Menntamál - 01.12.1943, Blaðsíða 43
MENNTAMÁL
89
Varúðarmerki.
HiS almenna kennaraþing 1943 beinir þeirri eindregnu ósk
til Slysavaínafélags íslands, a'ö það hlutist til um, aö sett
verði upp varúöarmerki viö hættulega en sérkennilega staöi,
þar sem fólk safnast saman í hópferðum. Jafnframt sé
gerð athugun á því, hvort ekki sé hægt á einstökum stöö-
um að koma við nokkrum lagfæringum í öryggisskyni.
Háttprýði og siðfágun.
Kennaraþingið ályktar, að fela stjórn S. í. B. aö láta
athuga í samráöi viö yfirstjórn fræðslumálanna, á hvern
leggja allt námsefnið fyrir í einu, þegar þau hafa náð
fágun æskulýösins.
Fullnaðarpróf á tveimur árum.
Alm. kennaraþing fer fram á þaö viö fræöslumála-
stjórnina, aö hún heimili barnaskóium landsins að láta
12 ára börn þreyta fullnaðarpróf í landafræði, sögu og'
náttúrufræði að nokkrum hiuta, svo aö ekki þurfi aö'
leggja allt námsefnið fyrir í einu, þegar þau hafa náö
venjulegum prófaldri.
Framanskráðar tillögur, sem allar náöu einróma sam-
þykki þingheims, eru birtar hér til athugunar og eftir-
breytni. í sumum tillögunum felast nýmæli, mjög merki-
leg og mega alls ekki niöur falla. Er þess vænst, aö frum-
mælendur, tillögumenn og þá aðrir áhugamenn muni hvað
talað var á þinginu og fylgi kjarna málanna fram til sigurs.
Þingi'ð sendi samúðarskeyti til norskra kennara og kenn-
arasambands Frakklands.
í lok þinghaldsins var haldið kaffisamsæti í IÖnó. Sátu
þaö hóf um 110 manns. — Var þa'ð mál manna, aö þingiö
hefði tekizt giftusamlega og hreyft mörgum merkum og
tímabærum viöfangsefnum.
G. M. M.