Vorið - 01.12.1968, Síða 15

Vorið - 01.12.1968, Síða 15
BLAÐADRENGU RIN N Ljóshærður drengur fríður sýnum kom inn í blaðaafgreiðsluna. „Yantar hér hlaðadreng?“ spurði hann. „Já, fremur tvo en einn,“ svaraði af- greiðslumaðurinn. Hann sat þar við stórt borð og var að afgreiða hlöð. Og eftir að hafa athugað svæðin, sem um var að ræða, var það ákveðið, að drengurinn tók að sér annað þeirra. „Hvað heitirðu og hvað ertu gam- all?“ spurði afgreiðslumaðurinn. „Ég heiti Ari Helgason og er tíu ára.“ „Sími?“ „Nei, við höfum engan síma.“ „Þá verð ég að treysta því, að þú mætir alltaf til að saíkja blöðin.“ Þar með var þetta mál útkljáð og Ari litli liljóp heim léttur í spori. „Mamma, ég hef fengið vinnu.“ „Hvað erlu að segja, barn?“ „Ég hef tekið að mér að bera út blöð.“ „Heldurðu að þú hafir tíma til þess frá skólanum?“ „Já, ég legg bara svolítið meira að mér. Ég ætla að safna mér fyrir skíð- um. Allir strákar í mínum bekk eiga skíði.“ „Jæja, góði minn. Þá reynir þú það.“ Móðir hans var í eldhúsinu og var að taka til matinn. Hún var þreytuleg, miðaldra kona. Þau Ari og hún bjuggu hér ein í lílilli leiguíbúð. Hún liét Ragna og vann í verksmiðju síðari hluta dagsins. Svo leið fram á veturinn. Ari litli hafði lagt talsvert í sparisjóðsbókina sína og sá tími nálgaðist, að hann gæti keypt sér skíði. Þá var það einn dag, að hann kom heim grátandi, rispaður í framan með rifin föt. Móðir hans tók hlýlega á móti honum,'huggaði hann og lét plást- ur á skrámumar. „Hvað hefur komið fyrir, góði minn? Hvers vegna kemur þú svona útleik- • o u ínn c „Hann Hjálmar í Koti réðist á mig, þegar ég var að enda við að bera út blöðin, kaffærði mig og hrakti. Hann er ári eldri en ég og miklu sterkari. Það var með lionum annar strákur, sem hló stöðugt meðan hann píndi mig. Verst var að ég átti tvö blöð eftir og þeir feyktu þeim út í buskann. „Það er alltaf eitthvað til af illa inn- rættum götustrákum. Við verðum víst að taka þessu eins og hverju öðru mót- VORIÐ 157

x

Vorið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.