Menntamál - 01.03.1950, Blaðsíða 26
20
MENNTAMÁL
þessa skólastigs brýnni hér í Reykjavík en víðast annars
staðar. Því veldur hinn geysilegi nemendafjöldi og tak-
mörkuð kynni unglinga höfuðstaðarins af atvinnulífi þjóð-
arinnar. Hitt er þó enginn vafi, að flestum kaupstaðaskól-
unum mun þörf aukinna möguleika til hagræns náms, þar
sem betur sé tekið tillit til námsgetu unglinganna og þarfa
þjóðarinnar en nú er. Framkvæmd skólalöggjafarinnar
kostar nú milljónatugi ár hvert. Þess er því trauðla van-
þörf, að tryggt sé sem verða má, að þessu fé sé ekki sóað
í vafasamar skólasetur. Hér telur Landssamband fram-
haldsskólakennara sig hafa miklu verki að sinna, og vill
það mælast til aðstoðar allra uppalenda um lausn þessara
vandamála.
I hagsmunabaráttu kennara hefur L. S. F. K. tekið þátt
við hlið annarra launþegasamtaka í B. S. R. B. Nýlega
hefur það unnið sigur, sem öllum stundakennurum nýtist
af, þar sem það hefur fengið rétt þeirra viðurkenndan til
sömu launauppbóta og öðrum starfsmönnum ríkisins eru
greiddar. Sú barátta hefur orðið alllöng og kostað mörg
spor, en mestu skipti, hve árangursrík hún varð.
Jafnhliða hefur sambandið unnið í vetur að ákveðnum
tillögum um launakjör kennara í sambandi við endurskoð-
un þá, sem nú fer fram á launalögunum. Mun sambandið
standa eftir mætti á verði um hlut kennara, en vitanlega
er engu hægt að lofa um árangur.
Þá verða ekki talin að þessu sinni fjölmörg smærri mál,
sem L. S. F. K. hefur fjallað um á stuttum æviferli sínum.
Sumu hefur þar verið stýrt í höfn, öðru nokkuð áleiðis,
en vitanlega höfum við ekki fengið öllum óskum okkar
framgengt. Væri sjálfsagt mörgu þokað lengra, ef stjórn-
armenn væru ekki allir mjög störfum hlaðnir, hver við sinn
skóla.
Sjálfsagt er og ljúft að geta þess, að fræðslumálastjórn
hefur tekið þessum ungu samtökum með miklum skilningi
og viðurkennt þau með ýmsum hætti. Það styrkir stjórn-