Vikan - 24.05.1999, Síða 59
og það ætti Tvíburinn að var-
ast.
Heimili, listir og
menning
Tvíburinn er listrænn í eðli
sínu og hann vill hafa fallegt í
kring um sig, hann skreytir
því heimili sitt smekklega,
byggir það upp með fáum en
stíhreinum hlutum. Hann kýs
opin rými, stóra glugga og
björt salarkynni, litavalið er á
gulum nótum út í rautt með
litum séríslensku birtunnar frá
bláu í svart. Hann sækir list-
sýningar, fer á tónleika og í
leikhús, allt til að auðga and-
ann og verða sér úti um
reynslu. En þar sem Tvíbur-
inn er ör og fljóthuga verður
þessi upplifun oft snöggsoðin
og breytileg. Þetta kemur
best fram í vali hans á tónlist
sem virðist lítt ígrunduð og
óyfirveguð en speglar í
grunninn eirðarleysi Tví-
burans og breytilegt skap.
Foreldrar og börn
Sem foreldri geturTvíbur-
inn verið afbragðs uppalandi
því hann skilur vel heim
bernskunnar, víðsýni hans og
áhugi á ólíkustu málum hvet-
ur barnið stöðugt til áhuga og
framfara. Tvíburinn sértil
þess að ávallt sé nóg af bók-
um og öðru örvandi
fræðsluefni nálægt
barninu frá unga
aldri og meðfæddir
leikhæfileikar hans
gera samverustund-
irnar að endalaus-
um spennandi æv-
intýrum.
Sem barn þarf
Tvíburinn mikla örv-
un og fjölbreytni, allt
nýtt er ótrúlega
spennandi en hann
er líka fljótur að fá
leið á sömu hlutum
ef þeir lúta ekki að
þörfum hans. Það getur verið
spennandi að spila spil en
tapi Tvíburinn er hann hættur
og allt er leiðinlegt. Þetta
mega foreldrar Tvíbura hafa í
huga því Tvíburanum er
nauðsyn að læra að klára
hlutina og taka tapi svo hann
verði vel í stakkbúinn fyrir
sjálfstætt líf fullorðinsára.
Ytri áhrif
Guðinn Merkúr, sem er
verndari Tvíburans, var guð
viðskipta til forna en þegar
Rómverjar kynntust honum,
um 500 fyrir Krist, breyttist
ásýnd hans og hann varð
Hermes, sendiboði guðanna.
Þessar tvær ásjónur guðsins
eiga einkar vel við Tvíburann
og eðli hans sem hreyfanlegs
miðlara. Besti dagurTví-
burans er miðvikudagur, þá
ætti hann að taka afgerandi
ákvarðanir, kaupa lottó, finna
sér maka, áætla draumaferð-
ina, geta börn eða hvað ann-
að sem skiptir hann máli. Ef
daginn ber upp á 5. eða 9. er
hann sérlega heilladrjúgur
enda eru tölurnar lukkutölur
Tvíburans. Þar sem Tvíburinn
er undir áhrifum plánetunar
Merkúr er hann að upplagi
hugsuður og þegar jákvæðir
kraftar plánetunnar umlykja
hann verður Tvíburinn vel
ígrundaður einstaklingur,
haldinn óslökkvandi fróðleiks-
fýsn og löngun til að miðla
öðrum. Hugsun hans er skýr
og rökvís, hann hefur góða
yfirsýn, á gott með tjá sig og
"brillerar" í umræðum. Nái
neikvæðu kraftarnir hins veg-
ar tökum á honum verður
hann óþolandi í návígi sökum
yfirþyrmandi taugaspennu,
kaldhæðnislegrar gagnrýni á
allt og alla, dauðalöngunar og
vorkunar í eigin garð.
Sumar, haust og
vetur 1999
Tvíburinn stendur á kross-
götum í ár, það er ekki bara
öld og árþúsund sem eru að
kveðja heldur erTvíburinn að
kveðja þætti í sér sem hafa
verið honum til trafala til
þessa. Þætti sem lúta að
sjálfsstjórn, ögun og sveigjan-
leika. Þar verður nú breyting
á og hann stígur ný skref á
þessu ári. Þeim fylgir aukin
þörf fyrir ástúð og löngun til
að deila með öðrum ásamt
sterkri þörf til að láta gott af
sér leiða. Þessi aukna út-
geislun gerir það að verkum
Tvilnmnn er hrevfanlegt merki. Hahn hefur fágáftan sniekk
»g er ótrúlega lunkinn að finna flottustu hlutina.
að aðdráttarafl Tvíburans
margfaldast og sjálfsöryggið
blómstrar, tilboð sópast að
honum, nýir vinir, ný ævintýri
og nýjar hugmyndir. Þessi
aukna sjálfsvitund getur þó
breyst í hroka og stærilæti,
nokkuð sem Tvíburanum ber
að varast því lífsmynd hans
er byggð upp líkt og pýramídi.
Hrófli hann við undirstöðun-
um og þeim sem bera
pýramídan, geturtilvera hans
hrunið sem hendi væri veifað.
ÞegarTvíburinn ráðgerir
ferðalög í ár er nauðsynlegt
að stíla upp á sveiganleika í
áætlunum svo menn verði
ekki úrillir og leiðinlegir vegna
þess að allt hafi ekki verið ná-
kvæmlega eins og planað
var. Það eru einmitt hliðar-
vegirnir og ókunnu þorpin
sem gera ferðina spennandi
og eftirminnilega. Tvíburinn
ætti nú í ár að láta umhverfið
ráða frekar en að ráðskast
með umhverfið. Hann ætti
einnig að vera opinn fyrir til-
lögum annarra og því sem
vindurinn ber. Þótt allir hlutir
gangi ekki alltaf upp þá eru
teikn á lofti um mikla mögu-
leika í samskiptum við fólk,
bæði í persónulegu lífi og á
starfsvettvangi.
Samanfekt
Þessi samantekt er fyrir alla
þá sem heillast af Tvíburan-
um og vilja leggja lag sitt við
hann. Með henni geta þeir ef
til vill áttað sig betur á eðli
Tvíburans og háttum en ekki
endilega einstaklingnum, þar
koma til þættir eins og rísandi
merki, hús, miðhiminn, fæð-
ingarstaður, uppeldi og mót-
un. Grunnurinn er þó skýr og
speglast í stjörnunum Kastor
og Pollúx.
Tveir frægir tvíburar
Vikan 59