Vikan - 15.02.2000, Page 60
ERFID ÆSKUAR
Leikkonan Rene RUSSO verður 46 ára hinn 17. febrúar.
Hún er ein af fáum fyrirsætum sem hafa náð að skipta
yfir í leiklistina með góðum árangri. Rene fær núna 350
milljónir króna fyrir hverja mynd og hefur leikið á móti
hetjum eins og Mel Gibson, Clint Eastwood, Pierce
Brosnan, Kevin Costner og John Travolta. Rene ólst upp
við fátækt með móður sinni og systur í skuggahverfi í
Burbank, þar sem ofbeldi og eiturlyf voru fastir þættir í
tilverunni. Mamma hennar vann í flugvélafyrirtæki á dag-
inn og sem gengilbeina á knæpu á kvöldin. Pabbi hennar
var listamaður sem yfirgaf mæðgurnar þegar Rene var 2
ára og yngri systir hennar var nýfædd. Hann lést á síð-
astliðnu ári. „Hann átti 12 eða 14 börn og var alltaf að
flakka á milli kvenna," segir Rene. Táningsárin voru ekki
mjög hamingjurík hjá Rene því frá 10 til 14 ára aldurs
var hún með bakspelku sem hún mátti aðeins taka af
einu sinni á sex mánaða fresti. „Á þessum aldri er maður
að móta sjálfsálit og mér fannst ég vera algjör lúði. Mér
var mikið strítt.“ Nú stríðir enginn þessari glæsilegu konu.
SONURINN HŒTT KOMINN
Stórsjarmörinn lOhll Travolta segist aldrei hafa verið
hamingjusamari. Hann á von á sínu öðru barni með eig-
inkonunni, Kelly Preston, en fyrir eiga þau soninn Jett.
Þau eiga allt sem hugurinn girnist en Travolta veit vel að
það er stutt milli hláturs og gráts og peningar eru engin
trygging fyrir hamingju. Hann segist hafa gengið í gegn-
um erfiðustu lífsreynslu sína þegar minnstu munaði að
hann missti son sinn. Jett veiktist alvarlega eftir að hafa
óvart komist í tæri við teppahreinsiefni. „Ég sturlaðist
alveg," segir Travolta. „Ég hef aldrei verið eins stressað-
ur. Hann fékk alls konar einkenni, líkaminn bólgnaði upp
og hann fékk rosalegan hita. Hann var næstum dáinn.“
Travolta og Preston voru að hreinsa teppinn í húsi sínu og
áttuðu sig ekki á því að eiturefnin sem notuð voru höfðu
ekki þornað þegar þau Jett fór að leika sér á því. „Hann
borðaði eitthvað sem hafði dottið á gólfið. Þegar einkenn-
in byrjuðu fórum við með hann í flýti á sjúkrahús og sem
betur fer var japanskur læknir á vakt sem áttaði sig fljótt
á hvað hafði gerst."
FYRST OG FREMST
Leikkonan Cvbill Shepherfl vakti
mikla athygli á síðastliðnu ári þegar
hún sagðist vera „í alvöru að íhuga
að bjóða sig fram til forseta.1' Nú er
kosningaslagurinn byrjaður og
Cybill fylgist spennt með. Cybill
verður fimmtug hinn 18 febrúar og
telur sig hafa ýmsa kosti sem for-
seti þarf að hafa til brunns að bera.
Hún yrði líka fyrsti kvenkynsforseti í
sögu Bandaríkjanna og fyrsti for-
setaframbjóðandinn sem hefur átt í
ástarsambandi við Elvis Presley.
„Ég held að Cybill gæti komið ýms-
um góðum málum áleiðis, eins og
henni einni er lagið," segir Gloria
Allar, kunnur lögfræðingur í Banda-
ríkjunum sem hefur hvatt leikkon-
una tilaðbjóða sig fram.
A