Vikan - 15.02.2000, Síða 54
Spurningar má
senda til „Kæri
Póstur“ Vikan,
Seljavegi 2, 101
Reykjavík. Farið er
með öll bréf sem
trúnaðarmál og
þau birt undir
dulnefni.
Kæri Póstur
Ég á 14 ára gamla dóttur sem er orð-
in kynþroska og hún hefur breyst mjög
hratt í íturvaxna og þokkafulla konu.
Samt sem áður er hún auðvitað bara
unglingur eða tæplega það og í mínum
augum er hún í rauninni ennþá barn.
Eftir að hún tók út þennan kvenlega
vöxt hefur hún gjörsamlega breytt urn
fatasmekk og er nú alltaf í mjög þröng-
um og efnislitlum fötum sem mér
finnst sýna alltof mikið af líkama
hennar. Stundum þegar hún fer að
hitta vini sína um helgar klæðist hún
svörtum blúndubrjóstahaldara undir
gegnsærri blússu og mjög stuttu pilsi.
Ég veit að hún vekur athygli karl-
manna, kannski sérstaklega strákanna
í skólanum, og það bæði fer í taugarn-
ar á mér og hræðir mig. Sannleikurinn
er sá að ég óttast um öryggi hennar
þegar hún er að þvælast um svona létt-
klædd á kvöldin. Ég hræðist að hún sé
að bjóða hættunni heim. Svo særir það
mig líka sem móður hennar að vita til
þess að hún gangi eins og vændiskona
til fara. Er eitthvað sem ég get gert til
þess að vekja hana til umhugsunar um
klæðaburð sinn? Getur verið að hún
hafi svo lágt sjálfsmat að henni finnist
hún verða að klæða sig svona til að
vekja á sér athygli?
Áhyggjufull móöir
Kæra áhyggjufulla móðir
Þú átt hugsanlega erfitt með að trúa
því en mjög líklega gerir stúlkan þín
sér enga grein fyrir hvaða áhrif klæða-
burður hennar hefur á karlmenn. Hún
er á þeim erfiðu og ruglingslegu tíma-
mótum í lífi sínu þegar hún er í raun
hvorki barn né fullorðin. Margar stúlk-
ur á hennar aldri klæða sig á ögrandi
hátt svo þú getur verið fullviss um að
dóttir þín er sker sig ekki úr að því
leyti. Tískan í dag einkennist líka að
miklu leyti af þröngum fötum og gegn-
sæjum blússum og skyrtum og dóttir
þín er örugglega að eltast við tísku-
straumana eins og jafningjar hennar.
Það má vel vera að sjálfsmat hennar sé
ekki mikið en það er heldur ekki óal-
gengt hjá stúlkum á þessum aldri. Það
þarf þó ekki endilega að hafa neitt
með klæðaburðinn að gera og það má
jafnvel horfa á þetta frá öðru sjónar-
miði sem byggir á því að hún hafi
einmitt sjálfstraust, sem endurspeglist í
ákveðinni dirfsku í klæðaburði.
Það sem skiptir meginmáli hér eru
viðbrögð þín og hvernig þú kýst að
nálgast „vandamálið". Þú mátt vera
viss um að vopnin munu snúast í hönd-
unum á þér ef þú hefur þann háttinn á
að banna dóttur þinn að klæðast þeim
föt-
um sem
hún vill vera í. Þá
mun hún að öllum
líkindum bregðast
ókvæða
við og
jafnvel
klæða
sig á enn meiri ögrandi hátt. Hún gæti
þess vegna gert það án þinnar vitundar
með því að fara sakleysislega klædd út
úr húsinu með pínupilsið og svarta
brjóstahaldarann í töskunni og skipt
síóan um föt. Reyndu að koma þínu
sjónarmiði á framfæri með því að
skýra fyrir henni að þú óttist um öryggi
hennar á kvöldin. Þú skalt nota tæki-
færið í þessum samræðum og ítreka við
hana að vera aldrei ein á ferð á kvöld-
in, stíga aldrei upp í bíl hjá ókunnum
og að hún láti þig vita um ferðir sínar
ef henni seinkar. Að öðru leyti er
heppilegast fyrir þig að reyna að horfa
á umbreytingar gelgjuskeiðs dóttur
þinnar sem jákvætt og skemmtilegt
tímabil sem þið getið farið saman í
gegnum og báðar notið góðs af.
54 Vikan
Netfang: vikan@frodi.is