Menntamál - 01.12.1943, Qupperneq 41
MENNTAMÁL
87
Vm áfengisnautn og tóbaksnotkun.
Almenna kennaraþingið lítur svo á, að eins og nú standa
sakir í landi voru, beri brýna nauðsyn til þess, að allir
kennarar barna og unglinga beiti sér af alefli gegn þeirri
hættu, er æskulýð landsins stafar af áfengis- og tóbaks-
nautninni.
Námsbœkur, lestrarbœkur, handbœkur.
Almenna kennaraþingið telur nauðsyn á:
1. AÐ gefnar verði út fyrir barnaskólana stuttorðar
kennslubækur í sögu, landafræði og náttúrufræði, hæfar
til utanað náms og að efni til hæfar til að fullnægja kröf-
um til fullnaöarprófs.
2. AÐ núverandi kennslubækur í nefndum námsgreinum
verði síðan auknar og bættar sem lesbækur.
3. AÐ út verði gefnar handbækur fyrir kennara í sömu
greinum.
Heimili og skóli.
Almenna kennaraþingiö skorar á kennslumálastjórnina,
aö styrkja uppeldismálaritið „Heimili og skóli“, fjárhags-
lega, þar eð nú er brýn þörf slíkra rita, vegna óvenjulegs
tíma, en hinsvegar örðugt að koma af stað slíkri útgáfu,
svo að hún beri sig fjárhagslega.
Heimilismenning o. fl.
Þar eð uppeldismálaþingið 1943 treystir því, að sigur-
vegarar þessarar styrjaldar virði sjálfsákvörðunarrétt sér-
hverrar smáþjóðar til þess að lifa sjálfstæðu menningar-
lífi, stjórnskipulega og menningarlega og þar eð þjóð vor
á allt undir því, að sá skilningur verði ríkjandi, en hins-
vegar víst að stjórnfrelsi þjóöar byggist fyrst og fremst á
menningu hennar, þá beinir þingið þeirri áskorun til kenn-
ara, heimila, kirkju og kennslumálastjórnar, að vinna af
alefli að því í kennslu, uppeldi og löggjöf, að sérhver æsku-