Vorið - 01.12.1968, Blaðsíða 30

Vorið - 01.12.1968, Blaðsíða 30
KELI: En ætlaði Fógetinn ekki að tala-------- FÓGETÍNN: Hvaða ósvífni er þetta? Heyrðirðu ekki að ég sagði út með þig- KELI: Já, já. (Út.) FÓGETI: (Telur peningana.) 32,50. Já, ekki var þessi burðugur. (Barið.) Kom inn. VALDI: ILerra yfirvaldið vildi tala við mig. FÓGETI: Já — hvað var það nú með þennan? Já, það er alveg rétt. Þú átt rauðskjóttu hryssuna, sem hér er stundum fyrir utan. VALDI: Já, herra fógeti. Ég á hana, blessaða skepnuna. FÓGETI: í gær hafði hún lagt frá sér stóreflis hrúgu, hérna rétt utan við hliðið hjá mér. VALDI: Ó, yðar herlegheit. Það hefur áreiðanlega ekki verið viljandi. Ég skal undireins þrífa þetta. FÓGETI: Það verður þú auðvitað að gera. En er þér kannske ekki ljóst að þetta er stórkostleg óvirðing við keis- aralegan embættismann ? VALDI: Ég bið auðmjúklega afsök- unar. FÓGETI: Þó það væri nú. En hefur jjú gert þér ljóst að þetta getur kostað þig Síberíuvist? VALDI: (Fellur á kné.) Ó, yðar hável- borinheit. FÓGETI: Svona, svona. Af því að þú átt miskunnsamt yfirvald, ])á ætla ég að hlífa þér við að skýra keisaranum frá þessu, en þá verður þú að greiða mér 200 krónur. VALDI: Ó, yðar hávelborinheit, ég sver það að ég á ekki nema 20 krónur til í eigu minni. FÓGETI: Það var leiðinlegt, Valdi minn. Þá er víst ekki um annað að ræða, en Síberíu. VALDI: (Dregur upp skjóðu.) Hérna er aleigan, 40 krónur. En svo eigum við smjörpinkil heima, sem við ætl- uðum að geyma til páskanna, og hann skuluð þér fá. FÓGETI: Jæja, ætli ég sleppi þér ekki með það. Og farðu svo. VALDI: Ég þakka ástsamlega. Og svo skal ég sjá um að sú rauðskjótta óhreinki ekki keisarans snjó. (Fer.) FÓGETI: Já, aurnt er þetta. Það er ekk- ert af þessum ræflum að hafa. Eini maðurinn, sem eitthvað gæti munað um er hann Pétur á Stóru Vöilum. En hann er svo útundir sig, bannsett- ur karlinn, að það er aldrei hægt að hanka hann neitt. En bíðum við. Hvað sagði hann Valdi gamli. Keis- arans snjó. Já, ætli maður verði ekki að reyna. II. ÞÁTTUR. (Stofa hjá Pétri bónda. Pétur situr við borð og er að telja petiinga.) PÉTUR: Ojæja, ojæja. Þetta hefur ékki gengið sem verst, þetta árið. Þrjú, fjögur, fimm. Ójá, fimm þúsund ætti maður að geta lagt inn á bankann. Ekki nein ósköp en betra en ekki neitt. (Hlustar.) Mér heyrist einhver vera að koma. Gáðu að strákur, hver það er. 172 VORIÐ

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.