Vorið - 01.12.1968, Blaðsíða 39

Vorið - 01.12.1968, Blaðsíða 39
ið að þakka. Amma hans sagði það, þegar hún fékk honum peningana. — Honum má ekki gleyma! Og nú \'eit Áki, að þessi orð hafði hún eftir öðr- um, frá bankastjóranum, bezta félaga föður hans. En félagar mínir, hugsar Áki og renn- ir huganum aftur að öllu því, sem ger- ist í kringum hann, muna þeir eftir honum? Þeir hlaupa um á tveimur heilbrigð- um fótum og skemmta sér vel. Þeir selja og kaupa, augu þeirra eru hnöttótt af æsingi, meðan hann situr hér einn og bíður eftir einhverju, sem ef til vill verður ekkert af. Einhver sárindi og beiskja hreyfa sig hið innra með honum — þar til hann sér Hjördísi með rjóðar kinnar og liorfir í augu henni. Þá hverfur beiskj- an og hann ætlar að standa á fætur og fara til hennar, en þá kemur einhver og er í vegi fyrir honum. Hvað er um að vera? Hávaðinn eykst. Það er ýtt til allra hliða. Áki er klemmd- ur upp að veggnum og reynir að gera sig eins lítinn og unnt er. — Það eru drengirnir af Völlum, sem eru komnir, og hann hafði sjálfur boðið. — Jón og Níels og þrír aðrir. Þeir veifa og ýta frá sér. Hárlokkarnir standa í allar ált- ir og það sést í ljósgulu knattleiksblúss- urnar, þegar jakkinn er óhnepplur. Þeir kinka kolli til Áka. Svo ryðja þeir sér braul að gosdrykkjunum. Stundarkorn er eins og Björndælingar hafi misst málið. Þeir þrengja sér sam- an og gefa gestunum rúm. Þeir sjá hvernig Vallnadrengirnir fara ofan í vasa sína eftir aurum, hvernig þeir setja flöskurnar á munninn, snúa botn- inum upp, standa eins og stálfjöður, þar til þær eru tómar. Þetta eru piltar, sem vita hvað þeir vilja, heimadreng- irnir geta ekki annað en dáðst að þeim. En gestirnir eru ekki komnir til að sitja inni. Áki var eitthvað að tala um knattspyrnu, að Björndælir vildu Iáera þá íþrótt, og nú er tækifærið. — Þeir fleygja jökkunum á bekk og eru um leið horfnir út um dyrnar. Það er ekki hægt að segja,' að Mó- sléttan sé orðin góður leikvöllur. Það er bleyta þar, sem rutt hefur verið. En V allnadrengirnir kæra sig kollótta. Þeir hafa sýnikennslu fyrst. Þeir leika sér að knettinum og senda svo hörð skot að markinu, að knötturinn skríð- iur í markið með fram markstöng- inni. Svo benda þeir fleirum að koma. Og þarna eru fljótlega komin tvö lið. En það eru bæði piltar og stúlkur frá tíu ára til fermingaraldurs. Gestiniir skipa sér í bæði liðin. Þeir senda knöttinn á milli, kalla og klappa saman höndunum, skjóta sjálfir eða reka hina áfram. Þeir þurfa að læra að slá knöttinn bæði með höfðinu og fótun- um, og þeir þurfa að læra að skjótast áfram, þar til tími er til að skjóta á markið. Knötturinn er rennandi blaut- ur, en leikmenn kæra sig kollótta. Að lokum er varla hægt að sjá mun á kenn- urunum og nemendunum. Það er eins og allir hafi gleymt íþróttaskálanum. Gosdrykkjaflöskurnar og kaffikönnurnar standa óhreyfðar, og VORIÐ 181

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.