Heima er bezt - 01.05.1960, Blaðsíða 10

Heima er bezt - 01.05.1960, Blaðsíða 10
nokkur hross á hverjum bæ, því að ekki voru þá komnir bílarnir og aðrar vélar. Nokkuð misjafnt reyndist, hve menn voru ákveðnir með að létta á fóðrunum. Héldu sumir, að askan myndi brátt eyðast, fjúka burt og renna af jörðinni, svo að hagi kæmi á ný; myndi þá mega treysta eitthvað á beit, eins og vant var. En ekki fór vel fyrir þeim, sem þessu höfðu treyst, því raun varð sú á, að mjög lítið sá til jarðar þann vetur, og þótt verið væri að hleypa fénu í ræsi, sem úr var runnið, voru strá og kvistur sá, sem upp úr stóð, svo óhrein af sandi og ösku, að kindurnar litu varla í það og rásuðu og runnu í allar áttir. Hefði þeim verið betra að vera kyrrar í húsunum, því þær gerðu ekkert annað en að níða af sér holdin á þessu sífellda randi og rennsli. Kæmi slíkt fyrir aftur, ætti enginn að ætla á útbeit að vetri til. Afleiðingar þessa Kötlugoss urðu geigvænlegar, svo að sumir bændur biðu þess aldrei bætur. Nokkrir flýðu jarðir sínar og fóru til sjávarþorpanna, Víkur og Vest- mannaeyja, en aðrir skiptu um jarðir og fóru af eyði- lögðum jörðum á aðrar, sem minna voru skemmdar, þar á meðal Jóhannes á Söndum, sem fyrir mestu tjóni varð á skepnum sínum í hlaupinu, því það fór yfir mikið af Sandahólmanum og tók þar með sér bæði hross og sauðfé, eins og skýrt er frá í riti Gísla sýslumanns. Þetta mikla höfuðból var meira og minna í kafi í sandi og leðju eftir hlaupið, en hús sakaði lítið. Þó flutti þangað þegar um vorið bóndinn frá Búlandsseli, Páll Pálsson, og hefur þó varla verið álitlegt að flytja þangað, úr því að Jóhannes fór þaðan. En húsin stóðu uppi, og gat Páll einhvern veginn fengið þau, og það sagði hann síðar, að hátíð hefði verið að sjá jörðina þar, móts við það sem var í Búlandsseli, er hann fór þaðan, öskufallið miklu minna, þar sem hlaupið hefði ekki farið yfir, heldur en norður frá, þar sem allt var kolsvart og meira en það, enda hefur það oftast verið í eyði síðan, og nú fyrir löngu alger eyðijörð. Langmest varð öskufallið yfir norðurhluta Tungunn- ar suður fyrir miðja sveitina, eins og bezt má sjá á lýs- ingu jarðanna við endurmat það, er fram fór um vorið eftir. Einnig náði þessi mesta öskudvngja yfir vestustu bæi Síðunnar, Skaftárdal og Á. Miklu minna varð ösku- fallið í Suðurbyggðunum, Meðallandi og Álftaveri, en þar skemmdi hlaupið nokkrar jarðir. Minnst varð ösku- fallið í Mýrdal af þessum öskusveitum. Þar lagði mökk- inn sjaldnast yfir, var átt of suðvestlæg, meðan á gosinu stóð, og lagði þá mökkinn yfir Tunguna, mest efri hluta hennar, og varð oft almyrkt, þótt um hábjartan dag væri, og kyngdi niður öskunni. Fylgdu reiðarslögin og þrumugnýrinn alltaf mökknum, og var maður far- inn að venjast þessu, svo að því var að lokum veitt lítil eftirtekt. Ekki er ég viss um, hve þykkt öskulagið hefur verið, ef það hefði verið jafnfallið, því óðara fauk það af hæð- um og börðum, en sennilegt þætti mér, að það hafi ekki verið undir hálfri alin, og ef til vill ríflega það, hefði það verið jafnfallið. Mikið af skepnum fórst þegar í upphafi hlaupsins og á meðan gosið stóð. Segir í riti Gísla sýslumanns, að 36 hross hafi farizt og mörg hundruð sauðfjár, hrossin ein- göngu eða öll úr Álftaveri og frá Söndum, en sauðféð úr öllum þremur hreppunum: Skaftártungu, Veri og Meðallandi. Fórst það með margvíslegu móti, varð sumt fyrir hlaupinu, í Álftaveri og Söndum, og sumt æddi eitthvað út í buskann og sást aldrei síðan. Þótt miklu væri fargað og fækkað fénaðinum um haustið, var fyrirsjáanlegt, er kom fram á veturinn, að heyleysi vofði yfir fyrir allar þær skepnur, sem eftir voru, ef ekkert yrði að gert. En ekki var þá margra kosta völ, því að um flutning fóðurbætis frá Vík var ekki að ræða sökum þess, að eftir hlaupið var Sandurinn ófær með vagna, og auk þess voru hestar orðnir sárfáir heima, og ekki annað en saltsíld að fá í Vík, en hún var mjög þung í flutningi. Þetta frétti Gísli sýslumaður héðan um ástandið í Tungunni. Skrifaði hann þá manni í Tungunni bréf og taldi ekki óhugsanlegt, að koma mætti kúm fyrir í Mýr- dalnum, ef fært revndist að koma þeim út yfir Sand. Eitthvað yrði að gera til bjargar því, sem bjargað yrði. Fól hann manni þessum að skoða heybirgðir manna og athuga ástandið og ákveða síðan, hve margar kýr þyrfti að losna við af fóðrum og senda sér síðan skýrslu um þetta. Var þetta gert, og urðu það alls ellefu eða tólf kýr, sem ég taldi þörf á að losna við. Kom hann þeim öllum fvrir í Mýrdalnum. Voru Mýrdælingar þá, eins og oft endranær, betur staddir með hey heldur en Tungumenn, og hefur oft verið leitað til þeirra með gripatöku, þegar illa hefur litið út í Tungunni. I þetta sinn stóðu þeir líka vel að vígi með að bæta við sig fóðurbæti þeim, sem til var í Vík, þar sem aðeins var um stuttan flutning að ræða. Gekk Gísli sýslumaður röggsamlega fram í að koma þessu öllu í kring með sín- um alkunna dugnaði. Ekki var það þrautalaust að koma þessum kúm út yfir Mýrdalssand um hávetur í misjafnri tíð og færð, en ein- hevrn veginn tókst það samt slysalaust, og komust allar kvrnar lifandi út yfir Sand, en hægt varð að fara, og lengi var verið með þær á leiðinni. Þessi gripataka Mýrdælinga og Landeyinga (hrossin um haustið) var langmesta hjálpin, sem Tungumenn urðu aðnjótandi sökum gosplágunnar miklu. Var víst ekki hart kallað eftir meðgjöf með gripum þessum. Mun mjög lítið hafa verið tekið með hrossunum, sem fóru út í Landeyjar, og hefur þessum sveitum báðum vart verið þakkað þetta sem skyldi. Hefði gripum þessum ekki verið komið þannig fyrir, myndi ekkert annað hafa legið fyrir en að farga þeim, og hefði þá orðið fátt um gripi eftir í Tungunni. Nokkrir bæir í Norður-Tung- unni voru kýrlausir, frá því að kýrnar fóru á þorra og góu (í tveim hópum) og þar til kominn var hagi sum- arið eftir, en það varð harla seint sökum öskunnar. Fjórir bæir fóru í eyði um vorið hér í Norður-Tung- unni, sem sé Snæbýli, Ljótunnarstaðir, Búlandssel og Svartinúpur. Eru tveir síðast töldu enn í eði, en hinir tveir í ábúð og hafa oftast verið það, síðan flutt var í þá aftur. 154 Hcima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.