Vikan - 24.05.1999, Page 26
Smásagnasamkeppni Vikunnar, Seljavegi 2,101 Reykjavík
Skilafrestur er til 10. júní.
Hefurðu verið að skrifa fyrir „skúffuna"? Er ekki kominn tími til
aö draga smásögurnar þínarfram og leyfa öðrum aö njóta þeirra?
flnnaö árið í röð stendur Vikan fyrir smásagnasamkeppni þar
sem til mikils er að vinna. Verðlaunasagan verður birt í Vikunni og
sigurvegari fær frá Vikunni og Úrval-Útsýn tveggja vikna ferð til Gran
Canaria veturinn 1999-2000!
Vikan kaupir einnig birtingarréttinn að fleiri góðum sögum
sem berast í keppnina.
í fyrra bar óþekktur höfundur, Ægir Hugason, sigur úr býtum. í öðru
sæti var Guðmundur Ólafsson og í þriðja sæti var Gerður Kristný. Fjöl-
margar aðrar góðar sögur bárust og birtust á síðum Vikunnar.
Skilafrestur er til 10. júní.
Skilið sögunum undir dulnefni og sendið með í lokuðu umslagi dul-
nefni, rétt nafn og símanúmer.
Verðlaunin!
Gran Canaria er þriðja stærsta eyjan í Kanaríeyjaklasanum og hefur
fyrir löngu skapað sér sess sem einn af aðaláfangastöðum íslend-
inga, og reyndar sá alvinsælasti að vetrarlagi síðastliðna áratugi.
Vinsældir eyjanna eru skiljanlegar þegar horft er til legu þeirra og
veðurfars, en meðalhiti yfir vetrarmánuðina er 23° og 26° yfir sum-
artímann. Þetta eru því eyjar hins eilífa vors þar sem verðlaunahafi
okkar mun væntanlega sóla sig á notalegum sundlaugarbakka
næsta vetur.
Gist verður á Las Camelias sem er íbúðahótel á besta stað á Ensku
ströndinni, við Tirajana breiðgötuna. Þetta er stærsti gististaður Úr-
vals-Útsýnar á Gran Canaria, en í kringum hótelið er fjölbreytt
mannlíf með úrvali veitinga- og skemmtistaða.
Til að upplifa hinn eina sanna innblástur þá skreppur hinn heppni
vinningshafi væntanlega út fyrir Ensku ströndina, og þá helst til
fjalla, en eyjan er víða ægifögur, enda bæði fjöllótt og vogskorin. í
slíkum ferðum má kynnast allt annarri hlið á eynni og spennandi
menningu innfæddra.
Æskileg lengd er 3-4 vélritaðar siður.
Sögurnar verða ekki sendar til baka en hægt er að nálgast þær á skrif-
stofu Vikunnar.
Dómnefnd skipa Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, formaður rithöf-
undasambandsins, Kristín Marja Baldursdóttir rithöfundur og Sigríður
Arnardóttir, ritstjóri Vikunnar.
Sendu Vikunni góða smásögu og þú gætir notið sólarinnar á Gran Canaria í haust.