Vorið - 01.12.1968, Blaðsíða 37

Vorið - 01.12.1968, Blaðsíða 37
FRAMHALDSSAGAN: NÝI LEIKVANGURINN EFTIR SVERRE BY, SKÓLASTJÓRA 12. kafli. Sennilega léttir til í kvöld. Skýin hverfa, og sólargeislarnir skína glað'- lega á hópinn, sem er á leið að nýja leikvanginum. En regnvatnið er ekki horfið. Það hangir í þungum dropmn á blöðunum, greinum og stráum. Það kemur í stríðum straumum frá báðum dalahlíðunum og gerir Bjarnarána að stóru fljóti. Flestir verða að taka á sig stóran krók, því að áin rennur yfir brúna á þjóðveginum. Þeir nota gangbrúna, enda er hún rétt á móti leikvellinum. Hún er líka traust, því að fjórir plank- ar hver við hliðina á öðrum, ættu að vera öruggir þennan stutta spöl. Það er aðeins óþægilegt að heyra þennan há- væra straum rétt undir skósólunum. En það setur unga fólkið ekki fyrir sig. I>eir hafa aðeins tíma lil að hoppa al reiðhjólinu, og hefjast þegar handa. Þeir horfa ekki í kringum sig. Ef þeir hefðu gert það, þá hefðu þeir séð tvo drengi, sem ekki eru meðal hinna glöðu ungl- inga í kvöld. — Þetta eru Kolbeinn og Haraldur, þeir standa við ána með haka og safna saman timbri, sem berst með straumnum. Það er farið að rjúka úr húsinu, þeg- ar Aki kemur haltrandi yfir gangbrúna með nokkrúm félögum sínum. Nokkrir litlir drengir leika sér að knetti á vell- inum, og yfir skálaþakinu blaktir fáni. Inni í nýja húsinu eru allir önnum kafnir við að undirbúa undir vígslu- liátíðina. Hátíðanefnd hefur að vísu ekki verið kosin. Ekki hefur heldur ver- ið kosinn formaður eða stjórn í íþrötta- félaginu. Þeir eru vanir því, að Áki ráði fram úr öllum erfiðleikum. Annars gengur þetta nokkuð af sjálfu sér. Sveinn í Sandmói og Agnar í Giljamói hafa tekið að sér gosdrykkjasöluna. En þær Hjördís og Sigríður frá Stóratúni sitja við ryðguðu eldavélina. Nokkrir drengir hjálpa til. Yeizlan fer sennilega bráðum að byrja. Þá geta menn fengið keypt kaffi og brauð eða gosdrykki. Inngangseyrir er enginn, af því að þetta er fyrsta veizlan í nýja húsinu. Þá er ekki nauð- synlegt að hafa aðgöngumiða. — Hvað á svo að gerast þarna? VORIÐ 179

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.