Menntamál - 01.08.1942, Blaðsíða 70
60
MENNTAMÁL
Kosning í stjórn S. í. B.
Kjörnir hafa verið í sambandsstjórn fyrir næsta kjörtímabil:
Sigurður Thorlacius (endurkosinn), Aðalsteinn Sigmundsson (end-
urkosinn), Arngrímur Kristjánsson (endurk.) Gunnar M. Magnúss
endurk.), Pálmi Jósefsson (endurk.), Ingimar Jóhannesson (nýr),
Jónas B. Jónsson (nýr). — Þess skal getið, að Guðjón Guðjónsson
baðst undan endurkosningu, en hann hefur átt sæti í sambands-
stjórn um 20 ára skeið.
Norsk flóttabörn á íslandi.
Allmörg norsk flóttabörn hafa komið með aðstandendum sínum
hingað til lands sökum styrjaldarástandsins í Noregi. í Reykjavík
hefur norskur prestur haldið uppi kennslu í sumar fyrir norsk börn.
Húsnæði hefur hann haft í Austurbæjarskólanum.
Ávarpið
til norsku kennarastéttarinnar frá ísl. kennurum, sem birt er í þessu
hefti, vakti mikla gleði meðal forráðamanna Norðmanna hér á landi.
Efni þess var samstundis símað til Englands og síðan lesið í norska
útvarpstímanum. Sendiherra Norðmanna hér lét þau orð falla, að bók-
fellið með vinarkveðjunni myndi hann geyma sem kjörgrip, þar til
friður kæmist á og hægt væri að skila honum til réttra hlutaðeigenda
Innanlands námsferðir.
Ritstjórinn vill sérstaklega vekja athygli á hugmynd Marinós L.
Stefánssonar um innanlands námsferðir kennara. Kennarafélag Eyja-
fjarðar hefur einnig samþykkt tillögu, sem stefnir í þessa átt. Væri
vel, ef hægt væri strax á næsta ári að hefja slíkar náms- og hress-
ingar ferðalög.
Saga alþýðufræðslunnar.
Nokkrir kaupendur Menntamála hafa pantað Sögu alþýðufræðsl-
unnar. Kaupendur M.m. fá ritið með góðum kjörum, 8,00 kr. heft og
10,00 kr. bundið. Má teljast nauðsynlegt fyrir hvern kennara að hafa
í bókasafni sínu þetta eina heimildarrit um alþýðufræðsluna í land-
inu á liðnum tímum.
Dráttur
hefur enn orðið á útkomu þessa heftis. Væntanlega verður hægt að
koma öllum árganginum út fyrir áramót. Næsta hefti verður aðallega