Heima er bezt


Heima er bezt - 01.05.1960, Qupperneq 25

Heima er bezt - 01.05.1960, Qupperneq 25
Ingibjörg Sigurðardóttir: ANNAR HLUTI / I pjónustu Meistarans SKÁLDSAGA Ég tók boði hans með þökkum, og við fylgdumst að heim til hans. Þar var mér vel tekið, og dvaldist ég þar í góðu yfirlæti, þangað til við fórum á sjóinn aftur. Skipstjórinn átti dóttur yngsta barna, sem nú var orðin gjafvaxta stúlka en dvaldist enn í föðurgarði. Líney var nafn hennar. Hún var mjög kát og alúðleg við mig strax við fyrstu kynni. Og þegar ég fór aftur á sjóinn eftir fyrstu dvöl mína á heimili skipstjórans, sagði hún brosandi við mig, um leið og ég kvaddi hana: — Þú kemur aftur hingað, þegar skipið losar hérna næst? Ætlarðu ekki að gera það? Ég þakkaði henni fyrir, lofaði að koma aftur og fór síðan á brott. En orð hennar og bros fylgdu mér á haf- ið. Eftir þetta varð ég brátt fastur gestur á heimili skip- stjórans í hvert sinn, er ég kom að landi. Ég varð brátt ástfanginn af Líney, og hún gaf ást minni byr undir báða vængi. Ég var óumræðilega hamingjusamur. Störf- in á hafinu urðu mér eins konar leikur, og ég brosti hugdjarfur við hverri hættu. Vegna stúlkunnar minnar skyldi ég verða hetja og mikilmenni, og ég ákvað að sækja um skólavist á stýrimannaskólanum, strax og ég hefði tök á því. Ég sagði Líney frá þessari fyrirætlun minni, og hún virtist fagna henni. Við vorum heitbundin hvort öðru, en hún bað mig að láta foreldra sína ekki vita neitt um það fyrst um sinn. Og ég var fús til að varð- veita leyndarmál okkar, svo að enginn vissi neitt nema við tvö. En svo var það einu sinni, þegar skipið var að sigla hingað inn með mikinn afla, og hjarta mitt barðist af sælli tilhlökkun yfir væntanlegum endurfundum með stúlkunni minni, sem var vön að fagna mér á heimili foreldra sinna, að skipstjórinn segir við mig ásamt fleir- um af áhöfninni: — Ég verð einum degi lengur í landi að þessu sinni, en ég er vanur. Síðan brosir hann góðlátlega til okkar og bætir við: — Ég ætla sem sé að sitja brúðkaup dóttur minnar í kvöld. Ég greip andann á lofti. — Elvaða dóttur? lmaut mér af vörum. — Hennar Líneyjar. Hinar eru allar giftar fyrir löngu. Eg spurði ekki um fleira. En þessari stund gleymi ég aldrei. Skipið lagðist að hafnargarðinum, og við losuðum fiskinn úr því. Ég vann starf mitt eins og í Ieiðslu. Ég gat ekki trúað orðum skipstjórans. Að Líney hefði brugðizt mér, nei, því gat ég ekki trúað. Strax og affermingu skipsins var lokið, fór skipstjór- inn heim, án þess að bjóða mér með sér, eins og hann var vanur að gera. Eitthvað bjó undir því. Skipsfélagar mínir tíndust allir á burt. Hver fór heim til sín. Ég varð brátt einn eftir niður við höfnina. Nú var komið kvöld, og ég tók þá ákvörðun að fara heim að húsi skipstjór- ans og grennslast eftir, hvers ég yrði vísari. Enn trúði ég ekki orðum hans um giftingu Líneyjar. Ég gekk hröðum skrefum heim að húsinu. Það var allt uppljómað, og nokkrar bifreiðar stóðu fyrir utan. Ég nam staðar við næsta hús í götunni og beið þar um stund. Og ekki leið á löngu þar til bifreið ók heim að húsi skipstjórans og staðnæmdist þar. Og út úr henni steig engin önnur en Líney, klædd dýrindis brúðar- skarti, og með henni ungur maður, sem auðsjáanlega var brúðgumi hennar. Þau leiddust þegar inn í húsið og hurfu mér sjónum. Orð skipstjórans voru þá sönn. Líney hafði brugðizt mér. Sársauka mínum á þeirri stund ætla ég ekki að reyna að lýsa, um hann á ég engin orð. Ég reikaði niður í bæinn og inn í veitingahús. Það kvöld tók ég fyrsta staupið á ævinni, og síðan hefur líf mitt verið óslitin þyrnibraut myrkustu ógæfu og niðurlægingar. Þegar ég hafði drukkið nokkur staup þetta örlagaríka kvöld, varð ég sem allur annar maður, kaldur og kæru- laus fyrir öllu. Hugur minn snerist stöðugt um Líney og brúðguma hennar, og nú var eins og illur andi settist að í sál minni. Ég hætti að hugsa af nokkurri skynsemi. Hefnd! Hefnd! bergmálaði í sál minni. Ég hætti að hugsa af nokkurri skynsemi, mig þyrsti blátt áfram í að hefna mín. Ég drakk nokkur staup til viðbótar og reikaði síðan út úr veitingahúsinu. í fyrstu vissi ég ekk- ert hvað gera skyldi. En svo var sem hinn illi andi næði algeru valdi yfir mér. Ég fór í skyndi heim að húsi skipstjórans og gekk óboðinn inn í stofu. Þar stóð yfir dýrlegasti fagnaður. Fyrir enda skrautlegs veizluborðs sat Líney og virtist vera mjög sæl við hlið brúðguma síns. Ég snaraðist að borðinu, án þess að veita nokkru öðru athygli, og greiddi brúðgumanum þungt högg. Það varð uppi fót- ur og fit í veizlusalnum, og ég var þegar tekinn hönd- um af mörgum mönnum. Eftir það yissi ég lítið af mér. Var bæði orðinn ofurölva og lamaður af reiði og sálar- kvöl. Heima er bezt 169

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.