Vorið - 01.12.1968, Blaðsíða 42

Vorið - 01.12.1968, Blaðsíða 42
AUÐUN Á EYJUM EFTIR MAGNE WERGELAND Það eru mörg ár síðan þessi saga gerðist. Ég hafði þá fengið fyrstu kenn- arastöðuna mína. Það var á yztu eyj- unum úti í Norðursjónum. Eg var þarna með öliu ókunnugur. Landið kom mér framandi fyrir sjónir. Ég var fædd ur og uppalinn í fjallasveit, þar sem mikill gróður var. En hér var allt nakið og bert. Aðeins lyng og grastoppar til og frá. Og utan við lá hafið. Það var kuldalegur granni. Ég kveið þó engu. en gekk áfram til áætlunarstaðarins og raulaði lagstúf. Allt í einu stóð lítill, berfættur dreng- ur fyrir framan mig. Það var eins og hann kæmi út úr einhverjum klettinum. Buxurnar hans voru bættar og óhrein- ar. Skyrtan var lítið betur á sig kom- in. Hann hafði ljóst hár og kringlótt, sakleysislegt andlit. Nefið var dálítið hátt að framan, en augun voru greind- arleg. Hann leit spyrjandi á mig og mældi mig með augunum frá toppi til táar. „Ert þú nýi kennarinn?‘ spurði hann loks. „Já, þú getur rétt til,“ sagði ég og brosti. Hann var svo hreinskilinn og blátt áfram, þessi litli maður. „Ertu mjög strangur? Gefurðu börn- unum löðrunga?“ spurði hann blátt áfram. „Nei, ekki ef þau eru þæg og góð,“ sagði ég. „En hvers vegna spyrð þú að því?“ „Gamli kennarinn bæði barði og hár- reitti,“ sagði hann. „Það voru allir hræddir við hann.“ „Það var nú ekki gott,“ sagði ég. „En hefur þú verið lengi í skóla?“ „Eg á að byrja í haust.“ „Heldurðu, að ég verði eitthvað betri? ‘ „Þú lítur nú ekki illa út,“ sagði hann og mældi mig enn með augunum. „Þú hefur gleymt að segja mér, hvað þú heitir,“ sagði ég. „Veiztu það ekki? Ég heiti Auðun og er sjö ára gamall í haust. Við erum ellefu, systkinin. Eg á heima þarna norð- an við nesið. Sumir bræður mínir eru orðnir fullorðnir. Ég er tvíburi og á systur, sem er jafngömul mér.“ „Þetta var nú svei mér nokkuð mikið sagt í einu. Þú ert skýrleiksdrengur. Ég ætla að búa á Strönd. Þú getur kannski sagt mér ,hvar sá bær er?“ „Já, það er hérna rétt framundan. 184 VORIÐ

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.