Vorið - 01.12.1968, Blaðsíða 4

Vorið - 01.12.1968, Blaðsíða 4
fræðingur vorið 1960. Einu ári síðar fór ég í íþróttakennaraskólann og var þar veturinn 1962—1963. — Og svo byrjaðir þú að kenna íþróttir? —- Já, ég kenndi fyrst á Bændaskólanum á Hólum í 3 mánuði veturinn 1963—1964. En frá ]964 hef ég verið íþróttakennari við Barnaskóla Ak- ureyrar. — Og þú stundar alltaf íþróttir? — Já, knattspyrna og íimleikar eru uppáhaldsíþróttir mínar. Ég hef iðk- að knattspyrnu í K. A. frá barnsaldri. Eg hef leikið í meistaraflokki frá 1961. — Þú liefur einnig leikið nokkra landsleiki? —- Já, ég var fyrst valinn í landslið 1961. Frá þeim tíma hef ég leikið í Unglingalandsliði tvisvar, en það er bundið við 24 ára aldur, í B-lands- liði einu sinni og A-landsliði 8 sinnum, og verið varamaður í nokkrum lands- leikjum. Þá hef ég leikið fjölda leikja við ýms úrvalslið. — Svo hefur þú keppt fyrir IBA? — Sjö undanfarin ár hef ég keppt með meistaraflokki Iþróttabandalags Akureyrar. Fjögur síðastliðin ár hefur Einar Helgason, kennari, verið þjálf- ari okkar. Við höfum æft frá áramótum þar til keppnislímabili lýkur. Venju- lega æfum við 3—4* kvöld í viku og allflestar helgar. í þessu liði hafa verið að mestu sömu menn þessi ár og góður andi. Síðast- liðin tvö ár höfum við verið í þriðja sæti í keppninni um Islandsmeistara- titilinn. — Hefur þú nokkuð dvalizt erlendis við iþróttaæfingar? — Eg dvaldi um hálfsmánaðartíma hjá St. Mirren í Glasgow til að kynna mér knattspyrnu. Með því liði lék Þórólfur Beck síðar. — Hvað viltu segja urn íþróttalífið í bænum? — Það er vaxandi áhugi á íþróttum og batnandi aðstaða. Einkum fyrir vetraríþróttirnar m. a. með skíðalyftunni nýju. En tilfinnanleg vöntun er á nýju íþróttahúsi, sem fullnægir þörf skólanna og fyrjr innanhússíþróttir. Þá er mjög bagalegt, live seint er hægt að æfa á útivelli á vorin. Rætt er uni vélfryst skautasvell í framtíðinni. — Nokkuð sérstakt að lokum? — Aðeins þetta: Að sem fyrst verði byggt nýtt íþróttahús, svo að hægt verði að æfa fimleikaflokka til sýninga. 146 VORIÐ E. Sig.

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.