Menntamál - 01.12.1943, Blaðsíða 38
84
MENNTAMÁL
ræðislöndunum, þar sem kennarar höfðu gerzt brautryðj-
endur í mörgum menningarmálum. Árásir á kennarastétt-
ir landanna og Alþjóðasamband stéttarinnar var að vissu
leyti forleikur hinna trylltu ofsókna gegn heilbrigðri hugs-
un i veröldinni, sem náði hámarki sínu í djöfulmagni nú-
verandi heimsstyrjaldar.
Önnur atriði þingsetningarinnar voru þau, að Haraldur
Björnsson og Sigurður Magnússon lásu þátt úr Pétri Gaut
eftir Henrik Ibsen í þýðingu Einars Benediktssonar, en
undirleik og millileik önnuðust Jóhann Tryggvason, Ólafur
Markússon og Páll Halldórsson, allir söngkennarar í Reykja-
vík. Þeir léku einnig Tema með tilbrigðum úr sextett, op.
20 eftir Beethoven.
Jóhannes skáld úr Kötlum las upp kvæðið Góðra vina
fundur, — innilegt minningarljóð um hinn nýfallna for-
mann kennarasambandsins, Aðalstein Sigmundsson og vin
hans, Færeyinginn Símun av Skarði.
Samkór Reykjavíkur, undir stjórn Jóhanns Tryggvason-
ar, kom þarna í fyrsta skipti fram opinberlega og söng
nokkur lög. Að lokum reis þingheimur úr sætum sínum og
söng þjóðsönginn: Ó, guð vors lands.
Var hinn virðulegasti svipur á athöfninni og hátíðlegur.
Næsta dag, sunnudaginn 20. júní, var 1. fundur upp-
eldismálaþingsins settur í kvikmyndasal Austurbæjar-
skólans. Foi’setar þingsins voru kjörnir: Jón Þ. Björnsson,
skólastjóri á Sauðárkróki, Sigurður Jónsson frá Stöpum,
skólastjóri í Mýrarhúsum og Steinunn Bjartmarsdóttir,
kennari í Reykjavík.
Ritarar voru kjörnir: Eiríkur Sigurðsson, Akureyri, Jar-
þrúður Einarsdóttir, Reykjavík, Hákon Helgason, Hafnar-
firði og Ragnheiður Finnsdóttir, Klébergi.
Þennan sama dag var opnuð í Austurbæjarskólanum sýn-
ing á teikningum og handavinnu úr Handíðaskólanum.
Lúðvíg Guðmundsson, skólastjóri, flutti ræðu, skýrði frá
starfi skólans og sambandi hans við kennarastéttina. —