Menntamál - 01.08.1942, Qupperneq 66
56
MENNTAMÁL
Á sýningunni voru meðal annars: Vinnubækur í ýmsum náms-
greinum, teikningar, skrift og handavinna stúlkna. Handavinnu-
kennslu nutu 33 stúlkur og sýndu 128 stykki, þar af 55 stór stykki
svo sem peysur, púðar, kaffidúkar og gluggatjöld.
Handavinnukennari er frk. Einarína Guðmundsdóttir.
Þrjár Rauða-Kross-deildir störfuðu í skólanum, Æskudáð, Æsku-
von og Æskugleði (6,5 og 4,6). Elsta deildin hélt fundi vikulega,
voru þá gefnar skýrslur um störf deildarinnar og athugað hvaða með-
limir hefðu ekki haldið settar reglur. Þá starfaði sérstök málvöndun-
arnefnd, sem gaf skýrslu á hverjum fundi. Vandlega var þess gætt,
að fundirnir færu fallega og skipulega fram.
Það skal tekið fram, að reynt var að hafa sem mestan hátíða- og
alvörublæ yfir skólasetningu og skólauppsögn.
Hér á Eskifirði ber nokkuð á hljóðvillum meðal barna, eins og
víðar á landinu. Höfum við tekið upp þá reglu við einkunnagjöf
hljóðvilltra barna að dæma ekki eftir því hve margar hljóðvillur koma
fyrir í stílnum, heldur draga 1—2 heila frá réttritunareinkunn barns-
ins (án tillits til hljóðv.) eftir því hve hljóðvilla þess er yfirgrips
mikil.
Börnum í elzta bekk skólans eru jafnan gefnar einkunnir fyrir
málfræði — kunnáttu og vankunnáttu — enda þótt ekki beri skyldu
til þess og þær séu ekki reiknaðar með til aðaleinkunnar.
Skúli Þorsteinsson.
Vorskólinn.
í Reykjavík féll vorskólinn niður að þessu sinni, sökum styrjaldar-
ástandsins. Víða um land, þar sem hernaðarástand ríkti, féll vor-
skólastarfsemi niður.
Miðbæjarskólinn
í Reykjavík er í sumar leigður Rauða Krossi Bandarikjanna. Er
hann notaður sem hvíldarheimili fyrir hermenn úr setuliði Banda-
ríkjanna, sem hér dvelur.
Kennaraþing
verður háð fyrstu viku september n. k.
Fræðslumálaskrifstofa í Reykjavík.
Fulltrúi fræðslumálastjóra, Helgi Elíasson, hefur getið þess í við-
tali við blöð í Reykjavík, að nauðsyn beri til þess að stofna skrif-
stofu í Reykjavík, er hafi með höndum fyrirgreiðslu um skólamál