Vorið - 01.12.1968, Blaðsíða 24

Vorið - 01.12.1968, Blaðsíða 24
tínt í fjörunum, voru sumar blaufar og loguðu illa. „Eg er viss um, að þessi reykur sést langt til af því að það er svo bjart í dag,“ sagði Svanur. „Kannski hann bjargi okkur nú?“ sagði Dóra. „Það er ótrúlegt að hann sjáist ekki einhvers staðar að.“ Þarna við bálið undu börnin á með- an það logaði, en það rauk úr því allan þennan dag. Þegar hætt var nálega að loga, nenntu þau ekki að horfa lengur á það, en gengu heim að tjaldinu. Nú máttu þau hafa sig öll við til að halda sínu góða skapi. Hvað átti nú að taka til bragðs? Þó að nokkuð langt væri liðið frá því að Einar hafði lesið Eyrbyggjasögu bauðst hann nú til að segja þeim ein- hver slitur úr þeirri sögu. Það var hrein- asta sælgæti fyrir hin börnin, og raunar Einar líka, því að hann naut þess að sjá áhuga hinna barnanna fyrir sögunni, þó að hún væri dálítið slitrótt. Hann mundi þó nokkurn veginn eftir drauga- ganginum á Fróðá, og ef það hefði ekki verið glaðasólskin, þegar sagan var sögð, myndu þau Dóra og Svanur hafa orðið „myrkfælin“. Því að svo magnaða draugasögu höfðu þau ekki heyrt áður. Vegna þess, hvað Eyrbyggjasaga var slitrótt í meðförum Einasr, entist hún ekki lengi. Þá fóru börnin að segja hvort öðru sögur, sem þau kunnu þó öll, svo sem sögumar af Mjallhvít, Þyrnirós, Hans og Grétu, að ógleymdri Búkollusögunni. En börnin drukku þetta í sig eins og þau hefðu aldrei heyrt það áður. Þau voru alltaf að hlusta eftir flug- véladyn og horfa upp í loftið, en ekkert gerðist. Þau trúðu því ekki, að flug- vélarnar, sem sennilega voru að leita, færu alltaf fram hjá þessari ey... . En hvernig færi nú, ef leitinni yrði hætt, vegna þess, að hún væri talin vonlaus? Þau þorðu ekki að segja þetta upphátt. Þau þorðu varla að hugsa þetta. Það var svo hræðilegt. Nei, þau ásettu sér hvert í sínu lagi að hugsa ekki svona hugsanir. — Þessi dagur leið einnig að kvöldi. Börnin voru nú með daufasta móti. Meðal annars vegna þess, að nú var all- ur matur genginn til þurrðar. Þau áttu þó enn eftir dálítið af drykkjarvatni, en það var glóðvolgt og svalaði illa þorsta. Þau þorðu þó ekki annað en spara þetta vatn, þótt þau væru sárþyrst. Nú gátu þau sett sig í spor þeirra manna, sem ráfuðu um vatnslausar eyðimerkur í brennandi sólarhita, og þó voru kjör þeirra ólíkt betri. Um kvöldið sofnuðu þau í þungu skapi. Kannski bænirnar þeirra hafi líka verið með heitasta móti þetta kvöld? Þau sofnuðu þó fljótlega og sváfu draumlausum svefni til morguns. — Fjórða daginn á eynni vöknuðu þau við það að sólin skein á tjaldið þeirra. Nú var ekki um neinn morgun- verð að ræða. Þau lögðu því af stað út á eyna til að leita að eggjum, sem þau ætluðu að súpa úr til að svala hungri sínu. Þau gerðu margar tilraunir að finna egg, sem ekki voru orðin unguð, en það ætlaði ekki að ganga vel. Þau vildu sem sé ekki súpa úr eggjum nema 166 VORIÐ

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.