bræðra, Barböru Gibb.
Meðlimir Bee Gees eru
Gibb-bræðurnir Barry,
Maurice og Robin. Þeir eru
mjög léttir og skemmtilegir og
taka sjálfa sig ekkert mjög al-
varlega. Þeir virðast reyna að
lifa sem eðlilegustu lífi, t.a.m.
vorum við samferða Lindu,
eiginkonu Barry og öllum
börnum þeirra í ferju frá Tar-
onga dýragarðinum að höfn-
inni í Sidney. Þau voru mjög
eðlileg en voru þó með einn
lífvörð með sér. Almenningur
þekkti þau ekki og þannig
virtust þau vilja hafa það.
Bræðurnir og fjölskyldur
þeirra skoðuðu sig mikið um í
Sidney og nágrenni enda
höfðu þeir búið þar í 8 ár sem
unglingar.
Þeir eru fæddir í Englandi,
Barry 1946 og tvíburarnir
Robin og Maurice 1949. Þeir
komu fyrst fram opinberlega í
bíói í Manchester árið 1955,
þá aðeins strákar. Þá strax
byrjuðu þeir að syngja raddað,
sem hefur verið hvað mest
áberandi í tónlistarflutningi
þeirra. 1958 fluttu þeir til
Astralíu. Þeir voru mjög vin-
sælir hjá unglingunum í Ástr-
alíu og gerðu mörg vinsæl lög.
Bee Gees náðu 1. sæti á vin-
sældarlista 1966 með laginu
"Spicks & Specks” og var
kjörin besta hljómsveitin í
Ástralíu. Þeir notuðu pening-
ana sem þeir fengu fyrir lagið
til að flytja aftur til Englands.
Þar komust þeir í kynni við
hinn fræga Robert Stigwood
sem gerðist umboðsmaður
þeirra. Eftir það kom hver
smellurinn á fætur öðrum.
Árið 1977 gerði Robert
Stigwood kvikmyndina "Sat-
urday night fever" og fékk
þremenningana til að semja
nokkur lög. Platan varð sölu-
hæsta kvikmyndartónlistar-
plata allra tíma með lögum á
borð við "Staying Alive",
"Night fever" og "How deep
isyourlove". BeeGeesátti5
lög á topp 10 í einu. Þráttfyr-
ir mikla velgengni hafa þeir
líka fundið fyrir lægðum í
frægðinni. í dag eru þeir
sagðir í 5 sæti yfir vinsælustu
tónlistarmenn allra tíma á eft-
ir Elvis Presley, Bítlunum,
Paul McCartney og Michael
Jackson. Þeir
hafa átt lög í
efsta sæti vin-
sældarlista í Bret-
landi síðustu 4
áratugi. Þeir hafa
einnig samið lög
fyrir aðra flytjend-
ur með mjög góð-
um árangri, t.d. El-
vis Presley, Janis
Joplin, Barbra
Streisand, Celine
Dion og Backstreet
Boys svo dæmi séu tekin. Þeir
sömdu "Islands in the stream"
með Dolly Parton og Kenny
Rogers sem er mest spilaða
sveitasöngvalag allra tíma.
Barry Gibb þjáist af liðagigt
en hefur þó ekki enn lagt gít-
arinn á hilluna og tvíburarnir,
Robin og Maurice hafa náð að
blómstra með árunum. Á
fréttamannafundi sem haldinn
var 4 dögum fyrir tónleikana
léku þeir á alls oddi. Sólbrún-
ir og hamingjusamir svöruðu
þeir spurningum fréttamanna
og sungu svo brot úr laginu
"How deep is your love".
Þeir sögðu að þeim þætti gott
að vera komnir heim. Að fjöl-
skyldur þeirra gæfu þeim inn-
blástur og að enginn gæti lifað
án ástarinnar, sem er mikil-
vægasta tilfinning sem til er.
Þeir vilja ekki vera án hvers
annars í tónlistinni því að
þeim finnst skemmtilegra að
deila velgengninni með hvor-
um öðrum.
Það kom fram
að þeir hafa
samið hátt í
1.000 lög. Á
einum degi
sömdu þeir
"Tragedy"
,"Too much
heaven" og
"Shadow
dancing"
fyrir Andy
bróður
sinn. Allt stórsmellir. Ástralir
voru mjög ánægðir því að þeir
töluðu enn með áströlskum
hreim.
Yngsti bróðirinn, Andy
Gibb, var um fæðingu þegar
eldri bræðurnir slógu í gegn.
Hann tilheyrði aldrei Bee
Gees þó að hann kæmi stund-
um fram með þeim. Þeir að-
stoðuðu hann við að ná
heimsfrægð. Hann var fyrsti
söngvarinn til að ná efsta sæti
Ameríska vinsældarlistans
með fyrstu þremur lögum sín-
um. Því miður var hann við-
loðandi áfengi og eiturlyf.
Hann lést úr hjartaáfalli 1988
aðeins þrítugur að aldri.
Hugh, faðir þeirra náði sér
aldrei eftir fráfall Andys og
lést aðeins 4 árum síðar.
Þröng gata í Narida
í Japan
Vikan 9