Menntamál - 01.08.1942, Page 59

Menntamál - 01.08.1942, Page 59
MENNTAMÁL 4ð er nú horfin af lista Ríkisútgáfunnar og tel ég það illa farið. í sambandi við þessar hugleiðingar er ekki fjarri lagi að minnast á Skólaljóðin. Um þau hefur Jón Magnússon skáld ritað áður, og gagnrýnt þau og að ýmsu leyti rétti- lega. Þau eru líkari því að vera samin sem sýnishorn ís- lenzkra ljóða ætluð útlendingum en ekki íslenzkum börn- um. Mörg kvæðin eru algerlega ofvaxin skilningi barna. Ýmsir finna þeim það til foráttu, að sleppt sé mörgum góðum skáldum, og ekki er því að neita, að æskilegt væri að skólaljóð hefðu inni að halda ljóð eftir sem flest góð- skálda vorra. En hlutvérk skólaljóða er ekki fyrst og fremst að vera sýnishorn bókmennta, heldur miklu fremur að vekja smekk barna og unglinga fyrir ljóðlist. Því er það meiri óréttur, bæði skáldinu og nemandanum, að birta í skólaljóðunum þau kvæði eftir skáldið, sem börnin ekki skilja og fá því andúð á, en þó skáldinu sé alveg sleppt. Hitt er ráð að vekja áhuga unglinga fyrir ljóðum með því að kynna þeim fyrst hin léttari ljóð í þeirri von, að þeir kynni sér stórskáldin jafnóáðum og þeir öðlast þroska til að meta þau. Ekki væri rétt að skiljast svo við bækur til íslenzku- kennslu, að minnast ekki á málfræðina. Hin nýja málfræði styðst að miklu leyti við nýjar að- ferðir við íslenzkukennslu, þar sem leitast er við að setja efnið rökréttar fram en áður var. Slíkt er vitanlega til bóta, ef það tekst. Þarna skortir meira á skýra og ein- falda framsetningu en í málfræði Benedikts Björnssonar. En í námsbókum barna er einföld framsetning engu síður nauösynleg en rökrétt niðurskipun, og vankantur er það á hinni rökréttu niðurskipun, að framan til í bókinni er gert ráð fyrir þekkingu á atriðum, sem fyrst koma fyrir síðar í bókinni. Þannig virðist gert ráð fyrir að

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.