Vikan


Vikan - 24.05.1999, Qupperneq 22

Vikan - 24.05.1999, Qupperneq 22
Texti: Halla Bára Gestsdóttir Myndir: Gunnar Sverrisson Þórey Jónsdóttir er bóndi og handverkskona sem sker út i horn og bein. Handverkið ágætis búbót Þórey er bóndi á bænum Keflavík á Hegranesi í Skaga- firði. Frá því hún var barn hefur hún haft gaman af því að skera út og um 1990 fór hún að vinna markvisst að því að vinna í horn og bein þegar tekjur af búinu fóru að dragast saman. Fullt starf Þóreyjar er að vera bóndi ásamt manni sínum Jóhanni Má Jóhannssyni. Hún skipt- ir sér mikið af búskapnum að eigin sögn, þó hún sé ekki í húsunum alla daga, en eiginmaðurinn er einnig mikið að heiman við söng og önnur félagsstörf. Gekk um vopnuð vasahníf Það er handverkið sem á að miklu leyti huga Þóreyj- ar. "Eg er gríðarleg hand- verkskona," segir hún hlæj- andi þegar það er borið undir hana. "Eg geri ýmis- legt í höndunum og bjarga mér með þetta." Þórey vinn- ur í horn og bein og hefur verið að tálga síðan hún var krakki. "Ég gekk alltaf um vopnuð. Þegar búskapurinn fór að dragast saman þá tók ég þessa iðju upp að nýju. Tekjuleysið spilaði því inn í. Það var um 1990 sem ég fór að vinna í horn og bein en áður hafði ég verið að prjóna barnaföt, sokkabuxur, ullar- boli, hálskraga o.fl. og selja. Ég er ennþá að því í dag samhliða hinu." Þórey segir að hún láti handverkið ekki gera kröfur til sín, hún vilji hafa gaman af þessu, og geri því alltaf hluti sem hana langi til. Hún vinni upp í pantanir og geri þess á milli eitthvað nýtt. Ef henni líki ekki hluturinn þá leggi hún hann frá sér og geymi hann um tíma. " Ég lærði að smíða í gegnum síma," segir hún. "Þegar ég fann að mig langaði til að vinna í horn og bein þá hringdi ég í garnlan spóna- smið og hann kenndi mér undirstöðuna, sendi mér pressu sem ég þurfti að nota, og leyfði mér að prófa. Það var gamla íslenska að- ferðin en í dag nota ég danska aðferð sem ég datt um." Ferlið í vinnu spónasmiðs er það að byrjað er að velja horn til verksins. Það er sagað mjög gróft eftir línum þess munar sem á að útbúa og hornið gert jafn þykkt. Þá er hituð línolía og hornið sett í hana í 2 til 3 mínútur, síðan er það pressað. Næst er það fræst að nýju og þá er hægt að pússa það með fjór- um til fimm gerðum af sand- pappír, skera munstrin út í það og bera á það sérstakan slípimassa til að ná gljáa. Gullin eru gæluverkefni Það er starfsfólk á Slátur- húsinu sem safnar beinum og hornum fyrir Þóreyju. Hún kaupir örlítið erlendis frá og síðan er töluvert um það að vinir Þóreyjar sendi henni falleg horn. Henni Þeir inunir seni Þorey hefur aðallega unnið og selt hvað mest af. Þorey sest alltat ut tyrir hushornið þegar hiin fer í það að fræsa hornin þar sein rvkið er svo inikið.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.