Vikan


Vikan - 24.05.1999, Qupperneq 44

Vikan - 24.05.1999, Qupperneq 44
Sprautaði son sinn með alnæmissmituðu blóði til þess að komast hjá því að borga Jennifer Jackson horfði með tárin í augunum á fimm ára gamlan son sinn þar sem hann lá í rúminu fársjúkur af alnæmi. „Þetta er alit pabba þínum að kenna," sagði hún. Hún vissi að stund sannleik- ans var runnin upp og Brandon ætti rétt á því að vita að faðir hans, Brian Stewart, hafði sprautað hann alnæmis- smituðu blóði. „Ég sagði við hann: „Pabbi þinn stal blóði frá rannsóknarstofunni þar sem hann vann, sprautaði því í þig og smitaði þig þessum sjúkdómi." Ég man að hann horfði á mig með spurn í augunum. Þegar þarna var komið var hann mjög veikur. Ég sagði honum að hann væri haldinn banvænum sjúk- dómi og læknarnir hugðu honum ekki líf. En það eina sem hann hafði áhyggjur af var hvað yrði um mig þegar hann væri ekki lengur hjá mér." Brandon var með alnæmi á lokastigi, hann horaðist niður og kastaði stöðugt upp. Það er í rauninni kraftaverk að nú, þremur árum síðar, skuli hann vera lækn- aður af alnæminu þó að hann sé ennþá HIV jákvæður. Bati hans er Jennifer að þakka en hún komst að því að til væri lyfja- blanda sem gefin var alnæmis- sjúklingum í tilraunskyni og linnti ekki látum fyrr en hún fékk lækn- ana til þess að gefa Brandon hana. En Brandon, mamma hans og Laura hálfsystir hans, vita að framtíðin er óörugg. Brandon þarf að taka átta mismunandi lyf á hverjum degi. Heitasta ósk hans er að fá að hitta pabba sinn og spyrja hvers vegna hann gerði þetta. Hann útskýrir sjúkdóminn fyrir vinum sínum með því að segja þeim að pabbi sinn hafi gefið honum „vont blóð". Brian hefur játað að hafa sprautað smituðu blóðinu í son sinn til þess að komast hjá því að borga meðlag með honum. í jan- úar var hann dæmdur í lífstíðar- fangeisi. Þegar dómarinn kvað upp dóminn sagði hann: „Þú ert mesti óþokki sem ég hef komist í kynm við. Ég vona að þú eigir eftir að stikna í helvíti." Jennifer segist ekki eyða orku í að hata barnsföður sinn. En hún ásakar sig fyrir að hafa elskað mann sem síðar reyndist vera djöfull í mannslíki. Sjálfsmorðs- hugleiðingar Þetta erfyrsta viðtalið sem Jennifer veitir. „Stewart er ekki einu sinni þess virði að hata hann. Að mínum dómi er hann ekki mennskur. vil frekar nota orkuna til þess að hugsa um börnin mín. En ég ásaka sjálfa mig. Ef til vill hefði þetta ekki gerst ef ég hefði skilið fyrr við Brian. Það er hræðilegt að horfa á lítinn son sinn berjast við dauðann og fá ekkert að gert. Oft sagðist hann frekar vilja deyja en að finna svona mikið til. Einu sinni var ég að því komin að binda enda á líf mitt en hugsunin um börnin mín hélt aftur að mér. Fyrstu mánuðirnir eftir að Brandon greindist með alnæmi á lokastigi voru hræðilegir. Ég grét og grét og það eina sem ég gat sagt við Brandon var hversu mik- ið ég elskaði hann. Þarna lá litli drengurinn minn og veslaðist upp. Ég hefði viljað gefa hvað sem var til þess að létta af hon- um þessa byrði. Ég er þeirrar skoðunar að Brian hafi ekki ein- göngu gert þetta til þess að kom- ast hjá því að borga meðlagið. Ég held að hann hafi viljað hefna sín á mér. Einu sinni sagði hann mér að hann stefndi að því að verða frægur. Nú hefur honum orðið að ósk sinni, en á alröngum forsendum." Þegar Brandon var ellefu mán- aða gamall fékk hann slæmt asmakast og var lagður inn á sjúkrahús. ,,Ég hringdi í Brian til þess að láta hann vita og varð satt að segja hissa þegar hann birtist á sjúkrahúsinu til þess að heimsækja Brandon. Á meðan notaði ég tækifærið og fór niður til þess að fá mér kaffibolla. Brandon, sem hafði verið mjög rólegur, var hágrátandi þegar ég kom til baka og ég spurði hvað væri að. Pabbi hans sagðist ekki hafa hugmynd um það og stuttu seinna sagðist hann þurfa að fara aftur í vinnuna, kvaddi og fór. Við vorum skilin og hann kvartaði oft undan því að þurfa að borga meðlag með Brandon. Einhverju sinni sagðist hann óska þess að sonur okkar yrði ekki mjög gam- all. Hann hafði oft sagt í hálfkær- ingi að hann gæti sprautað hverju sem væri, í hvern sem væri, með ýmsu sem til væri á rannsóknar- stofunni, án þess að hægt væri að sanna það." Brandon versnaði stöðugt eftir að hann kom heim af sjúkrahús- inu og smám saman læddist sá Ijóti grunur að Jennifer að hann 44 Vikan
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.