Vorið - 01.12.1968, Blaðsíða 19

Vorið - 01.12.1968, Blaðsíða 19
hefur ekkert á móti því. RíkarSur veit, að negrar eru ofsóttir í Ameríku. Eng- inn þarf að skýra fyrir honum hvað það er, að vera hæddur vegna kynþátt- ar síns. Ríkarður er af gyðingaættum, og þó að hann búi í hverfi, þar sem menntað fólk býr, hefur Ríkarður oft heyrt börn kalla á eftir sér „gyðinga- ormur“ eða „gyðingaþrjótur“. Tíðar kirkjugöngur. Sidney pabbi, Conny mamma og Ríkarður ræða oft um þessi mál. Rík- arður hefur lært að virða annarra skoð- anir án tillits til trúarl)ragða, litarliáll- ar eða efnahags. Og nú komum við að öðru efni, sem gerir Ríkarð að týpisk- um amerískum dreng: Hann trúir á guð og fer oft í kirkju. Ásamt Margréti syst- ur sinni les Ríkarður einu sinni í viku hebresku hjá rabbí (gyðingapresti) sínum, eftir þrjú ár hefur hann lært nóg til að verða fermdur. Þá verður hann fullgildur meðlimur í söfnuði gyðinga, 13 ára gamall. Pabbi Rikarðs segist greiða mikið fé árlega til must- erisins og safnaðarstarfsins, eða um 15000 krónur. En í skóla Ríkarðs er ekki talað mikið um trúmál. Þar er engin morgun- bæn. Hver dagur í skólanum hefst með fánahyllingu og á eftir syngja börnin ameríska þjóðsönginn. „Fótbolti“ með höndunum. Stundum leikur Ríkarður sér í „fót- bolta“ eftir skólatíma. Amerískur „fótbolti“ er aflangur, og Margrét systir Ríkarðs les rneð honum. þar er ekki leikið aðeins með fótun- um heldur bæði með höndum og fótum. Tvo daga í viku leikur Ríkarður „fót- bolta“. Aðrir fastir liðir í hverri viku eru: Einn dag vikulega: Að læra á slag- hörpu (píanó). Einn dag vikulega: (laugardag) í „sunnudagsskóla“. Einn dag vikulega: Kennsla undir fermingu. Einn dag vikulega: Skátafundur. Einn dag vikulega: Leikfimi. Einn dag vikulega: Til guðsþjónustu. Það er skiljanlegt, að Ríkarður hef- ur nóg að gera. Þar að auki les hann margar bækur (t. d. Róbínson Krúsó), hjólar, horfir á sjónvarp, fer í kvik- VORIÐ 161

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.