Menntamál


Menntamál - 01.03.1950, Page 29

Menntamál - 01.03.1950, Page 29
MENNTAMÁI, 23 og höfum því sennilega báðir haft skilyrði til þess að kynn- ast síðustu kynslóð 19. aldarinnar, enda þótt við séum ekki fæddir fyrr en eftir aldamót. Fyrst, þegar ég man eftir mér og heyrði á deilur manna um guðfræðileg efni, voru þeir kallaðir rétttrúaðir, sem trúðu biblíunni orði til orðs, ekki aðeins trúarboðskap henn- ar, heldur landfræði hennar og náttúrufræði. Þessir menn fóru tvær leiðir, þegar þeir vörðu málstað sinn fyrir gagn- rýnendum. Önnur leiðin var að halda í bókstaf biblíunnar, alveg án tillits til þess, sem vísindin sögðu. Ég minnist þess, að einu sinni sagði kunnur áhugamaður um trúmál þessa setningu: „Ef ég efast um eitt orð í Biblíunni, þá læt ég hana alla rúlla.“ Þetta var á kirkjulegum fundi í K. F. U. M.-húsinu. Með öðrum orðum, eitt smáatriði í sögulegri eða landfræðilegri frásögn gat fellt alla hina biblíulegu opinberun, ef það reyndist rangt. Hin leiðin var allt annars eðlis. Hún var í því fólgin að viðurkenna vís- indin, en reyna svo jafnframt að sýna fram á, að allt, sem stæði í biblíunni, væri í samræmi við vísindin. Á skóla- árum mínum heyrði ég vel þekktan leikmann flytja fyrir- lestur í K. F. U. M. Hann varði löngum tíma til að sanna, að það væri skoðun biblíunnar, að jörðin væri hnöttótt. Hann tíndi saman tilvitnanir úr ýmsum ritum hennar og varð úr því hinn undarlegasti samsetningur. Þannig hætti gamalguðfræðingunum oftast við að verja ranga náttúrufræði og hæpna sagnfræði, ef Biblían átti í hlut. Vona ég, að Steingrímur Benediktsson sé mér sam- mála um, að það væri engan veginn æskilegt, að þessi skoðun á Biblíunni, sem rétttrúnaður aldamótaáranna hélt fram, yrði gerð að grundvallaratriði í trúarbragða- kennslu skólanna. En — hvað skyldi þá koma í staðinn? Þegar ég rifja upp viðkynningu mína við forgöngumenn nýguðfræðinnar hér á landi, kemur upp í huga mínum hjartanlegt þakklæti fyrir það, að mér skyldi auðnast að

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.