Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.12.1999, Page 34

Bjarmi - 01.12.1999, Page 34
þau einkenni sem Jesús talar um iinn- ist hjá þeim sem em að reyna að hafa áhrif á trú okkar og þannig varast þá. Nefna má nokkur atriði sem em áber- andi í dag. í fyrsta lagi ber að varast alla þá sem víkja frá orði Guðs og reyna að túlka það þannig að það falli að hugsanagangi heimsins. Orð Guðs er heilagt og óbrigðult. Það varir að eilífu, Sálm. 119,89. Jesús segir í ræðunni um endalokin: „Himinn og jörð munu líða undir lok, en orð mín munu aldrei undir lok líða,“ Matt. 24,35. Menn reyna að draga orð Guðs í efa og segja: Guð meinti þetta ekki eins og skrifað stendur og þú lest. Ef til vill er hægt að komast hjá þjáningum síðustu tima með því að breyta orði Guðs og aðlaga sig hugsanagangi heimsins. Kristnir menn verða að varast allt slíkt. Önnur kenning sem ber mikið á er sú sem leggur áherslu á kærleika og umburðarlyndi án þess að taka mið af því sem Guð sem hefur sagt. Þetta miðast við hugsanagang heimsins og viðhorf hans. Það sem Guð segir í sínu orði er annað hvort stimplað sem úrelt og gamaldags eða það er túlkað þannig að það samræmist viðhorfum heimsins. Oft tala menn fjálglega um að kærleikurinn sé ofar öllu öðru en þeir gleyma því að Guð talar í kær- leika þegar hann segir okkur hver sé vilji hans. Eitt af því sem Jesús segir að ein- kenni falsspámenn síðustu tíma er kraftaverkin sem þeir gera, Matt. 24,24. Verum þess vegna mjög varkár þegar nýjar stefnur kynna sig sem kraftaverkakristindóm eða benda á kraftaverk sem sönnun fyrir að kenn- ing þeirra sé frá Guði. Ein villukenningin sem borist hefur til okkar nú á síðustu tímum hefur verið kölluð velgengnisguðfræði. Allt á að ganga vel hjá þeim sem kristinn er. Ef ekki þá er ástæðan sögð vera að við- komandi treysti ekki Guði fullkom- lega. Kennendumir benda stöðuglega á tákn og undur til þess að sanna að kenning þeirra sé rétt og komi frá Guði. Þessi kenning er í hróplegri andstöðu við boðun Jesú um síðustu tíma, tíma þrauta og þjáninga fyrir kristna menn. Auk þess hefur Guð aldrei lof- að kristnum mönnum velgengni og lífi án þrauta hér í heimi. Að lokum má nefna nýaldarkenning- una þar sem öllum trúarbrögðum er ruglað saman eftir því sem við á í hvert skipti. Boðendur hennar reyna fyrst og fremst að hafa áhrif á kristna menn sem ekki eru allir jafnmeðvitað- ir um kristna trú sína. Afleiðing villukenning- anna Aíleiðing villukenninganna og einkenni síðustu tíma er að lögleysi magnast og kærleikur flestra kólnar, Matt. 24,12. Þegar Guðs orð er ekki lengur grund- völlurinn í lífi og breytni manna þá magnast lögleysið. í fyrsta Sálminum lesum við um að sæll er sá maður sem hefur yndi af lögmáli Drottins, Sálm. 1,2. Það sama á við um þá þjóð sem hefur yndi af lögmáli Drottins og óttast hann. En ef þessum grunni sem lögmál- ið er er kippt burt þá magnast lögleysið. Menn spyrja ekki Guð um hvað sé rétt og rangt. Það ákvarðast út frá tíðarand- anum. Þegar lögleysi magnast þá kólnar kærleikurinn. Sannur kærleikur Krists dvínar, það er kærleikur sem elskar Guð og þráir að gera vilja hans, kær- leikur sem fómar og tekur á sig ábyrgð. Það er kærleikur sem birtist í Kristi Jesú, Fil. 2,6-11. Hann fómaði sjálfum sér á krossinum. Það er kærleikur sem tók á sig ábyrgðina á að frelsa synduga menn sama hvað það kostaði. Þegar mönnum er ekki lengur hjart- ans mál að syndarar verði hólpnir og njóti umhyggju Guðs og manna þá er hinn sanni kærleikur farinn að kólna. Þá er ekki mikil von á að margir íleiri frelsist því það er kærleiki Krists sem knýr lærisveina hans til að vitna um frelsarann, 2. Kor.5,14. Þegar kærleikurinn kólnar þá ríkir eigingirnin, Matt. 24,11. Náungi minn verður að víkja fyrir hagsmunum mín- um. Köld efnishyggja ræður. Þetta geng- ur svo langt að menn hata og framselja hver annan ef þeir hagnast á því. Hvers vegna? Grunninum hefur verið ýtt til hliðar, boðorðinu sem Jesús sagði æðst allra boðorða, Matt. 22,36-40. Ofsóknir og fráfall Eitt af því sem fylgir fæðingarhríðum síðustu tíma eru ofsóknir á hendur þeim sem játa nafn Jesú, og margir munu gefast upp og falla frá trúnni, Matt. 24,9-10. Kristnir menn hafa alltaf búið við ofsóknir, 2. Tím. 3,12. Þegar nær dregur endalokum veraldar verða ofsóknirnar kröftugri. Enginn getur staðist í eigin krafti, Dan. 12,1-4. Þrengingamar og ofsóknimar munu að lokum ná til alls heimsins. Jesús sagði að allar þjóðir mundu hata þá sem vildu vera kristnir, Matt. 24,9. Ef við hugleiðum hversu aíkristnunin hefur gengið hratt fyrir sig á Vesturlönd- um, hvemig allt sem kristnum mönnum er heilagt er troðið niður og hæðst að þvi þá getur verið að boðskapurinn um of- sóknir og fráfall eigi við um okkar tíma. Ofsækjendur kristinnar trúar em alstað- ar og sækja fram af miklum ofsa. Þeir reyna að smeygja sér inn í söfnuði trú- aðra og afvegaleiða marga. Óhugnaður eyðingarinnar - andkristur í Matt. 24,15 vitnar Jesús í Daníels- bók, 9,27; 11,31; 12,11, og hvetur okk- ur til að virða fyrir okkur viðurstyggð eyðingarinnar sem er fyrirboði komu Mannssonarins, Matt, 24,15, 21 og 30. Orðin sem Jesús vitnar til fjalla um vanhelgun á jsví sem heilagt er. Spádómurinn í Daníelsbók rættist þeg- ar Antiokus IV. Epifanes vanhelgaði musterið í Jerúsalem með því að setja mynd eða altari Seifs í musterið árið 167 f. Kr. Kaligúla keisari reyndi að setja Allir sem haldafast við Guðs orð og lifa með fesú þegar hann kemur munu verða hólpnir, Matt. 24, 13 og 35. Það eina sem stenst í dóminum er það sem Guð hefur sagt.

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.