Menntamál


Menntamál - 01.03.1950, Side 49

Menntamál - 01.03.1950, Side 49
MENNTAMÁL 43 aS mest. Síðan má smáþyngja myndastílana með því að hafa þá frjálsari og loks óbundna, þar sem ákveðin mynd er hengd upp og börnunum sagt að lýsa henni — skrifa um hana (12 ára börn). — Aðalatriði stafsetningarkennslu barna er að koma í veg fyrir að þau skrifi rangt. Með þetta aðalmarkmið í huga er bókin samin. Sjónminnið verður að hjálpa yngri börnunum, en skilningurinn þeim eldri. Og skilningur á lögmálum núgildandi stafsetningar fæst með málfræðinámi. Því er sjálfsagt að láta það (málfræði- námið) styðja stafsetningarnámið. Vona ég, að þetta sjón- armið verði augljóst þeim, er bókina nota. — (Ekki má gleyma, að láta börnin læra stafsetningarreglur bókar- innar). Margir ætla að stafsetningarnám sé mjög leiðinlegt fyrir börn. Slíkt þarf ekki að vera, sé þess gætt að beita mismunandi aðferðum til skiptis og skapa þannig fjöl- breytni. Þessar aðferðir er bent á í Stafsetning og stílagerð: 1. Einstök orð, orðalistar. — Teiknun (bls. 5 og 8—11). 2. Lært að mynda setningar (bls. 8—11). 3. Töflustílar. (Ýmiss konar). 4. Skrifað upp úr bók. 5. Lesið fyrir. (Skipulögð kennsla). 6. Myndastílar — bundnir — frjálsir. 7. Eyðufyllingar. (Einst. stafir. Einst. orð). 8. Rímæfingar. (Bls. 14). 9. Endursagnir. 10. Sendibréf — bundin—(bls.31). 11. Sendibréf — frjáls. 12. Nútíð snúið í þátíð — og öfugt (bls. 43—44). 13. Beinni ræðu snúið í óbeina — og öfugt (bls. 45). 14. Bundnu máli snúið í óbundið mál. 15. Ritgerðir ýmiss konar. 16. Upprifjanir. — (Próf m. ýmsu móti).

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.