Vorið - 01.12.1968, Blaðsíða 48

Vorið - 01.12.1968, Blaðsíða 48
ERTU RÍKUR? — Ertu ríkur? spurði prestur nokk- ur lítinn dreng. Drengurinn leit ekki út fyrir að vera það. Hann hristi höfuðið og leit niður fyrir sig. Prestinum geðjaðist líklega ekki að fátækum drengjum. — Attu hundrað krónur? — Nei, svaraði drengurinn strax. — Yildir þú ekki gjarnan eiga hundrað krónur? — Ju-ú. — Ágætt þá kaupi ég gimsteinana þína. — Gimsteina — af mér? Ég hef aldrei átt neina gimsteina. — Það getur verið, en þó sé ég þá. Þú átt tvö skær og falleg augu. Ég skal gefa þér hundrað krónur fyrir þau. — Nei, þau sel ég ekki, sagði dreng- urinn svo hátt og skýrt, að presturinn 'kipptist við. — Mundir þú ekki láta þau fyrir þúsund krónur? — Nei, ekki einu sinni fyrir hundrað þúsund. Hvað ætti ég að gera með pen- inga, þegar ég gæti ekki séð neitt af því, sem ég vildi kaupa fyrir þá. — Nei, auðvitað ekki, sagði prest- urinn. — Ég hélt kannski, að þú vildir verða ríkur. — En vinnuáhöldin þín — hvað viltu fá fyrir þau? — Ég á ekki nein vinnuáhöld. — Er það ekki? Þú vinnur daglega með höndum þínum. Eru það ekki vinnuáhöld? Ég þekki lítinn dreng með máttlausar hendur. Segðu mér hve mik- ið þú vilt fá fyrir hvora hendi? Presturinn fékk svipuð svör og áður. — Þá viltu kannski selja mér hest- ana þína, sagði hann að lokum. — Þess- ir tryggu hestar, sem flytja þig áfram á hverjum degi — í skólann og úr skól- anum, út til leikja og inn lil máltíða. Sterkir, góðir hestar, sem geta hlaup- ið hratt. líg þekki þá vel. Drengurinn horfði niður á fætur sér. Hann gat hlaupið hratt, þegar hann vildi. En hann vildi ekki selja þá. -—- Nú hef ég boðið þér þúsundir króna, sagði presturinn. — Ég tel ekki, að sá drengur sé fátækur, sem vill ekki taka boði mínu. — Eg er ekki heldur fátækur, sagði drengurinn og brosti glaðlega. — Aðeins ein spurning að lokum. Fyrst þú vilt ekki selja þessar eignir þínar, — viltu þá nota þær á réttan hátt? — Ég vil reyna það. Vilt þú einnig, sem lest þetta þakka þær gjafir, sem guð heíur gefið þér. Þér hafa verið gefnir hæfileikar, se:n þú átt að nota til góðs. E. Sig. þýddi. 190 VORIÐ

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.