Vorið - 01.12.1968, Page 17
HVÍTUR DRENGUR í BANDA-
RÍKJUNUM
Ríkarður er skóladrengur í Ameríku.
Hann býr í einbýlishúsi í útjaðri slór-
borgarinnar, hann á m'órg systkin og
er starfandi skátL Fjölskyldan á tvo
bíla, liann getur valið á miUi sex sjón-
varpsstöðva, og skóladagur hans hefst
með því, að hann syngur þjóðsönginn.
Hér verður lýst venjulegum degi
þessa skóladrengs frá morgni til kvölds.
Þegar Rrkarður Reiter, 9 ára dreng-
ur, er vakinn klukkan 7 á hann venju-
lega viðburðaríkan dag fyrir höndum.
Conny mamma hans vekur hann. Ein-
asta vandamálið er hvernig hann kemst
yfir allt, sem hann þarf að gera þennan
dag.
Hver er Ríkarður? spyrð þú.
Hér er svarið:
Ríkarður er venujlegur hvítur amer-
ískur drengur. Sömu venjur og Iiann
hafa fjöldi amerískra skóladrengja. Nú
veit ég hver næsta spurning þín verður:
Eru hættir negradrengjamia aðrir? Því
má svara bæði játandi og neitandi, og
kannski færðu seinna að heyra um
negradreng og getur þá sjálfur dæmt
um það.
Það sem gerir Ríkarð Reiter að góðu
dæmi um venjulegan amerískan dreng
er margt, þar á meðal þetta:
1. Ríkarður býr í útjaðri New York
— nákvæmlega- eins og millj ónir barna
búa í ýrnsuni borgum Ameríku.
2. Ríkarður býr í fallegu, hvítu ein-
býlishúsi. Fjöldi svipaðra liúsa er í ná-
grenni hans. Þegar bjart er, getur
Ríkarður séð frá svölunum brú, sem
er langt burtu. Það er Verrazanobroen,
sem skip frá Evrópu fara undir áður en
þau leggjast í höfninni í New York.
3. Ríkarður á fjögur systkin — stóra
systur og þrjá litla bræður. Þetta er
einnig venjulegt. í Ameríku er það tal-
ið æskilegt að eiga mörg börn. Ef til
vill minnist þið þess, að Róbert Kennedy
átti 10 börn.
Pabbi Ríkarðs vinnur inni í borg-
inni, hann fer þangað á litla sportbíln-
um (M G) sínum á morgnana. En
mamrna fer á stóra bilnum (Buick) til
að verzla. Flestar fjölskyldur í þessum
borgarhluta eiga tvo bíla, jafnvel þó að
það sé ekki efnað. Bílar eru ódýrir í
Ameríku. Þeir eru meira en helmingi
ódýrari en hér.
Ríkarður segir, að mamma sín þurfi
sérstakan bíl. Og hann hefur rétt fyrir
sér. Þessi borgarhluti heilir Mountain-
side (fjallshlíðin). Þarna eru aðeins
ibúðarhús, hvít, rauð eða græn, með
grænum grasmottum í kring. Þarna eru
engar verksmiðjur og heldur engar
verzlanir. Það er langt í búðir og þess
VORIÐ 159