Vorið - 01.12.1968, Blaðsíða 12

Vorið - 01.12.1968, Blaðsíða 12
til sín, þar sem að honum var hlúð. Ekki varð honum meint af þessu volki. Foreldrar Orra höfðu enga hugmynd um þennan atburð fyrr en hann kom heim rennblautur og dasaður. Hann hafði hlaupið heim, þegar hann var bú- inn að bjarga litla drengnum, en kærði sig ekki um neitt þakklæti eða læti út af þessum atburði. Þeim hjónum brá í brún, þegar Orri kom inn á eldhúsgólfið og vatnið lak úr honum. Hann sagði þeim í stuttu máli frá því, sem gerzt hafði eins og það hefði verið sjálfsagður hlutur. Móðir. hans færði hann úr fötunum og háttaði hann ofan í rúm. Honum varð ekkert meint af þessu baði. En á eftir áttu hjónin langt samtal. Líður nú nóttin og fram undir há- degi næsta dag. Orri var heima við og sat nú inni í stofu með foreldrum sín- um. Allt í einu er barið að dyrum. Þarna voru þá komnir foreldrar litla drengs- ins, sem Orri hafði bjargað frá drukkn- un kvöldið áður, Ólafur kaupmaður og kona hans. „Við erum hingað komin til að þakka þér, Orri minn, fyrir björgunina á Grétari litla, syni okkar. Þú hefur gefið okkur það dýrmætasta, sem við eigum, en það er líf drengsins okkar. Það er svo mikil gjöf, að hana er ekki hægt að þakka á nokkurn háU. En til að sýna þér einhvern þakklætisvott komum við með litla gjöf, sem við biðjum þig að þiggja. Við höfum fengið að vita, að þú átt ekkert reiðhjól.“ Nú hrá Olafur sér fram á ganginn og kom. inn með skínandi fagurt reiðhjól. Það var ein- mitt svona hjól, sem Orra hafði svo lengi langað til að eiga. „Sjáðu, viltu þiggja þetta frá okkur öllum?“ Augu Orra ljómuðu af gleði og hann gekk til þeirra Ólafs og konu hans og kyssti þau hvort í sínu lagi og þakkaði þeim gjöfina. Það var enginn mála- myndarkoss, heldur fólst í honum inni- legt þakklæti. Þegar hjónin komu inn með þessa gjöf, brá föður Orra. Nú höfðu þessi ókunnu hjón tekið frá honum tækifær- ið, sem hann hafði lengi sleppt, til að gera góðverk. Að vísu myndi það tæki- færi koma aftur, en ekki á sama hátt. Hann hafði beðið óþarflega lengi með að gefa þessa gjöf og nú var það orðið of seint, og svo komu þessi ókunnu hjón og tóku frá honum tækifærið, sem hann hafði svo lengi dregið að nota. Hann mátti sjálfum sér um kenna. En hann sveið dálítið í hjartað, þegar Orri var að þakka þeim fyrir gjöfina. Þennan koss hefði hann viljað fá. Þessum atlot- um hafði hann hafnað. Hann skyldi reyna að bæta þetta upp þótt síðar væri. Hann skyldi sýna Orra litla meiri skiln- ing og nærgætni, meira umburðarlyndi. Orri hafði sýnt af sér hetjudáðir, er hann bjargaði litla drengnum, en hugs- aði ekkert um sitt eigið líf. Kannski var þetta allt meira virði en reiðhjólið. Föður Orra fannst nú allt i einu 1. einkunnin verða svo sára lítils virði. Orra þótti að vísu vænt um reiðhjólið, en enn vænna þótti honum þó um það að hann hafði eignazt skilning og um- liurðarlyndi föður síns. H. J. M. 154 VORIÐ

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.