Vorið - 01.12.1968, Blaðsíða 18
F jölskylda
Ríkarðs.
vegna þarf mamma Ríkarðs stóra bíl-
inn. Hún verzlar í afarstórum verzlun-
um langt í burtu, og þangað ganga engir
strætisvagnar. Stundum fer Ríkarður
með mömmu sinni í bankann í bílnum,
og sitja í bílnum meðan þau fá sig af-
greidd gegnum opna rúðu í bankanum.
Þegar mamma ekur í gegnum Mount-
ainside verður hún að fara varlega, því
að börnin leika sér á götunni.
En nú hefurðu fengið að heyra svo-
lítið um byggðarlagið, þar sem Ríkarð-
ur á heima í, nú færðu að heyra svolítið
um hann sjálfan.
Síðbuxur eru bannaðar.
Þegar Ríkarður fer á fætur, verður
hann að búa um rúmið sitt. 011 börnin
á heimilinu verða að gera það, nema
tvo daga vikunnar, þá kemur negrakona
og tekur til í húsinu. Klukkan átta hef-
ur Ríkarður búið sig í skólann (ef börn
eru ekki sæmilega til fara, eru þau send
aftur heim, og stúlkum er bannað að
ganga í buxum, jafnvel á vetrum) og
þá kallar mamma í börnin til að borða
morgunverð.
Ríkarcjur og systkini hans borða á
hverjum morgni eggjarauðu, eitt mjólk-
urglas eða appelsínusafa og ristað brauð
með smjöri.
Klukkan fimm mínútum fyrir hálf
níu hlaupa öll börnin í veg fyrir skóla-
bílinn. Ríkarður hefur nesti með sér og
miða fyrir mjólkurglasi í skólanum.
Börnin fá ekki mat í skólanum.
Það eru aðeins hvít börn í gula skóla-
bílnum, því að það eru aðeins vel stæð-
ar fjölskyldur, sem búa í þessum borg-
arhluta, negrafjölskyldur hafa ekki efni
á að búa þar. En Ríkarður hefur fyrr
meir oft leikið sér við negrabörn og
160 VORIÐ