Vorið - 01.12.1968, Blaðsíða 41
fyrir mörgum öðrum. Þeir vilja láta
bera á sér og minna á, að þeir-eru frá
Völlum, og koma ekki aðeins til að
kenna knattspyrnu. Þeir geta sýnt þeim
margt fleira. Nú skulu þeir fá að sjá
hvernig á að haga sér í veizlum. Þá
kaupa menn ekki aðeins kaffi og drekka
það með það sama. Nei, menn lyfta
b'ollanum hátt upp í loftið og halda
hinni hendinni utan um stúlku. Þeir sjá
Áka, heilsa honum með bollunum, svo
að kaffið gusast <upp úr þeim.
Áki staðnæmist og starir. Gleði hans
er horfin. Hann finnur að svitinn brýst
fram í andlitinu, eitíhvað hættulegt er
að brjótast út. — Svona vitleysu geta
Vallnastrákarnir fundið upp á. Hann
dauðlangar að kalla til þeirra og reka
þá út.
En félögum hans, drengjunum og
stúlkunum, sem eru óvön þessu, livað
finnst þeim? Hann álítur að Hjördís
og Sigríður kæri sig ekki um faðmlög
neinna stráka — jafnsterkar og þær
eru. Hann hlakkar til að sjá, hvernig
þær muni hrinda Vallnadrengjunum
frá sér. (S ögul ok n æst.)
E. Sig. þýddi.
Afi: 7/Langar þig ekki til þess að
verða einhvern tíma afi eins og ég,
Ottó 1 tli?"
Ottó : ,,Æ, nei, ekki held ég það."
Afi: „Hvers vegna ekki?"
Ottó : „Af því að afarnir verða allt-
af að gefa litlu drengjunum súkku- laði, en mér þykir það svo gott, að
ég vil heldur borða það sjólfur."
Labbnkútur
Stubbur hét og stór var hann ekki,
en stinnur, kubburinn sá.
Hann langaði lil að lifa eitthvað stórt.
helzt lönd og álfur sjá.
Þegar allt var þakið ísi og snjó,
var ágætt að leggja af stað,
í hlýrri peysu með hettu og trefil —
á hálku. ... Ja, það var nú það!
H. J. M.
BRÉFASKIPTI
Vorinu hafa borizt nokkur bréf írá norsk-
ura börnum um bréfaskipti við íslenzk börn.
Blaffið vonast til aff lesendur Vorsins verði við
þessum óskum frá frændum okkar.
Stúlkur:
Turild Finnsrud 5274, Bolstadöyre, Norge.
Inger Kirsten Fyrdei, 5715 Stalheim, Norge.
(14—15.)
Kirsten Undheim, Arrestad, Kasse I. Bryne,
Norge. (14.)
Ingunn Marie Skáre, 6892 Hjelledalen,
Nordfjord, Norge. (11—12.)
Liv Eva, Presttulen, Vágánn, Guðbrands-
dalen, Norge.
Drengir:
Arne Heth, 6836 Viksdalen. Sunnufjord,
Sogn og Fjorene, Norge. (14—15.)
John-Magne Lilleskare, 5484 Stolnen, Norgé.
(12—13.)
VORIÐ 183